Fréttablaðið - 11.06.2004, Síða 49

Fréttablaðið - 11.06.2004, Síða 49
FÖSTUDAGUR 11. júní 2004 Wayne Rooney gerir auglýsingasamning við Nike: Þokkalegur í þrívídd FÓTBOLTI Unglingsstaulinn Wayne Rooney, leikmaður Everton og enska landsliðsins, er þegar byrj- aður að maka krókinn allverulega þótt ungur og óharðnaður sé. Þessi átján ára fagri foli, gerði nýverið samning við íþrótta- vöruframleiðandann Nike sem metinn er á fimm milljónir punda í það minnsta. Samningurinn er til tíu ára og virði hans eykst í takt við mögu- lega velgengni Rooneys. Hann mun koma fram í auglýs- ingaherferð á vegum Nike sem verður í þrívídd og mun hefja göngu sína í þessari viku. Wayne Rooney er yngsti leikmaður sem skorað hefur fyrir landslið Englendinga en það gerði hann gegn Makedóníu í hitteð- fyrra en þá hafði vist hans á Hótel Jörð talið 17 ár og 317 daga. Hann bætti við tveimur mörk- um í markasafn sitt um síðustu helgi gegn okkur Íslendingum og Englendingar binda miklar vonir við að hann geri stóra hluti á EM í Portúgal. Rooney hefur verið orðaður við stórlið Manchester United og Chelsea en forráðamenn Everton blása á allar slíkar sögusagnir. Þeir segja að Rooney muni skrifa undir nýjan fimm ára samning við Everton í sumar og fullyrða að þeir muni ekki selja hann þrátt fyrir hrikalega skuldastöðu félagsins. ■ LEIKIR  19.15 Fram og Grótta mætast á Laugardalsvelli í 32 liða úrslitum VISA-bikars karla í knattspyrnu.  19.15 Fylkir og ÍH mætast á Fylkisvelli í 32 liða úrslitum VISA- bikars karla í knattspyrnu.  19.15 Afturelding og Haukar mætast á Varmárvelli í 32 liða úrslitum VISA-bikars karla í knattspyrnu.  19.15 Reynir S. og Þór Ak. mætast á Sandgerðisvelli í 32 liða úrslitum VISA-bikars karla í knattspyrnu.  19.15 Tindastóll og KA mætast á Sauðárkróksvelli í 32 liða úrslitum VISA-bikars karla í knattspyrnu.  19.15 Fjölnir og ÍBV mætast á Fjölnisvelli í 32 liða úrslitum VISA- bikars karla í knattspyrnu.  19.15 Breiðablik og Njarðvík mætast á Kópavogsvelli í 32 liða úrslitum VISA-bikars karla í knattspyrnu.  19.15 Selfoss og Grindavík mætast á Selfossvelli í 32 liða úrslitum VISA-bikars karla í knattspyrnu.  20.00 Þróttur R. og HK/Víkingur mætast á Valbjarnarvelli í VISA- bikar kvenna í knattspyrnu.  20.00 ÍA og Stjarnan mætast á Akranesvelli í VISA-bikar kvenna í knattspyrnu. SJÓNVARP  17.10 Olíssport á Sýn.  18.25 Trans World Sport á Sýn.  18.30 Leiðin á EM 2004 (4:4) á RÚV.  19.20 Gillette-sportpakkinn á Sýn.  19.50 Motorworld á Sýn.  20.20 NBA-deildin á Sýn. Útsending frá 3 leik Detroit Pistons og Los Angeles Lakers í úrslitum NBA- deildarinnar frá því í nótt.  23.10 Gullmót í frjálsum íþróttum á RÚV. Sýnt frá móti sem fram fór í Björgvin í Noregi fyrr um kvöldið. Sjónvarpið kynnir EM í Portúgal. Þorsteinn J. verður með nýjan þátt. Evrópukeppnin er listahátíð FÓTBOLTI EM í Portúgal hefst á laugardaginn og af því tilefni bauð Sjónvarpið til blaðamanna- fundar í gær þar sem keppnin var kynnt með formlegum hætti. Opnunarleikur EM verður á milli Portúgala og Grikkja og hefst hann klukkan 16 en Sjón- varpið mun sýna 26, af þeim 31 leik sem fram munu fara í keppn- inni, í beinni útsendingu. Gerður hefur verið samningur við sjónvarpsstöðina Sýn um að sýna þá fimm leiki sem Sjónvarp- ið getur ekki boðið upp á í beinni útsendingu og verða þeir í opinni dagskrá. Leikur Sviss og Króatíu verður á dagskrá Sýnar 13. júní á sama tíma og formúlukappakstur er á dagskrá í Sjónvarpinu. Þá verða síðustu leikir riðlakeppn- innar 20.–23. júní, þar sem tveir leikir fara fram samtímis, sýndir á dagskrá Sjónvarpsins og Sýnar. Sjónvarpið sýnir Spánn-Portúgal, Króatía-England, Danmörk-Sví- þjóð og Þýskaland-Tékkland. Á dagskrá Sýnar verða hins vegar eftirtaldir leikir: Rússland-Grikk- land, Sviss-Frakkland, Ítalía- Búlgaría og Holland-Lettland. Athyglisverð nýjung verður síðan á boðstólum í tengslum við keppnina en það er þátturinn Að leikslokum sem verður í umsjón hins afar fjölhæfa dagskrárgerð- armanns, Þorsteins J. Vilhjáms- sonar. Þar fær Þorsteinn sérfræð- inga í heimsókn að kvöldi alla keppnisdagana, fer yfir leiki dagsins, skoðar vafaatriði og spá- ir í gang keppninnar. Þorsteinn hefur einnig umsjón með þáttum við upphaf og lok keppninnar. Fréttablaðið tók hann tali: „Það verður reynt að finna forvitnilega vinkla á þessari listgrein – dag- skrárgerð er í eðli sínu skemmti- leg og fótbolti er þannig leikur að það er gaman að fjalla um hann frá mörgum sjónarhornum. Í mínum huga er þessi keppni jafn mikil listahátíð og sú sem er nýliðin í Reykjavík – þetta er í sjálfu sér hin dýra list og svo getum við haft Bach, John Coltra- ne og annað leikhúsefni með,“ sagði Þorsteinn og bætti þessu við: „Við komum til með að nota grafíkina meira en áður hefur þekkst og skoðum vafaatriðin, sem gera leikinn svo skemmtileg- an, út frá henni og auðvitað marga aðra þætti líka með skemmtileg- um og fróðum gestum. „Þetta verður ekkert minna en frábær keppni,“ segir Þorsteinn fullur tilhlökkunar og á von á Frökkum mjög sterkum: „Ég verð illa svikinn ef Frakkarnir fara ekki mjög langt, þeir eru með besta liðið og það skemmtilegasta líka. Hins vegar er þetta þannig keppni að það eru engin slök lið þarna og allt getur gerst; kannski munu heimamenn loksins springa út en við munum án efa sjá marga harða og skemmtilega bardaga,“ sagði Þorsteinn J. Vilhjálmsson. Að lokum er vert að benda á að með hliðsjón af tölum um áhorf frá síðustu keppnum má áætla að nálægt helmingur Íslendinga muni fylgjast með keppninni að miklu eða öllu leyti. ■ MILLJÓN PUNDA BROS Wayne Rooney hefur landað feitum samningi við Nike. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 8 9 10 11 12 13 14 Föstudagur JÚNÍ ÞORSTEINN J. VILHJÁLMSSON OG SAMÚEL ÖRN ERLINGSSON Sjónvarpið verður með yfirgripsmikla dagskrá frá EM í Portúgal. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.