Fréttablaðið - 24.06.2004, Page 8

Fréttablaðið - 24.06.2004, Page 8
8 24. júní 2004 FIMMTUDAGUR Stuðningur við ríkisstjórnina: 60 prósent á móti KÖNNUN „Þetta er lítil breyting frá því sem verið hefur,“ segir Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðing- ur um skoðanakönnun Frétta- blaðsins á fylgi ríkisstjórnarinnar en tæp 40 prósent þeirra sem tóku afstöðu voru fylgjandi stjórninni. „Ríkisstjórnin virðist vera komin yfir erfiðasta hjallann í fjölmiðlamálinu en mælist með lítið fylgi,“ bætir Ólafur við. Könnunin var gerð hinn 22. júní, úrtakið var 800 manns en svarhlutfall var 80 prósent. Spurt var: Ertu fylgjandi eða andvíg(ur) ríkisstjórninni? Aðeins fleiri karlar voru fylgjandi ríkisstjórninni en konur og stuðningur við hana var meiri í þéttbýli en í dreifbýli. Niðurstaðan er svipuð þeirri og mældist í skoð- anakönnun Fréttablaðsins í byrjun júní, þar sem rúm 40 prósent voru fylgjandi ríkisstjórninni en tæp 60 prósent andvíg. Í byrjun maí mæld- ist stuðningur við stjórnina ekki nema um 30 prósent. ■ Sjálfstæðisflokkur yfir Samfylkingu Sjálfstæðisflokkurinn er á ný orðinn stærsti flokkur landsins samkvæmt könnun Fréttablaðsins. Frjálslyndir tvöfalda fylgi sitt á tveim vikum. KÖNNUN Stjórnarflokkarnir bæta við sig fylgi samkvæmt nýrri skoð- anakönnun Fréttablaðsins. Sam- kvæmt könnuninni næðu þeir þó ekki meirihluta á þingi ef kosið yrði í dag. Þeir fengju samanlagt 29 þingmenn en hafa nú 34. Þegar niðurstaðan er skoðuð út frá þeim sem tóku afstöðu í könn- uninni, en það voru 80% aðspurðra, kemur í ljós að Sjálfstæðisflokkur- inn mælist nú með 35,7 prósenta fylgi, sem er yfir kjörfylgi hans. Flokkurinn hefur stöðugt bætt við sig fylgi síðan í könnun blaðsins 20. maí þegar hann mældist með 25 prósent. Þá höfðu stjórnarflokkarn- ir nýlega samþykkt fjölmiðlalögin. Fylgi Framsóknarflokksins í könnuninni er 9,5 prósent og hækk- ar hann lítillega síðan í könnun blaðsins 5. júní. Fylgi flokksins er þó enn langt undir því sem hann fékk í kosningunum í fyrra, en þá fékk hann 17,7 prósent. Samkvæmt könnuninni fengi Framsóknar- flokkurinn sex þingmenn kjörna en hefur 12 í dag. Samfylkingin sem hefur mælst með mjög mikið fylgi í síðustu þremur könnunum blaðsins tekur nú dýfu niður. Hann mælist með 32,9 prósent samanborðið við rúm- lega 41 prósent 20. maí. Flokkurinn er þó enn aðeins yfir kjörfylgi og fengi 21 þingmann á þing, eða einum fleiri en hann hefur nú. Vinstri grænir eru einnig aðeins að missa flugið miðað við niður- stöður síðustu kannana. Þeir mælast með 15 prósenta fylgi og fengju samkvæmt því níu þing- menn kjörna eða fjórum fleiri en þeir hafa nú. Frjálslyndi flokkurinn er að sækja í sig veðrið samkvæmt könn- uninni. Hann mælist með 6,8 pró- senta fylgi sem er ríflega tvöfalt meira en hann fékk í könnun blaðs- ins 5. júní. Ef kosið yrði í dag fengi flokkurinn fjóra þingmenn kjörna sem er jafnmikið og hann hefur. Hringt var í 800 manns og var þeim skipt hlutfallslega jafnt eftir kyni og kjördæmum. trausti@frettabladid.is SVONA ERUM VIÐ NEYSLA ÁFENGIS Á ÍSLANDI (SELDIR LÍTRAR Á HVERN ÍBÚA Á ÁRI) 1983: 13,0 lítrar 1993: 31,24 lítrar 2003: 66,5 lítrar Heimild: Hagstofa Íslands Viðbrögð við skoðanakönnun BOÐSKAPUR FLOKKSINS AÐ SKILA SÉR „Ég fagna því að Sjálfstæðisflokkur- inn hefur endurheimt forystu sína sem stærsti stjórnmálaflokkur landsins.“ segir Einar K. Guðfinns- son, þingflokksformaður Sjálfstæð- isflokksins. Einar segir könnunina vera til marks um það að boðskap- ur flokksins í fjölmiðlamálinu, sem mest hefur borið á, sé smám saman að komast til skila. „Í öðru lagi er fólk líka að gera sér grein fyr- ir mikilvægi stjórnarforystu Sjálf- stæðisflokksins,“ bætir Einar við. Hann telur það ekki mikil tíðindi að Framsóknarflokkur mælist undir kjörfylgi. „Framsókn mælist jafnan lægri í könnunum en kosningum.“ EINAR K. GUÐFINNSSON Fagnar að Sjálfstæðisflokkurinn er á ný stærsti flokkur landsins. FORMENN STJÓRNARFLOKKANNA Ríkisstjórnin virðist komin yfir erfiðasta hjallann í fjölmiðlamálinu. ERTU FYLGJANDI EÐA ANDVÍG(UR) RÍKISSTJÓRNINNI? Fylgjandi 39,8% Andvígir 60,2 Viðbrögð við skoðanakönnun STJÓRNIN Á ERFITT „Við erum sátt við þessa könnun hvað okkur varðar,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri Grænna, en fylgi þeirra mælist vel yfir kjörfylgi í könn- uninni. Steingrímur segir greinilegt að stjórnin eigi á bratt- ann að sækja þó Sjálfstæðisflokkur- inn lagi aðeins hjá sér stöðuna. „Það þarf að hafa í huga að sumarið reynist yfirleitt stjórninni betra en stjórnarandstöðunni þar sem störf Alþingis, helsta vettvangs andstöðunnar, liggja niðri. Við getum því vel við unað í ljósi þess,“ bætti Steingrímur við. ÁHYGGJUEFNI FYRIR STJÓRNINA „Það hlýtur að vera áhyggjuefni fyrir ríkisstjórnina hversu nauman meiri- hluta hún hefur á þingi og stuðning minnihluta þjóðar- innar á þessum þenslutímum, þeg- ar þörf er á stjórn- festu og aðhaldi í r íkisf jármálum,“ segir Helgi Hjörvar, þingmaður Sam- fylkingarinnar, um könnun Frétta- blaðsins. Hann er ánægður með nið- urstöðuna fyrir Samfylkinguna og stjórnarand- stöðuna í heild. Hann telur Framsókn greinilega „gjalda fyrir undirgefni við Sjálfstæðisflokkinn. Það er gömul saga og ný að svo fari fyrir samstarfs- flokkum Sjálfstæðisflokksins.“ SPENNANDI ÓVISSA Mér finnst áhugaverðast að bæði í könnunum Fréttablaðsins og Gallups er hlutfall þeirra sem taka ekki af- stöðu mjög hátt. Það gerir skekkju- mörkin meiri en ella og pólitíkina meira spennandi en ella,“ segir Magnús Þór Haf- steinsson, varafor- maður Frjálslynda flokksins, sem mælist rætt undir kjörfylgi og tvöfald- ar fylgi sitt milli kannana. „Ég átti mjög bágt með að trúa að fylgi okk- ar hefði dalað jafn mikið og síðasta könnun gaf til kynna.“ Magnús telur greinilegt að Framsóknarflokkurinn líði í könnunum fyrir fylgispekt við Sjálfstæðisflokkinn.“ EIGUM FYLGI INNI „Þetta er í samræmi við aðrar kann- anir undanfarið og í sjálfu sér ekkert áhyggjuefni,“ segir Siv Friðleifsdóttir, umhverfisráðherra og þingmaður Framsóknarflokks- ins, en flokkurinn hefur mælst langt undir kjörfylgi í könnunum nýlega. „Ég held við eigum mikið fylgi inni enda höfum við staðið fyrir góðum verkum,“ bætti Siv við. Hún sagðist ekki eiga neinar skýringar á hvers vegna Framsókn mælist svo langt undir kjörfylgi á meðan Sjálfstæðisflokkurinn heldur í sitt. STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON HELGI HJÖRVAR MAGNÚS ÞÓR HAFSTEINS- SON SIV FRIÐLEIFS- DÓTTIR Alþingiskosningar 2003 Sjálfstæðisflokkurinn (D) Framsóknarflokkurinn (B) Samfylkingin (S) Vinstri-grænir (U) Frjálslyndi flokkurinn (F) 10. maí 2004 20. maí 2004 5. júní 2004 22. júní 2004 33,7 % 27,9 % 25 % 34,7 % 35,7 % 17,7 % 14,7 %10,9 % 8,1 % 9,5 % 30,9 % 39,1 % 41,3 % 37 % 32,9 % 8,8 % 13,3 % 17,2 % 16,7 % 15 % 7,4 % 5,1 % 4,6 % 3,2% 6,8 % ÞRÓUN Á FYLGI FLOKKANNA Fylgi stjórnmálaflokkanna hefur sveiflast mikið undanfarnar vikur.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.