Fréttablaðið - 24.06.2004, Qupperneq 10
10 24. júní 2004 FIMMTUDAGUR
OLÍA BRENNUR
Íraskir öryggisverðir gæta opins olíubruna
norður af Bagdad í kjölfar sprengingar í olíu-
lind. Ekki er vitað hvað olli sprengingunni.
Fjarðabyggð:
Fasteignamat hækkar
um tvo milljarða króna
FJARÐABYGGÐ Fasteignamat íbúða
og íbúðalóða í Fjarðabyggð mun
hækka um 25% frá og með 1. sept-
ember næstkomandi, um tæpa tvo
milljarða króna. Þetta er niður-
staða endurmats sem Fasteigna-
mat ríkisins hefur gert og byggist
á kaupsamningum síðustu missera
í sveitarfélaginu.
Svokölluð yfirfasteignamats-
nefnd hækkaði mat á íbúðarhús-
næði og lóðum í Fjarðabyggð um
20% á síðasta ári. Þá töldu bæjar-
yfirvöld ekki nóg að gert og fóru
því fram á endurmat. Samkvæmt
upplýsingum frá Fasteignamati
ríkisins hækkar því fasteignamat
íbúða og íbúðalóða í sveitarfélag-
inu úr sjö milljörðum og 240 millj-
ónum í níu milljarða og sextíu
milljónir.
Tilkynningar um þetta verða
sendar eigendum fasteigna á næst-
unni og þeim gefst kostur á að
skila inn athugasemdum til loka
ágúst. Breytingin tekur hins vegar
gildi 1. september næstkomandi.
Að óbreyttu þýðir þessi breyting
samsvarandi hækkun á fasteigna-
gjöldum í sveitarfélaginu. ■
Erlendir starfsmenn í Ísrael:
Miskunnarlaust vísað úr landi
ÍSRAEL Hundruðum erlendra
starfsmanna sem eru á löglegan
hátt í Ísrael og hafa alla tilskilda
pappíra og leyfi er vísað frá land-
inu á hverju ári með upplognum
ástæðum starfsmanna útlendinga-
eftirlits landsins. Þetta kemur
fram í máli Dekel Muskato, sem
þangað til nýverið var yfirmaður
útlendingaeftirlitsins og hátt-
settur lögreglumaður. Hann var
látinn taka pokann sinn eftir að
hann gagnrýndi þetta í spjalli sem
síðan var hljóðvarpað í ísraelsku
útvarpi. Hann segir að þetta hafi
ítrekað verið stundað og hann hafi
orðið vitni að því þegar erlendir
verkamenn hafi orðið fyrir bar-
smíðum lögregluþjóna í landinu.
Margir Kínverjar starfa í
landinu og fer þeim fjölgandi sem
þangað sækja sér vinnu en heima-
menn eru ekki ýkja hrifnir og vísa
eins mörgum frá og hægt er án
þess að grunsamlegt þyki, að sögn
Muskato. Segir hann það venju að
starfsmenn utanríkisráðuneytis-
ins, sem hefur yfirumsjón með
útlendingum, séu plataðir aftur og
aftur sýni þeir forvitni. ■
BANDARÍKJAFORSETI
Hyggst bæta 1.5 milljarði króna til rann-
sókna á lyfjum gegn eyðniveirunni.
Bush örlátur
fyrir kosningar:
Milljarður
til eyðni-
rannsókna
BANDARÍKIN, AP George Bush, for-
seti Bandaríkjanna, sem er nú á
ferðalagi um land sitt til að afla
sér stuðnings við forsetakosning-
arnar sem fram fara í haust sagði
í ræðu í Pennsylvaníu að til stæði
að bæta 1,5 milljarði króna til
styrktar rannsóknum á lyfjum
gegn eyðniveirunni sem enn bólar
ekkert á þrátt fyrir áralangar til-
raunir. Er þetta í 29. sinn sem
Bush sækir Pennsylvaníu heim í
forsetatíð sinni enda er það eitt
hans helsta vígi í baráttunni
framundan. ■
EKKI TILBÚNIR AÐ HALDA
FRJÁLSAR KOSNINGAR Hvíta-
Rússland er ekki tilbúið til þess
að halda frjálsar og sanngjarnar
kosningar, að mati OECD. Undir-
búningur fyrir þingkosningar er í
fullum gangi en til þess að kosn-
ingarnar verði frjálsar og óháðar
þarf andrúmsloftið í stjórnmálum
landsins að breytast talsvert,
samkvæmt OECD.
KOSIÐ UM STJÓRNARSKRÁ Ríkis-
stjórn Portúgals hyggst leggja
nýja stjórnarskrá Evrópusam-
bandsins undir þjóðaratkvæði.
Leiðtogar Evrópusambandsins
féllust á stjórnarskrána í síðustu
viku eftir þriggja ára erfiðar
samningaviðræður. Hana verður
að leggja fyrir þjóðaratkvæði eða
landsþing allra landanna 25 sem
eru í sambandinu til þess að
öðlast gildi.
– hefur þú séð DV í dag?
Dalvíkingur
eyddi aleigunni
í alþjóðlegt
bankarán
FJARÐABYGGÐ
Fasteignamat íbúða og íbúðalóða í Fjarðabyggð hækkar úr sjö milljörðum
og 240 milljónum í níu milljarða og sextíu milljónir.
■ EVRÓPA
FYRIRHEITNA LANDIÐ
Kaup og kjör í Ísrael eru mun hærri en hjá öðrum nágrannaþjóðum og það veldur því að mikil ásókn er í störf þar.
M
YN
D
/A
P