Fréttablaðið - 24.06.2004, Page 18
18 24. júní 2004 FIMMTUDAGUR
MEÐ BLÆJU
Síkhastúlka með blæju sækir bænahús sitt
í norðausturhluta Parísar. Síkhar hafa mikl-
ar áhyggjur af því að franskir skólar muni
loka dyrum sínum fyrir börnum þeirra
þegar ný lög sem banna trúartákn í
frönskum skólum taka gildi.
Hjólabrettadrengir funduðu með bæjarstjóra:
Vilja aðstöðu
fyrir hjólabretti
SELTJARNARNESBÆR Tveir hjóla-
brettadrengir, þeir Birkir Krist-
ján Guðmundsson og Daníel
Kristjánsson, gengu á fund bæjar-
stjórans á Seltjarnarnesi á dögun-
um og afhentu honum undir-
skriftalista til stuðnings hugmynd
þeirra um hjólabrettasvæði á Sel-
tjarnarnesi.
Á listanum voru tæplega 130
nöfn áhugamanna um hjólabretti
og línuskautaiðkun en Birkir
Kristján og Daníel segja aðstæður
til iðkunar íþróttarinnar takmark-
aðar á Nesinu. Rampur sem settur
hafi verið upp fyrir nokkru henti
fyrst og fremst fyrir línuskauta,
það vanti handrið eða grindur sem
hægt sé að stökkva upp á og renna
sér eftir. Þá segja þeir að það sé
ekki vel séð að fólk sé á hjóla-
brettum inni á Eiðistorgi þó sumir
hafi stolist til að renna sér þar.
Jónmundur Guðmarsson bæj-
arstjóri lýsti ánægju með framtak
drengjanna og tók jákvætt í hug-
myndir þeirra. Hann sagði að far-
ið yrði vandlega yfir málið og
skoðað hvort ekki fyndist góður
staður þar sem hægt væri að
byggja upp aðstöðu fyrir hjóla-
brettafólk. ■
FLUGUMFERÐARSTJÓRN
Litlu mátti skeika þegar norsk farþegaflugvél
kom of lágt og of hratt til lendingar á Garde-
moen-flugvelli í febrúar síðastliðnum.
Norsk flugslysanefnd:
Tugir í
lífshættu
FLUGMÁL Afar litlu mátti muna að
ekki hlytist af stórslys þegar
norsk farþegaflugvél sem kom
frá Stafangri með 50 manns inn-
anborðs lenti heilu og höldnu á
Gardemoen-flugvelli í Noregi í
febrúar. Tildrög atviksins voru
þau að í snjókomu og litlu skyggni
rétt fyrir lendingu biluðu hæðar-
mælar vélarinnar með þeim af-
leiðingum að hún kom of lágt og
of hratt inn til lendingar. Flug-
stjórinn gerði sér grein fyrir mis-
tökunum augnabliki áður en það
var of seint, að mati norsku flug-
slysanefndarinnar. ■
Kringlan Reykjavík - Lækjargata 4 Reykjavík - Faxafen 12 Reykjavík
Miðhraun 11 Garðabæ - Glerárgata 32 Akureyri og söluaðilar um land allt.
3.950 kr.
Öryggislitir fyrir börnin | Verð áður 5.400 kr.
Framlengjum tilboðið!
Nýtt kortatímabil.
HVASSVIÐRI Í BRETLANDI
Hávaðarok hefur geisað á suðurströnd
Bretlands síðustu tvo daga.
Bretland:
Hávaðarok
VEÐURFAR Alla jafna er margt um
manninn á ströndum Bretlands á
þessum tíma árs en nú horfir svo
við að þær hafa verið galtómar
síðustu tvo daga vegna mikilla
vinda sem geisað hafa um suður-
strönd landsins. Hefur vindhrað-
inn mælst allt að 30 hnútum og
furða íbúar sig á þessu enda eiga
þeir fremur að venjast hitastækju
á þessum tíma. Hafa ferðaþjón-
ustuaðilar af þessu miklar
áhyggjur ef fram heldur sem
horfir. ■
Á FUNDI BÆJARSTJÓRA
Þeir Birkir Kristján Guðmundsson og Daníel Kristjánsson gengu á fund Jónmundar
Guðmarssonar, bæjarstjóra í Seltjarnarnesbæ, á dögunum.