Fréttablaðið - 24.06.2004, Qupperneq 19
FIMMTUDAGUR 24. júní 2004
G
O
T
T
F
Ó
LK
M
cC
A
N
N
·
2
6
4
8
3
Mig vantar eitthvað
gott við ofnæmi.
Notkunarsvið: Lóritín inniheldur virka efnið lóratadin sem hefur kröftuga og langvarandi verkun við algengustu tegundum
ofnæmis. Lyfið er ætlað við frjókorna- og dýraofnæmi, sem og ofnæmi af völdum rykmaura. Varúðarreglur: Gæta þarf sérstakrar
varúðar hjá börnum með alvarlega nýrna- og lifrarsjúkdóma. Sjúklingar með skerta lifrarstarfsemi þurfa minni skammta.
Aukaverkanir: Lóritín þolist yfirleitt vel en algengustu aukaverkanirnar eru munnþurrkur og höfuðverkur. Svimi getur einnig
komið fyrir. Skömmtun: Ein tafla af lóritíni er tekin daglega. Börnum 2-14 ára sem eru undir 30 kg að þyngd nægir hálf tafla
á dag. Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 2ja ára. Lesið vandlega leiðbeiningarnar sem fylgja lyfinu. Dags. 16.05.00.
Ti
lb
oð
in
g
ild
a
til
1
.7
. 2
00
4
20%
afsláttur
Málaferli yfir auðkýfingi:
Upptöku frestað
MOSKVA, AP Rússneskur réttur
hefur frestað upptöku skatt- og
fjársvikamálsins gegn rúss-
neska auðkýfingnum Mikhaíl
Khodorkovsky og samstarfs-
manni hans. Málið verður tekið
upp að nýju þann 12. júlí. Þá
íhugaði annar réttur að hnekkja
lögbanni á upptöku eigna Yukos-
olíurisans, sem Khodorkovsky
veitti forstöðu, upp í milljarða
skattareikning.
Rætt hefur verið um að mála-
ferlin yfir Khodorkovsky séu
stjórnmálalegs eðlis og miði að
því að refsa honum fyrir stofn-
un stjórnarandstöðuflokka og
afskipti af stjórnmálum, sem
eru stjórnvöldum í landinu ekki
að skapi. ■
Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað:
Framkvæmdir hefjast í haust
AUSTURLAND Bæjarráð Fjarðabyggð-
ar hefur samþykkt að sveitarfélagið
greiði fimmtán prósent kostnaðar
við uppbyggingu hjúkrunardeildar
Fjórðungssjúkrahússins í Neskaup-
stað. Búist er við að framkvæmdir
hefjist í haust og taki um tvö ár.
Gert er ráð fyrir að kostnaður
við endurbyggingu gamla hluta
sjúkrahússins kosti í kringum 200
milljónir, en verkið verður boðið út
á næstu vikum. Bæjarráð Fjarða-
byggðar samþykkti enn fremur á
fundi í fyrradag að leggja fram allt
að tíu milljónir til verksins á þessu
ári, þó svo að samningur sveitar-
félagsins við heilbrigðisráðuneyti
liggi ekki fyrir. ■
Einkageimflaugar:
Ferðalög út í geim
innan fárra ára
BANDARÍKIN, AP Í kjölfar ferðar
Geimflaugar eitt (SpaceShipOne)
út í geiminn á mánudaginn hafa
vaknað spurningar um það hvort
flogið verði með ferðamenn þang-
að innan fárra ára. Burt Rutan,
sem hannaði Geimflaug eitt, hef-
ur efasemdir um að það gerist á
allra næstu árum.
Hann segir að kostnaðurinn við
ferðir út í geiminn sé mikill og til
þess að þessar ferðir geti borið sig
fjárhagslega þurfi geimflaugin að
vera stærri en Geimflaug eitt, sem
er með sæti fyrir þrjá. Það þurfi að
minnsta kosti að vera sæti fyrir
sex manns, helst fleiri. Rutan seg-
ir að ýmsir tæknilegir hnökrar
hafi komið í ljós í ferð Geimflaug-
ar eitt. Það gefi augaleið að ef
fljúga eigi með farþega út í geim-
inn verði tæknilega hliðin að vera
á hreinu. Þá segir Rutan að flaugar
sem fara eigi með ferðamenn upp í
geiminn og niður aftur verði að
geta farið hærra en Geimflaug
eitt, sem fór rétt út fyrir gufuhvolf
jarðar eða í um 90 kílómetra hæð.
Öðruvísi muni ferðamenn ekki
geta flotið um í þyngdarleysi eins
og alvöru geimfarar.
Bill Sprague, sem er í forsvari
fyrir annan hóp manna sem er að
smíða einkageimflaug, telur vel
mögulegt að fara með ferðamenn
út í geiminn innan fárra ára.
Geimflaugin sem hann er að
smíða er fyrir sjö manns.
Sprague segir að aðaltilgangur
þess að hann er að smíða geimfar
sé einmitt að geta farið með
ferðamenn út í geiminn. Enn sé
nokkuð langt í land en þó ekki
svo. Áætlað er að geimflaug
Sprague og félaga fari í sína jóm-
frúarferð í september. ■
SMÁRI GEIRSSON, FORMAÐUR BÆJARRÁÐS
Kostnaður við endurbyggingu gamla hluta sjúkrahússins er í kringum 200 milljónir króna.
KHODORKOVSKY
Mikhaíl Khodorkovsky mætti í réttarsal í gær. Upptöku málsins var hins vegar frestað til
að gefa verjendum betri tíma til að fara yfir málið.
M
YN
D
/A
P
KOMIN TIL JARÐAR
Geimflaug eitt komin til jarðar í Mojave-eyðimörkinni í Kaliforníu.