Fréttablaðið - 24.06.2004, Page 26
Á þessum tíma árs halda margir út úr bænum um
helgar. Áður en í ferðalag er haldið er mikilvægt að
skipuleggja sig vel og hafa allt tilbúið kvöldið fyrir
ferðina. Þá geturðu hoppað beint úr vinnunni og
inn í bílinn og keyrt eins langt og augað eygir.
- SPENNANDI VALKOSTUR
Stangarhyl 3, 110 Reykjavík, sími 591 9000
www.terranova.is
Akureyri, sími 461 1099
Súpersól til Salou
1. júlí
frá kr. 29.995
Salou er einn fallegasti strandbærinn í Suður-Katalóníu héraði á Spáni,
einungis um 100 km frá Barcelona. Frábær dvalarstaður fyrir fjölskyldur og
fólk á öllum aldri. Í Salou er Port Aventura, glæsilegasti skemmtigarður
Spánar, gott úrval veitingastaða, fjölbreytt næturlíf og rúmlega
kílómeterslöng aðgrunn, gullin strönd. Bókaðu núna og festu þér
Súpersólartilboð. Þremur dögum fyrir brottför færðu svo að vita hvar þú
gistir í fríinu þínu í Salou. Val um viku eða tveggja vikna dvöl.
Verð kr. 29.995 á mann
M.v. 2 fullorðna og 2 börn í vikuferð. Innifalið
flug, gisting og flugvallarskattar. Ferðir til og frá
flugvelli kr. 2.000 á mann.
Verð kr. 39.990 á mann
M.v. 2 fullorðna í vikuferð. Innifalið flug,
gisting og flugvallarskattar. Ferðir til og frá
flugvelli kr. 2.000 á mann.
FERÐASKRIFSTOFA
GUÐMUNDAR JÓNASSONAR EHF.
Borgartúni 34, sími 511 1515
netfang: outgoing@gjtravel.is
heimasíða: www.gjtravel.is
GÓÐAR FERÐIR
BERLÍN-DRESDEN-PRAG 01.-07.08.
Flogið til Berlínar og gist þar 2 nætur, þaðan er svo
haldið til Dresden og gist eina nótt og svo áfram til Prag
þar sem gist er 3 nætur. Flogið heim frá Prag.
VERÐ: 81.900,-
Innifalið í verði er flug, flugvallaskattar, gisting í tveggjamanna herbergi,
morgunverður, akstur Berlín-Dresden-Prag, skoðunarferð um Berlín,
skoðunarferð um Dresden, skoðunarferð um Prag, skoðunarferð um
Terezín með hádegisverði og íslensk fararstjórn.
Fararstjóri Emil Örn Kristjánsson
AKSTUR OG SIGLING 01.-12.09.
Ekið til Seyðisfjarðar og siglt um Færeyjar og Hjaltland til
Danmerkur, litast um á Jótlandi, dvalið 5 daga í Tra-
vemünde við Eystrasaltsströnd Þýskalands og farnar
dagsferðir þaðan, ekið um Mósel- og Rínardali og flogið
heim frá Frankfurt.
VERÐ: 105.300,-
Innifalið í verði er sigling, flug, flugvallarskattar, gisting í tveggjamanna
herbergjum (í fjögurra manna klefum í Norrænu) morgunverður á
hótelum, 4 kvöldmáltíðir á Hótel Maritim í Travemünde og allur akstur.
BEINT FLUG TIL PRAG 25.07.-07.08.
VERÐ 18.900
Innifalið í verði er flug og flugvallaskattar.
Háskólaborgin Cambridge er nær
Reykjavík en margan grunar.
Bærinn er einungis hálftíma
lestarferð frá Stansted-flugvelli –
sem þýðir aðeins rúmlega fjög-
urra tíma ferðalag fyrir íbúa höf-
uðborgarsvæðisins. Þetta stutta
ferðalag færir Íslending hins veg-
ar langt aftur í tímann, sagan kall-
ar við hvert fótmál.
Þrátt fyrir að Cambridge sé
mikill háskólabær er vel þess
virði fyrir venjulegan ferðalang
að bregða sér þangað til að upplifa
breska stemningu eins og hún
gerist best. Háskólabyggingarnar
eru hver annarri fallegri og hægt
að skoða þær velflestar utan
prófatíma, en þá er allt lokað og
læst enda mikilvægt að nemendur
geti einbeitt sér að náminu. Elsti
háskólinn er frá miðöldum og síð-
an þá hafa þeir verið stofnaðir
einn af öðrum.
Ýmislegt er hægt að gera í
Cambridge, hægt að rölta um göt-
urnar og lifa sig inn í rómantískt
andrúmsloftið eða bregða sér í
bátsferð um ána Cam. Hún rennur
um borgina og er vinsælt sport
hjá háskólastúdentum að stjaka
sér niður ána á þar til gerðum bát-
um. Á enda bátsins er sléttur pall-
ur þar sem sá sem stjakar stendur
– berfættur ef hann er vanur.
Hægt er að leigja bátana og
spreyta sig í þessu sporti sjálfur –
en tekið skal fram að það er
reyndar ekki eins auðvelt og það
lítur út fyrir að vera.
Falleg þorp eru í nágrenni
Cambridge og er hér sérstaklega
mælt með heimsókn í þorpið
Grantchester sem er í um hálf-
tíma göngufjarlægð frá Cam-
bridge, yfir bleika akra og slegin
tún. Þar er fornfrægur testaður,
the Orchard. Í garði staðarins er
rómantískt að sitja og sötra te
eins og Virginia Woolf og vinir
hennar gerðu. Það má lesa í bæk-
lingi sem er að finna á staðnum.
Ástæðulaust er þó að óttast of
mikið túristaflóð. Enn í dag er
staðurinn vinsæll hjá Cambridge-
stúdentum. Er prófum lýkur í júní
er til að mynda vinsælt að ljúka
gleðskapnum í morgunmat á The
Orchard, morgunmat með jarðar-
berjum og kampavíni.
sigridur@frettabladid.is
Cambridge:
Ferðast aftur í tímann
Passað er upp á stúdenta á prófatíma.
Gagnlegar vefsíður:
bedandbreakfasts-uk.co.uk
hotels-england.co.uk/cambridge.htm
Skemmtilegt að gera:
Ganga til Grantchester,
Fara á barinn The Eagle þar sem
Watson og Crick sátu þegar þeir
uppgötvuðu DNA.
Rölta um bæinn.
Sigla á ánni.
Áin Cam rennur í gegnum Cambridge.
Kings College er ein elsta háskólabyggingin í Cambridge.
Gaman er að rölta um göturnar í Cambridge.
- mest lesna blað landsins
Á LAUGARDÖGUM
Hin hliðin á bílum
Stærsti bílamarkaður landsins
Auglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is