Fréttablaðið - 24.06.2004, Qupperneq 39
ADVOCAAT VIÐURKENNIR MIS-
TÖK Dick Advocaat, þjálfari hol-
lenska landsliðsins, hefur
viðurkennt að það hafi verið mis-
tök að skipta kantmanninum
Arjen Robben út af eftir klukkutí-
ma leik gegn Tékkum á lau-
gardaginn en Hollendingar misstu
tök á leiknum í kjölfar skiptin-
garinnar og töpuðu leiknum, 3–2.
„Ég hefði ekki átt að skipta
Robben út af en ég er samt sann-
færður um að það var rétt hjá
mér að skipta kantmanni út af
fyrir miðjumann. Ég hefði hins
vegar átt að skipta Andy van der
Mayde út af í stað Robbens,“
sagði Advocaat. Hann var
harkalega gagnrýndur bæði af
hollenskum fjölmiðlum og stuðn-
ingsmönnum liðsins fyrir þessa
skiptingu.
FÓTBOLTI Jose Mourinho, hinn
nýráðni knattspyrnustjóri hjá
Chelsea, kveðst munu taka fagn-
andi á móti Steven Gerrard, fyrir-
liða Liverpool, taki hann þá
ákvörðun um að ganga til liðs við
Chelsea.
„Ef hann kemur þá myndi ég
bjóða hann velkominn með opnum
örmum. Ef hann kemur ekki, þá
mun ég samt dást að honum með
Liverpool“, segir Mourinho, en
Steven Gerrard hefur talað opin-
berlega um óánægju sína með
slakan árangur Liverpool undan-
farin ár. Peter Kenyon, stjórnar-
formaður Chelsea, hefur einnig
sagt að félagið muni bjóða í Gerr-
ard ef hann verður fáanlegur. Ef
svo færi þyrftu Chelsea að splæsa
út fjóra milljarða að lágmarki.
„Gerrard er einn af þeim bestu
og við myndum verða mjög
áhugasamir ef Liverpool ákveða
að selja hann. Hann hefur náð vel
saman við Frank Lampard með
miðju enska landsliðsins og
myndi styrkja liðið mikið“, segir
Kenyon. ■
FIMMTUDAGUR 24. júní 2004
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
21 22 23 24 25 26 27
Fimmtudagur
JÚNÍ
Jose Mourinho og Peter Kenyon huga að leikmannamálum Chelsea:
Munu taka Gerrard fagnandi
KÓNGARNIR Á BRÚNNI
Jose Mourinho og Peter Kenyon eru
að hefja tiltektina hjá Chelsea og
líta hýrum augum til Steven Gerrard
SJÓNVARP
12.00 EM í fótbolta á RÚV.
Útsending frá leik Þjóðverja og
Tékka í D-riðli EM í fótbolta sem
fram fór í gærkvöld.
14.00 EM í fótbolta á RÚV.
Útsending frá leik Hollendinga
og Letta í D-riðli EM í fótbolta
sem fram fór í gærkvöld.
16.00 Fótboltakvöld á RÚV.
Endursýndur frá því í gærkvöld
þar sem farið er yfir sjöundu
umferð Landsbankadeildar karla í
fótbolta.
16.25 Spurt að leikslokum á RÚV.
Endursýndur þáttur frá kvöldinu
áður.
17.50 Olíssport á Sýn. Endursýndur
þáttur frá kvöldinu áður.
18.25 EM í fótbolta á RÚV. Bein
útsending frá leik Portúgala og
Englendinga í átta liða úrslitum
EM í fótbolta.
20.00 Inside the USA PGA Tour
2004 á Sýn. Vikuleguur þáttur þar
sem skyggnst er á bak við tjöldin
á bandarísku PGA-mótaröðinni í
golfi.
20.30 Kraftasport á Sýn. sýnt frá
keppninni Sterkasti maður
Íslands sem fram fór á dögunum.
21.00 European PGA Tour 2003 á
Sýn. Sýnt frá Opna St Omer-mót-
inu á evrópsku mótaröðinni í golfi
sem fram fór á síðasta ári.
22.00 Olíssport á Sýn.
22.15 Spurt að leikslokum á RÚV.
23.15 Landsbankadeildin á Sýn.
Endurtekinn þáttur um fyrstu sex
umferðir Landsbankadeildar karla
í fótbolta.
Körfuboltalandsliðið:
Nýtt gólf vígt
í Borgarnesi
KÖRFUBOLTI Borgnesingar vígja
nýtt og glæsilegt parkettgólf í
íþróttahúsinu sínu í kvöld þegar
karlalandslið Íslands og Belgíu
eigast þar við í vináttulandsleik.
Leikurinn hefst klukkan 21 þar
sem að KKÍ vildi ekki spila leik-
inn á sama tíma og leikur Portú-
gals og Englands fer fram í átta
liða úrslitum Evrópukeppninnar í
knattspyrnu.
Það er mikill hugur í Skalla-
grímsmönnum sem unnu sér aftur
sæti í úrvalsdeild karla síðasta
vetur og fyrir þá sem eru vanir
gamla gólfinu verða þetta mikil
viðbrigði enda breytir parkettið
heildarsvip hússins mikið. Eftir
að parkett er komið á gólf íþrótta-
hússins í Borgarnesi eru fimm úr-
valsdeildarfélög enn með dúk á
sínum húsum en það eru KR, ÍR,
Grindavík, Tindastóll og Fjölnir.
Sjötta liðið, Hamar, spila helming
leikja sinna á parketti á Selfossi
en hinn helminginn á dúk hjá sér í
Hveragerði en Hamarsmenn eru
nú komnir í samstarf við Selfyss-
inga og spila undir merkjum
Hamars/Selfoss næstu tímabil. ■
■ EM Í FÓTBOLTA