Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.06.2004, Qupperneq 44

Fréttablaðið - 24.06.2004, Qupperneq 44
36 24. júní 2004 FIMMTUDAGUR MORISSETTE Á FRUMSÝNINGU Söngkonan Alanis Morissette var glerfín á frumsýningu söngvamyndarinnar De Lovely í New York fyrir skömmu. Myndin er uppfull af lögum eftir tónskáldið Cole Porter. [ TÓNLIST ] UMFJÖLLUN Ég var helvíti lengi að tengja mig við þessa. Sveitin er bresk og það fyrsta sem hélt mig frá því að ná tengslum var hversu keimlík öðrum breskum sveitum hún er. Er sprottin frá sömu rótum og Starsailor, Snow Patrol, Coldplay, Travis og Doves. Og það versta er að hún minnir mig á þær allar, ekki það að þessar sveit- ir séu allar slæmar heldur sárvantar þessa sérstöðu til þess að heilla strax. Bara enn ein kindin í sauða- húsið í augum borgarbarnsins. Bændur þekkja það svo vel að því meira sem maður er í kringum kindur, því betur fer maður að þekkja þær í sundur. Þannig að við þriðju hlustun fór þessi frumraun Keane að ná til mín. Hér eru nokkrar sterkar lagasmíðar, svo sem „We Might as Well Be Strangers“, „Everybody’s Chang- ing“ og lokalagið „Bedshaped“, en þetta gætu alveg eins verið lög með Coldplay eða Travis. Meeeeee. Þetta er samt frekar gallalaus kind þegar maður skoðar hana gaumgæfilega. Góður flutningur, góður söngur, góður hljómur og ágætar útsetningar. Það er samt ekkert sem fangar athyglina. Ullin er bara eins og á hinum kindunum, augnaráðið jafn tómt og laust við alla dulspeki. Að sama skapi er hún gjörsamlega laus við tilgerð og óþar- fa töffarastæla. Þessi kind er bara beint úr kúnni? Hmmm, er hægt að segja svoleiðis? Æi, ég held að ég sé bara kominn með leið á kindum. Ég er meira í pandabjörnunum í augnablikinu og svo var ég að frétta af mauraætu í Afríku sem getur labbað á vatni. Birgir Örn Steinarsson Meeeeeeeeee KEANE: HOPES AND FEARS ■ KVIKMYNDIR Söngvarinn goðsagnakenndi Bob Dylan hefur verið gerður að heið- ursdoktor í tónlist við St. Andrews- háskólann í Skotlandi. Þetta er að- eins í annað sinn sem Dylan þiggur heiðursnafnbót sem þessa. Síðast var það árið 1970 þegar Princeton- háskóli í Bandaríkjunum heiðraði hann. Dr. Brian Lang, skólastjóri St. Andrews, segir að Dylan hafi verið mikilvægur tákngervingur 20. aldar og textar hans séu enn hluti af vit- und okkar. „Við erum mjög ánægð með hafa fengið tækifæri til að heiðra svona merkan listamann,“ sagði Lang. Bob Dylan heitir réttu nafni Ro- bert Allen Zimmerman. Hann fædd- ist í Minnesota árið 1941 og fékk fljótt áhuga á tónlist eftir að hafa hlustað á rokkstjörnur eins og Elvis Presley, Jerry Lee Lewis og Little Richard. Í háskóla tók hann upp listamannsnafnið Bob Dylan eftir velska ljóðskáldinu Dylan Thomas. Hann hætti í skólanum 1960 og ákvað að einbeita sér að tónlistinni. Eftir það varð hann einn dáðasti textahöfundur og söngvari heims auk þess sem hann veitti hippunum á sjöunda áratugnum mikinn inn- blástur. Hafði hann mikil áhrif á hljómsveitir eins og Bítlana og Roll- ing Stones. Á meðal þekktustu laga Dylan eru Like a Rolling Stone, Mr. Tambourine Man, Blowin’ In the Wind og Knocking on Heaven’s Door. ■ [ TÖLVULEIKIR ] VINSÆLUSTU TÖLVULEIKIRNIR 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 SingStar PS2 H. Potter & Prisoner of Azkaban ALLAR TÖLVUR Euro 2004 ALLAR TÖLVUR Gran Turismo 4: Prologue PS2 C.-Strike: Condition Zero PC Need for Speed Underground ALLAR TÖLVUR Tony Hawk’s Underground ALLAR TÖLVUR Sims Deluxe Edition PC Battlefield Vietnam PC Sims Double Deluxe PC Transformers Limited Edition PS2 Ratchet & Clank 2 PS2 Baldurs Gate: Dark Alliance 2 PS2 & XBOX WarCraft 3: Battlechest PC Simpsons Hit & Run ALLAR TÖLVUR SINGSTAR Þessir tveir eru orðnir miklu betri söngvarar eftir að SingStar-leikurinn kom út á Playsta- tion 2, enda eru þeir alltaf að syngja í vinn- unni. Þeir stefna á frama í Idol-keppninni. TOPP 15 - SÖLUHÆSTU TÖLVULEIKIR SKÍFUNNAR - VIKA 25 Leikkonan Liv Tyler er ófrísk af sínu fyrsta barni. Tyler er gift söngvaranum Royston Langdon úr hljómsveitinni Spacehog. Eiga þau von á barninu í vetur. Tyler, sem er 26 ára, er dóttir Steven Tyler, söngvara Aero- smith. Hún vakti heimsathygli fyrir hlutverk sitt sem álfa- drottningin Arwen í þríleiknum um Hringadróttinssögu. Á meðal fleiri mynda sem hún hefur leik- ið í eru Jersey Girl og That Thing You Do. ■ TYLER OG AFFLECK Liv Tyler ásamt Ben Affleck á frumsýningu myndarinnar Jersey Girl. Liv Tyler ófrísk Diaz vill stofna fjölskyldu Leikkonan Cameron Diaz vill gera hlé á kvikmyndaferli sínum til að stofna fjölskyldu með kærasta sín- um, Justin Timberlake. „Ég er komin á þann aldur að þráin eftir barni fer að vaxa,“ sagði Diaz, sem verður 32 ára í ágúst. „Ég trúi því núna að maður eigi aðeins að giftast einu sinni á ævinni og það eigi að vara alla ævi.“ Diaz er um þessar mundir stödd í Ástralíu með Timberlake í tón- leikaferð hans. „Það er ekki hægt að vera í sambandi án þess að sjást reglulega. Það verður aldrei neitt úr víðáttusamböndum.“ ■ ■ KVIKMYNDIR KÆRUSTUPAR Diaz og Justin á körfuboltaleik með Los Angeles Lakers. Diaz er farin að hugsa um barneignir Sekkjapípuleikarinn Lorne Cousin nýtur lífsins þessa dagana því hann er staddur á tónleikaferð með Madonnu sem stendur yfir í fimm mánuði. Cousin, sem er 31 árs, var að vinna sem lögfræðingur í Edin- borg þegar Madonna hafði sam- band við hann og bað hann um að spila í tónleikaferðinni. Söngkonan hafði heyrt í honum í brúðkaupi vinkonu sinnar, Stellu McCartney, á síðasta ári og ákvað að fá hann með í túrinn. Að sögn föður hans, Alastair, nýtur Cousin hverrar mínútu í tón- leikaferðinni enda uppi á sviði með einni vinsælustu söngkonu verald- ar. „Ég talaði við hann fyrir nokkrum dögum og hann virtist hafa mjög gaman af tónleikaferð- inni. Hann hefur aldrei skemmt sér eins vel og honum semur vel við Madonnu,“ sagði hann. Cousin mun spila með Madonnu á ferð hennar um Bandaríkin og Kanada til loka júlí en fer þá í tíu daga frí. Eftir það mætir hann aft- ur til leiks og spilar með söngkon- unni víðs vegar um Evrópu. ■ Nýtur hverrar mínútu með Madonnu MADONNA Réð sekkjapípuleikarann Lorne Cousin til starfa eftir að hafa séð hann spila í brúð- kaupi Stellu McCartney. Dylan heiðursdoktor í Skotlandi BOB DYLAN Bob Dylan flytur eitt af sínum þekktustu lögum á tónlistarhátíð í Bandaríkjunum fyrir tveimur árum. ■ TÓNLIST ■ TÓNLIST Svo gæti farið að leikarinn Johnny Depp muni leika rokkarann Ozzy Osbourne í nýrri mynd um ævi hans. Að sögn Sharon, eiginkonu Ozzy, hefur ákvörðun ekki verið tekin í málinu en Depp er sagður hafa mikinn áhuga á hlutverkinu. Sharon hefur einnig gefið í skyn að Ozzy, sem sló í gegn með hljóm- sveitinni Black Sabbath, ætli að setjast í helgan stein eftir nokkur ár. Johnny Depp er mjög vinsæll þessa dagana eftir hlutverk sitt í Pirates of the Caribbean. Á meðal fleiri mynda hans eru Chocolat, Ed- ward Scissorhands og Ed Wood. ■ Depp vill leika Ozzy JOHNNY DEPP Depp mun hugsanlega fara með aðalhlutverk- ið í mynd um ævi rokkarans Ozzy Osbourne. ■ KVIKMYNDIR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.