Fréttablaðið - 24.06.2004, Side 48
40 24. júní 2004 FIMMTUDAGUR
■ ÞINGBLÓT
■ ■ TÓNLEIKAR
12.00 Vilborg Helgadóttir sópran-
söngkona og Kjartan Sigurjónsson
orgelleikari koma fram á fyrstu
hádegistónleikum sumarsins á
fimmtudögum í Hallgrímskirkju.
Tónleikarnir eru hluti af dagskrá
tónleikaraðarinnar Sumarkvöld við
orgelið sem hófst um síðustu helgi
og stendur til 15. ágúst. Á efnisskrá
þeirra Vilborgar og Kjartans er
aðallega íslensk tónlist.
20.30 Sænski kammerkórinn Cant-
ando heldur tónleika í Akureyrar-
kirkju ásamt þeim Jakobi Petrén
píanóleikara og Ingibjörgu Guð-
laugsdóttur básúnuleikara.
20.30 Jazztríó Andrésar Þórs leik-
ur á sumartónleikum á Stykkis-
hólmskirkju. Andrés Þór leikur á
gítar, Sigurður Flosason á alt
saxafón og Róbert Þórhallsson á
kontrabassa.
21.00 Hljómsveitin Hudson Wayne
verður með tónleika í Klink og
Bank ásemt þeim Paul Lydon og
Myrkva T. Þetta eru fyrstu tónleik-
arnir í nýrri tónleikaröð Klink og
Bank, sem verður annan hvern
fimmtudag í sumar.
21.30 Hljómsveitin Hljóð í skrokk-
inn leikur swingmúsik á heitum
fimmtudegi í Deiglunni á Akur-
eyri. Hljómsveitina skipa Óskar
Guðjónsson á saxófón, Ólafur
Stolzenwald á kontrabassa,
Ómar Guðjónsson á gítar og Erik
Qvick á trommur.
Færeyska hljómsveitin Týr spilar í
Sjallanum á Akureyri ásamt ís-
lensku hljómsveitinni Douglas
Wilson.
Ég og Ísa rokka á Grand Rokk.
Ragnheiður Gröndal syngur á djass-
hátíð á Egilsstöðum ásamt hljóm-
sveit sinni, sem skipuð er Jóni
Páli Bjarnasyni á gítar, Hauki
Gröndal á saxófón og hinum
norska Lars Tormod Jenset á
kontrabassa.
■ ■ LEIKLIST
19.30 Söngleikurinn Fame frum-
sýndur í Smáralind.
21.00 Leiklistarhátíðin Leikur einn
í Hömrum á Ísafirði hefst með
sýningu á einleiknum Steinn
Steinarr. Leikari er Elfar Logi
Hannesson og leikstjóri Guðjón
Sigvaldason. Aðgangur að hátíð-
inni er ókeypis.
■ ■ SKEMMTANIR
Búðarbandið skemmtir á Hressó.
■ ■ FYRIRLESTRAR
17.00 Kanadíski rithöfundurinn Lisa
Moore kemur fram í Norræna
húsinu, segir frá rithöfundarferli
sínum og les úr verkum sínum.
■ ■ SAMKOMUR
18.30 Hið árlega Þingblót ásatrúar-
manna við Lögberg á Þingvöllum
verður haldið í kvöld. Safnast verð-
ur saman við Valhöll og þaðan
gengið í skrúðgöngu að Lögbergi
þar sem allsherjargoði, Hilmar Örn
Hilmarsson, helgar Þingblótið. Nýir
goðar vinna eiðstafi á blótinu og
eftir hátíðarstundina verður gengið
að Valhöll aftur þar sem haldin
verður blótveisla.
Að venju halda ásatrúarmenn þing-
blót sitt að Þingvöllum á þórsdegi í
tíundu viku sumars. Þessa hefð má
rekja allt aftur til þinghalds til
forna, en tímasetningin er miðuð
við sumarsólstöður og seinni tíma
ásatrúarmenn hafa frá byrjun
haldið þennan sið í heiðri.
„Það má rekja til þess að Þor-
steinn Guðjónsson og Sveinbjörn
Beinteinsson og fleiri fóru að koma
saman á Þingvöllum á þessum degi
upp úr 1960,“ segir Hilmar Örn
Hilmarsson allsherjargoði.
Athöfnin sjálf fer fram með
nokkuð hefðbundnum hætti. Safn-
ast verður saman við Valhöll og
þaðan gengið í skrúðgöngu að Lög-
bergi þar sem allsherjargoði helg-
ar þingblótið. Að því búnu verður
innsetning nýrra goða, sem vinna
eiðstafi sína.
Þetta árið eru það þau Jóhanna
Harðardóttir, sem verður formlega
sett í embætti Kjalnesingagoða, og
Sigurjón Þórðarson sem tekur
formlega við sem Hegranesgoði,
en bæði hafa þau gegnt þeim störf-
um um hríð þó formleg innsetning
hafi ekki farið fram fyrr en nú.
Einnig verður Tómas Alberts-
son Seiðgoði, en það er nýtt emb-
ætti sem ásatrúarfélagið hefur
ákveðið að koma á fót.
„Þetta er ákveðið fræðimanna-
starf, hann verður að segja má,
goði fræðanna,“ segir Hilmar Örn.
„Tómas hefur gefið sig mikið að
því að stúdera galdra og seið. Við
höfum ákveðið að vekja upp gaml-
ar hefðir í sambandi við helgisiði
og fara út í ákveðna innri vinnu í
sambandi við það.“
Að loknum þessum athöfnum
tekur síðan við veisla mikil í Val-
höll.
„Það góða við blót er að helgi-
haldið er líka veisla sem fer fram á
eftir. Þá verður gengið að Valhöll
og þar bíða manna kræsingar.“
Öllum er heimilt að mæta í gleð-
skapinn, enda segir Hilmar Örn
það oft hafa gerst að „ítalskir
ferðamannahópar hafa komið og
uppgötvað heiðingjann í sér alveg
óvænt.“
Ásatrúarfélagið er ungt trúfé-
lag og enn í mótun. Starfsemin hef-
ur smám saman orðið viðameiri
eftir því sem fjölgað hefur í félag-
inu.
„Ég held að við séum það trúfé-
lag hér á landi sem er í öruggustum
vexti. Á síðasta ári var fjölgun um
nærri 25 prósent og alls eru félag-
ar farnir að nálgast 900 manns.“ ■
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
21 22 23 24 25 26 27
Fimmtudagur
JÚNÍ
Íslenskt og öðruvísi kántrí
Ný tónleikaröð er að hefjast í húsa-
kynnum Klink og Bank við Þver-
holt í Reykjavík. Tónleikarnir
verða annan hvern fimmtudag í
sumar, en fyrstir til að stíga á stokk
verður hljómsveitin Hudson Way-
ne, sem er íslensk og óhefðbundin
kántrísveit.
Tónleikaröðin verður með því
fyrirkomulagi að hljómsveit
kvöldsins velur með sér hljóm-
sveitir eða aðra listamenn sem
gesti á hverjum tónleikum.
Í kvöld ætlar Hudson Wayne að
fá til liðs við sig þá Paul Lydon og
Myrkva T.
Paul Lydon hefur verið viðrið-
inn íslenskt tónlistarlíf í nokkur ár
og gaf nýlega út plötuna Vitlaust
hús, við góðar undirtektir. Myrkvi
T er hins vegar sólóverkefni Andra
Ásgrímssonar hljómborðsleikara
Leaves, en áður var hann í hljóm-
sveitinni Náttfara.
Annars er það að frétta af Hud-
son Wayne að hljómsveitin er þessa
dagana að taka upp sína fyrstu
plötu í fullri lengd, og er áætlað að
hún komi út í haust. Einnig verður
gefin út smáskífa á sjötommu nú í
sumar. ■
■ ■ ÚTIVIST
20.00 Skógræktarfélag Reykjavík-
ur hefur veg og vanda af
fimmtudagsgöngu skógræktar-
félaganna í kvöld. Að þessu
sinni verður Norska húsið í
Heiðmörk skoðað. Farið verður
frá Borgarstjóraplaninu við
Heiðarveg, skammt austan
vegamótanna við Hjallaveg.
Leiðsögumenn verða Ólafur
Erling skógarvörður í Heið-
mörk, Auður Jónsdóttir garð-
yrkjufræðingur og Þorvaldur S.
Þorvaldsson.
20.00 Steindór Andersen kvæða-
maður verður með fimmtudags-
göngu á Þingvöllum þar sem
hann ætlar að fræða gesti um
rímnakveðskap og rifjar upp Öl-
kofrasögu. Gangan hefst við
Flosagjá og gengið verður um
Skógarkot inn í Ölkofradal. Að
lokinni göngunni um klukkan 10
eru kvöldbænir í Þingvallakirkju í
umsjón Þingvallaprests. Aðgangur
er ókeypis.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/Þ
Ö
K
ÞINGBLÓT ÁSATRÚARMANNA
Hið árlega þingblót ásatrúarmanna verður haldið í kvöld á Þingvöllum. Myndin er tekin á þingblótinu í fyrra, en við það tækifæri tók
Hilmar Örn Hilmarsson við starfi allsherjargoða
HUDSON WAYNE
Verður með tónleika í Klink og Bank í
kvöld og hefjast þeir klukkan 21.
Ásatrúin á Þingvöllum