Fréttablaðið - 05.07.2004, Page 32
16 5. júlí 2004 MÁNUDAGUR
MARÍUBAKKI Í einkasölu, 4ra herbergja endaíbúð á 3. hæð í
fjölbÿlishúsi. 3 svefnherbergi, stofa með útgang á suður svalir, baðherbergi
með kari, flísalagt í hólf og gólf. Eldhús með eldri innréttingu, þvottahús og
búr innaf eldhúsi. Hús verður málað í sumar á kostnað seljenda. Áhv. 4,6m.
V. 13,5 m. 2461
ENGJASEL - GLÆSILEG ÍBÚÐ Stórglæsileg mikið end-
urnÿjuð 4ra herbergja íbúð á 2. hæð ásamt stæði í bílageymslu. 3 svefnher-
bergi með skápum í tveim, parket. Glæsileg nÿ kirsuberjainnrétting í eldhúsi,
nátturusteinn á gólfi. Nÿtt olíuborið parket á gólfum. Þvottaherbergi í íbúð.
Suður svalir. Áhv. 8 m.V. 14,8 m. 2420
HÁAKINN - HAFNARFIRÐI Í einkasölu sérlega skemmtilegt
sérbÿli á jarðhæð í þessu rólega og barnvæna hverfi. Íbúðin skiptist í 2 rúm-
góð herbergi, stofu, baðherbergi, eldhús og hol. Hús í góðu standi að utan
og töluvert endurnÿjað að innan. Áhv. 4 m. V. 12,5 m. 2494
KLUKKURIMI - 3JA Mjög góð 89 fm 3ja herbergja íbúð á annar-
ri hæð í fjölbÿli. snyrtileg íbúð með 2 svefnherbergjum, stofu með útgengi á
suðursvalir. íbúðin er laus. V. 12,9 m. 2482
LAUTASMÁRI - 3JA HERB Mjög góð 3ja herbergja íbúð á 2.
hæð í litlu fjölbÿlishúsi. Íbúðin er með nÿju parketi, flísar á baði. Góð eign á
eftirsóttum stað. V. 13,6 m. 2472
ÞINGHOLTSSTRÆTI - LAUS STRAX Nÿ um 62 fm
studioíbúð ( hægt að gera herbergi ) ásamt 8 fm geymslu. Góð innrétting í
eldhúsi, baðherbergi með sturtu, flísalagt í hólf og gólf. Íbúðin skilast fullfrá-
gengin án gólfefna. V. 12,9 m. 2003
eign.is - Ármúli 20 -
sími 533 4030 - fax 533 4031 www.eign.is - eign@eign.is
VEGNA MJÖG MIKILLAR SÖLU UNDANFARIÐ VANTAR
OKKUR Á EIGN.IS ALLAR TEGUNDIR EIGNA Á SKRÁ NÚ ÞEGAR,
SKOÐUM OG VERÐMETUM SAMDÆGURS; HAFIÐ SAMBAND
VIÐ ANDRES PÉTUR EÐA ELLERT BRAGA Á SKRIFSTOFU S. 533-
4030. +VIÐ VINNUM FYRIR ÞIG !!
LAUGAVEGUR - ŸMIS
SKIPTI MÖGULEG Mjög
skemmtileg 71,5 fm 3ja herbergja
íbúð á jarðhæð í bakhúsi við Lauga-
veginn. Parket á herbergjum flísar á
baði. Þvottahús í íbúð. Áhv. um 3,8
millj. hagstætt lán. Íbúðin er ósam-
þykkt. V. 7,5 m. 2436
HRAUNBÆR Vorum að fá í
sölu litla samþykkta einstaklingsíbúð
á jarðhæð á góðum stað í Hraunbæn-
um. Herbergið er með parket, lítil eld-
húsinnrétting. Baðherbergi með stur-
tu. Sér geymsla. Hús í góðu standi.
Áhv. húsbr. + viðbl. 2,6 m. V. 4,4 m.
2488
ÁSVALLAGATA - ÚT-
LEIGA Höfum fengið í sölumeð-
ferð í vesturbænum tvö nÿ standsett
herbergi með öllum húsbúnaði, eld-
hús aðstöðu í báðum. Sameiginlegt
baðherb. Leigutekjur samtals krónur
80 þús. á mánuði. Áhv. 3,2 m. V. 9,3
m. Uppl. gefa Andres og Guð-
mundur 2449
Eimskipafélagshúsið við Pósthús-
stræti mun á næstu mánuðum
verða tekið í gegn að innanverðu
af nýjum eigendum, Heimshótel-
um ehf., sem eru í eigu Heims-
ferða. Hið sama gildir um Gjald-
heimtuhúsið við Tryggvagötu en
til stendur að tengja þessi tvö hús
saman og breyta í 70 herbergja
lúxushótel. Saman eru þau yfir
5.000 fermetrar að stærð. Að sögn
Tómasar Gestssonar, aðstoðar-
framkvæmdastjóra Heimsferða,
verður ekki hróflað við Eimskipa-
félagshúsinu að utanverðu, nema
hvað merkið verður hulið. Innvið-
irnir taka hinsvegar breytingum,
eins og vænta má og er fyrirtækið
Arkís að teikna þær upp.
Afgreiðslusalur Eimskipa á 2.
hæð er þó friðaður en hann er
prýddur útskurði Stefáns Eiríks-
sonar myndskera.
Guðjón Samúelsson, húsa-
meistari ríkisins, teiknaði Eim-
skipafélagshúsið sem var byggt á
árunum 1919–1921. Það var eitt
stærsta hús borgarinnar á þeim
tíma og hið fyrsta hér á landi með
lyftu. Húsið var upphaflega 370
fermetrar en á árunum 1977 til
1979 var það stækkað um 300 fer-
metra og var Halldór H. Jónsson
arkitekt að þeirri byggingu.
Eimskipafélagshúsið verður hótel:
Ekki hróflað við útlitinu
nema merkið verður hulið
Nafn og vinnustaður:
Ásta G. Harðardóttir hjá Þingholt fasteignasölu.
Hversu lengi hefur þú verið fasteignasali?
Síðan um síðustu áramót.
Hvers vegna gerðistu fasteignasali?
Það hentaði mér vel með náminu.
Skemmtilegast við starfið?
Fjölbreytileikinn og viðskiptavinirnir.
Mér finnst gaman að aðstoða fólk við að finna ný heimili.
Fyrsta eignin sem þú seldir?
Það var lítil og sæt risíbúð í Ásbúðartröð í Hafnafirði.
Uppáhaldshverfið?
Sennilega Hlíðarnar en það eru svo mörg falleg hverfi í Reykjavík.
Hvar myndir þú vilja búa ef ekki í Reykjavík?
Því ekki Selfossi, það er stutt frá Reykjavík.
Flottasta húsið?
Ráðhúsið hefur alltaf haft rosalegan sjarma í mínum augum,
skemmtilega hallærislegt.
Hvernig myndir þú lýsa þinni íbúð?
Hreiðrið mitt er heimilislegt og kósí.
Fasteignasalan Ás er nú
með á sölu bjarta og fallega
efri sérhæð í Dvergholti 17
í Hafnarfirði. Sérhæðin er
101,6 fermetrar ásamt 31,1
fermetra bílskúr og er stað-
sett í góðu tvíbýlishúsi á
frábærum útsýnisstað á
Holtinu.
Forstofan er með flíkum
og skápum og þvottahúsið er
inn af henni. Í þvottahúsi eru
flísar á gólfi og útgangi.
Holið er með parketti og
eldhúsið með góðri innrétt-
ingu og helluborði. Einnig er vifta,
ofn í vinnuhæð, stæði fyrir upp-
þvottavél og flísar í gólfi í eldhús-
inu. Parkett er á stofunni og þaðan
er gengið út á vestursvalir með
glæsilegu útsýni.
Ljós innrétting prýðir baðher-
bergið og er þar baðkar, sturta og
flísar á gólfi. Þrjú svefnherbergi
eru í íbúðinni og eru þau með park-
etti á gólfum og skápar eru í hjóna-
herberginu.
Geymsluloft er yfir hluta af
íbúðinni og bílskúrinn er full-
búinn með hita, rafmagni, vatni og
hurðaopnara. Ásett verð er 18,5
milljónir. ■
Björt og falleg sérhæð:
Á frábærum
útsýnisstað á Holtinu
Eimskipafélagshúsið verður hótel:
Ekki hróflað við
útlitinu nema merkið
verður hulið
Íbúðin er í góðu tvíbýlishúsi á
frábærum útsýnisstað á Holtinu í
Hafnarfirði.