Fréttablaðið - 27.07.2004, Síða 13
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 4
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 173 stk.
Keypt & selt 15 stk.
Þjónusta 32 stk.
Heilsa 6 stk.
Skólar & námskeið 1 stk.
Heimilið 8 stk.
Tómstundir & ferðir 11stk.
Húsnæði 23 stk.
Atvinna 16 stk.
Tilkynningar 2 stk.
Bílveiki er ekkert gamanmál
BLS. 2
Góðan dag!
Í dag er þriðjudagurinn 27. júlí,
209. dagur ársins 2004.
Reykjavík 4.19 13.34 22.47
Akureyri 3.44 13.19 22.51
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
heilsa@frettabladid.is
Í rannsókn sem Erik Brynjar
Schweitz Eiríksson læknanemi
gerði nýlega í samvinnu við Slysa-
skrá Íslands, landlæknisembættið
og fleiri kemur fram að slysum á
börnum á aldrinum 0–4 ára hefur
verulega fækkað í heimahúsum
og frítíma fjölskyldunnar. Tíðni
frítíma- og heimaslysa barna er
nú lægri en hjá Dönum en hing-
að til hefur Ísland verið talið með
hæstu tíðni barnaslysa á Norð-
urlöndum og Danir komið þar
næst á eftir. Enn sem
fyrr er tíðnin lægst
hjá Svíum og
sýnir það að
hér á landi er
hægt að gera
enn betur.
Hreyfingarleysi veldur enn
fleiri ótímabærum dauðsföllum en
reykingar, ef marka má rannsóknir
sem gerðar hafa verið í Hong
Kong. Kannaður var ferill 24.079
karla og kvenna yfir 35 ára aldri er
létust á árinu 1998. Niðurstaðan
var að hreyfingarleysið varð um
6.400 manns að bana en fórnar-
lömb reykinganna voru um 5.700.
Lítil grænmetis- og ávaxta-
neysla er meðal sjö helstu
áhættuþátta ótímabærra dauðs-
falla í Evrópu samkvæmt nýjustu
skýrslu frá Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnuninni. Þar segir að
hægt sé að bjarga 2,7 milljónum
mannslífa á hverju ári með því
einu að auka neyslu grænmetis
og ávaxta. Fjölbreytt matar-
æði með miklu af grænmeti
og ávöxtum tryggir næga
neyslu flestra
vítamína og
s t e i n e f n a ,
fæðutrefja og
ýmissa annarra
hollustuefna. Auk
þess geta grænmeti
og ávextir komið í stað-
inn fyrir fæðutegundir sem inni-
halda mikla mettaða fitu, sykur
eða salt.
Mikill sviti getur að sjálfsögðu
verið til mikils ama. Nýlega leyfði
FDA (Lyfjaeftirlit BNA) notkun
Botox gegn einkennum primary
axillary hyperhydrosis. Einstak-
lingar með þennan kvilla fram-
leiða allt að fjórum til fimm sinn-
um venjulegt magn af svita undir
handarkrikanum. Botox virkar
gegn þessum kvilla með því að
lama tímabundið taugar sem
örva svitakirtlana. Meðferðina
þarf að endurtaka á um sex
mánaða fresti.
Smáauglýsingar
á 995 kr.
visir.is
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Liggur í loftinu
Í HEILSU
Týndur persi
Hreinræktaður ljósbrúnn persi tapaðist
frá Jórsölum 8 í Kópavogi miðviku-
daginn 21/7 merktur Rascal, inniköttur
sem ratar ekki heim. Fólk er beðið um
að kanna í bílskúrum og foreldrar ath.
hvort börn ykkar hafi hugsanlega séð
hann. Fundarlaunum heitið, uppl. í s.
565 7442 og 897 4426 eða á
martom@simnet.is
Kawasaki Vulkan 800 árg. ‘97. Til sölu.
Tilboð. Uppl. í s. 892 5075.
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TÍSKA NEYTENDUR o.fl.
þú færð líka allt sem
þig vantar á
„Ég stunda nú enga reglubundna líkams-
rækt en mér finnst gaman í frisbí, körfu-
bolta og fótbolta,“ segir Karl Ingi Karlsson,
söngvari og forritari í hljómsveitinni Dáða-
drengir.
„Ég er meira í svona yndislega asnaleg-
um leikjum. Eins og fótbolta sem er frekar
asnalegur því maður svitnar og svoleiðis en
hann er mjög sjarmerandi í asnaleika sín-
um. Síðan fer ég stundum í göngutúr með
fjölskylduhundinn sem er nú svo ekkert
þrek, bara útivera. Ég fer helst í leiki eftir
vinnu og týni mér alveg í þeim,“ segir Karl
en þeir Dáðadrengir fara oft saman í leiki og
finna samheldni í frisbíi. Það hittir svo
skemmtilega á að Dáðadrengir voru að gefa
út nýtt lag sem heitir Bara smá og mynd-
bandið við það er einmitt íþróttamyndband.
„Þetta er svona halda í formi-myndband. Í
myndbandinu erum við í fótbolta og á
hlaupahjóli. Reyndar er lagið bara tvær
mínútur en það eru gæðin sem skipta máli,
ekki lengdin,“ segir Karl en Dáðadrengir
eru sem stendur að vinna í upptökum á nýrri
plötu.
„Ég fer bara í leiki á sumrin en á
veturna held ég mér í formi með því að
spila tölvuleiki og auðvitað að spila á tón-
leikum. Ég á það til að svitna mjög mikið,
sérstaklega ef ég er ekki búinn að spila
körfubolta lengi. Þá er ég alveg búinn eftir
eitt gigg. Það er svo töff þegar stórhljóm-
sveitir eins og Linkin Park eru með súrefn-
iskúta á sviðinu. Ég þarf eiginlega að redda
mér svoleiðis. Ég bara veit ekki um neina
verslun á Íslandi sem selur svoleiðis,“ seg-
ir Karl sem hugsar þó ekkert sérstaklega
um mataræðið. „Ég hugsa ekki um matar-
æðið út frá hollustu heldur frekar út frá
peningum. Ég er forfallinn sælkeri og
borða mikið af því sem mér finnst gott. Ég
er mjög heppinn því ég brenni hratt og því
hef ég aldrei lent í vandræðum með að vera
of feitur. Ég ætti samt að passa mig og ég
kvíði þeim degi meira en dauðadegi mínum
þegar ég þarf að hafa áhyggjur af þyngd-
inni. Ég pæli ekki mikið í því sem er hollt
og óhollt. Ég borða bara það sem ég vil
þangað til ég gubba. Þá legg ég mig aðeins
og byrja svo að borða aftur,“ segir Karl
sem finnst þó afskaplega frískandi og
skemmtilegt að fara út í leiki eftir langar
hljómsveitaræfingar.
lilja@frettabladid.is
Leikir eru frískandi á sumrin:
Karli Inga Karlssyni finnst mjög gaman í frisbí og segir þann leik sameina hljómsveitina Dáðadrengi.
Bæði yndislegir
og asnalegir
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N