Tíminn - 15.12.1972, Qupperneq 2
2
Rowentðt
Straujárn, gufustraujárn,
brauðristar, brauðgrill,
djúpsteikingarpottar,
fondue-pottar, hárþurrkur,
hárliðunarjárn og kaffivólar.
Heildsölubirgðir:
cJ-laUdór -€lrík<><»onJl <£°-
Ármúla 1 A, sími 86-114
Bréf frá
lesendum
Afmælishátiðin
mikla
Senn liður að stærstu
afmælishátið veraldar, sem
kölluð er jólin. Það hefir verið
mikið, og verður enn margt
skrifað um þessa hátiö, en það er
tvennt, sem mig langar til að
minnast á, og það er þá að sjáif-
sögðu afmælisbarnið sjálft, Jesús
Kristur.
Fáir eða enginn hefir verið eins
umdeildur i veröldinni sem þessi
maður, og nú á siðari árum hefir
mest verið deilt um það hvers son
hann væri. Eins og öllum er
kunnugt, sem bibliuna hafa lesið,
er hann kallaður Guðs sonur. En i
bibliunni stendur lika, að allir
menn séu Guðs börn og það er
ekki fullkominn skýring. En svo
kemur höfuðkenningin, og hún er
sú,að faðirinn sé ekki mannlegur,
heldur sé hann getinn af heilögum
anda.
Meðan fólk hafði hina svo-
kölluðu bókstafstrú, þ.e. trúði öllu
þvi sem i bibliunni stóð, og trú-
frelsið var ekki meira en svo,að
ekki mátti véfengja neitt, sem i
hinni helgu bók stóð, þorði enginn
að láta aðra skoðun i ljós. Það
hefir aftur á móti skeö núna á
siðari árum, að fólkið er farið að
ræða opinberlega um ýms þau
atriði, sem i bibliunni standa, og
véfengja þau. Hafa margir látið
það sem fullyrðingu frá sér fara,
að faðir hans hafi verið mennskur
maður, og hefir mér dottið oft i
hug setning, sem gömul kona
sagði við mig, einu sinni vestur á
Snæfellsnesi.
MÍR auglýsir:
Til þess að auðvelda yöur að fylgjast með og kynnast lifi
Sovétþjóðanna i dag og viðhorfi þeirra til alþjóðamáia,
bjóöum vér yöur að gerast áskrifandi aö eftirtöldum tima-
ritum, einu eöa fleirum:
SOVIET UNION
Myndskreytt timarit, sein kemur út mánaðarlega. Segir
frá Sovétríkjunum i lifi og listum. Kemur út m.a. á ensku,
þýíku og frönsku. Askriftargj. kr. 220.00 á ári
SPORT IN THE USSR
Myndskreytt mánaðarrit um íþróttir og iþróttaþjálfun á
ensku, frönsku og þýzku. Askriftargjald kr. 122.00 á ári.
SOVIET LITTERATURE
flytur greinar um bókmenntir. Kemur út mánaðarlega
m.a. á ensku og þý/.ku. Askriftargjald kr. 220.00 á ári.
SOVIET WOMAN
Myndskreytt mánaðarrit um lif konunnar I Sovétrikjun-
um. Kemur út á öllum höfuömálum. Askriftargjald kr.
220.00 á ári
CULTURE AND LIFE
Myndskreytt mánaðarrit er lýsir starfi Sovétþjóöanna I
lifi og listum og segir fréttir af viöburöum á sviði visinda
og menningar. Fæst á öllum höfuömálum. Askriftargjald
kr. 220.00 á ári.
INTERNATIONAL AFFAIRES
Mánaðarrit um utanrikismál. Askriftargjald kr. 208.00 á
ári. Knska, franska, rússneska.
SPUTNIK
ér mánaðarúrval úr sovézkum blööum og bókmenntum,
mjög fjölbrcytt að efni: leynilögreglusögur, stjórnmála-
greinar, listir, verzlun, tizka; tómstundaiöja, skritlur
o.s.frv. Askriftargjald kr. 440.00 á ári. Enska, franska,
rússneska.
FOItEIGN TRADE
Mánaöarrit viðskiptaráöuneytisins. öll höfuðmál.
Askriftargjald kr. 1.057.00.
Vinsamlega sendið áskrift yðar ásamt
áskriftargjaldi i pósthólf 1087, Reykjavik,
fyrir 15. janúar 1973 og verða yður þá send
viðkomandi rit frá og með 1. janúar 1973
og út það ár, en þá þarf að endurnýja
áskriftina. Eldri áskrifendur eru sérstak-
lega beðnir að athuga, að þeir þurfa að
endurnýja áskriftina og senda áskriftar-
gjaldið fyrir 1973. MÍR
TÍMINN
Föstudagur 15. desember 1972
Það var verið að ræða um
stúlku, sem hafði alið barn og
vildi ekki feðra það, en sagðist
eiga það ein. Þá sagði gamla
konan: ,,Það þarf sko tvo til að
frjóvga þann þriðja.”
En hvað sem faðerninu liður,
þá var Kristur mikill kenni-
maður, og kenndi þá trú og sið^
sem landar hans höfðu ekki
kynnzt áður. Var þvi ekki að
undra, þótt kennimenn og
höföingjar litu þenna fátæka
mann, sem boðaði algjöra
byltingu í landi þeirra, óhýru
auga. Ekki bætti það úr, að mikill
hluti landsmanna féll að fótum
hans til að hlýða á hann, og nema
þau nýju þjóðfélagsfræði sem
hann boöaði, sem lagði það til
grundvallar kenningu sinni, að
allir ættu að vera jafnir, og allir
ættu að elska náunganna sem
sjálfan sig. En það var fleira en
kenningar Krists, sem yfirmenn
þjóðar hans óttuðust. Það var
hylli sú, sem hann ávann sér
meðal almúgans, með lækningum
sinum á sjúkum og vanheilum,
með sinum dulmagnaða krafti.
Okkur er sagt i bibliunni, að
þegar Jésús fæddist, hafi honum
verið færðar dýrar gjafir. Mun
það hafa verið upphaf þess, sem
siðan hefir haldizt gegnum aldir,
að gefa gjafir á afmælisdaginn
hans og mun það hafa flutzt
hingað með hinni nýju trú, sem
kennd er við hann. Svo rikt var
þetta hjá fólki, að þess er getið i
gömlum sögum, að allir kepptust
við að hreinsa til, og útbúa
eitthvað handa öllum til þess að
gefa i jólagjöf. Þótt fátæktin væri
mikil, var reynt að útbúa handa
hverjum og einum einhverja nýja
flik til þess að gefa i jólagjöf. Þá
var mikið gjört til þess að afla sér
efni i kerti og gefa börnunum
kerti á jólunum, þvi það hefir
fylgt jólunum frá fyrstu tið,að þau
væru ljóssins hátið. Þá var einnig
reynt.þótt fátæktin væri mikil.og
húsakynnin léleg, að þrifa og
hreinsa alls staðar til og gera allt
sem nýtt fyrir jólin.
Nú á siðari árum hefir þetta
mikið breytzt, eftir að þjóðin
komst i meiri efni, og hefir manni
stundum fundizt, að gjafakaupin
væru komin út i hreint gjafaæði.
Þá hefir stökkbreytingin ekki
orðið minni hjá þjóðinni á um-
bótasviðinu. Nú er ekki nóg að
þvo og þrifa til. Nú þarf að mála,
dúk og teppaleggja allt i hólf og
gólf, og mörgum finnst þeir þurfi
að láta breyta ibúðunum sinum,
og allt þarf þetta að gerast fyrir
jólin.
Allt þetta umstang útheimtir
mikla vinnu, svo flestir hafa nóg
að gjöra, og margir eru svo
önnum kafnir, að þeir gleyma
alveg skammdeginu. Það hefur
lika sina björtu hlið, að fjöldi
fólks fær af þessu drjúgar auka-
tekjur, svo það á hægara með að
uppfylla óskir sinar til þess að
gjöra jólin sem eftirminnilegust.
Má þvi segja, að það styðji hver
annan i hringiðjunni. Svo þegar
jólin eru liðin, og fólk fer að jafna
sig eftir allt umstangið, finnst þvi
skammdegið búið, þvi nú veit það,
að sólin fer að stiga hærra og
hærra upp á himinhvolfið, og
senda okkur meiri yl og birtu.
En hvað sem öllu þessu liður,
og hvernig sem fólkið lætur, með
þessar miklu umbætur og stóru
gjafir, sem það segist gefa til að
minnast jólanna, þá minnast fáir
afmælisbarnsins, sem lét lifið
fyrir trúna á hina róttæku um-
botakenningu sina.
Gleðilega hátið.
P. Björnsson G. frá Rifi.
JÓNSKAGAN
JÓN Sl<AC,AN
AXLASkipd
ACUNQLÍNU
MÍNNlNGAHOQ MyNÓÍR
AXLASKIPTI
A
TUNGLINU
Ævi manna er samslunginn vefur atvika, orsaka og afleiðinga. Ráðgáta lífsins
verður því oftast torskiiin og yfir henni hvílir hula óræðis og óskiljanleika.
Oft verður manni ljóst hvernig lítil atvik verða aflgjafi
srórra atburða í lífi einstaklinga og stórra hópa manna.
Við lestur þessarar bókar séra Jóns Skagans verður manni þetta ljósara
en áður. Frásögnin er öll lifandi og skemmtileg í einfaldleik
hins frásagnarglaða sögumanns.
Þessi bók er skemmtileg myndasýning úr hinu daglega lífi.
ÞJÓÐSAGA
BYGGGARÐI SELTJARNARNESI - SIMAR 13510, 26155 OG 17059
Gsior
SKVRTAN
sem vekur athygli
\