Tíminn - 15.12.1972, Side 5
Föstudagur 15. desember 1972
TtMINN
5
Ný bók eftir
Twe Ditlevsen
Gata bernskunnar er önnur
bókin, sem kemur út á islenzku
eftir dönsku skáldkontina Tove
Ditlevsen. Fyrri bókin, sem Iðunn
gaf út, var endurminningar
hennar, Gift, sem hlaut góðar
móttökur islenzkra lesenda og
seldist nær alveg upp. Gata
bernskunnar er ein kunnasta
skáldsaga Tove Ditlevsen. Hún
byggir á minningum skáld-
konunnar frá æskuárum hennar,
og kom út tveimur árum eftir að
hún gaf út fyrstu skáldsögu sina.
Siðan hefur hún verið marg-
endurprentuð i Danmörku og
hefur unnið sér sess sem sönn og
nærfarin lýsing á uppvexti ungrar
stúlku. Helgi J. Halldórsson
þýddi bókina. — Útgefandi er
Iðunn.
Nordahls Grieg minnzt
í Norræna húsinu
Ekkja skáldsins verður heiðursgestur
JGK—Reykjavili
Þann fyrsta nóvember s.l. voru
liðin 70 ár frá fæðingu norska
skáldsins og frelsishetjunnar
Nordahls Grieg. Af þvi tilefni
efnir Norræna húsið til kynning-
arkvölds á föstud. kl. 20.30. Dag-
skráin verður á þá leið, að Maj
Britt Immander, forstjóri Nor-
ræna hússins, setur s^mkomuna,
lesin verður kveðja frá Halldóri
Laxness fjarstöddum, Andrés
Björnsson útvarpsstjóri les úr
ljóðum Griegs i þýðingu Magnús-
ar Ásgeirssonar og jafnframt
verða lesin minningarorð
Magnúsar um skáldið, en þau
birtust á sinum tima i Helgafelli.
Flutt verður segulbandsupptaka
á lestri Griegs sjálfs á ljóðinu
„Kongen”, sem ort var, þegar
Hákon konungur varð að flýja
land á striðsárunum. ÁÖ lokum
flytur Einsöngvarakórinn ásamt
Svölu Nilsen kantötuna Norge i
vore hjerter eftir Sverre Jordan
við texta Griegs. Þeir Árni
Kristjánsson tónlistarstjóri og
Andrés Björnsson útvarpsstjóri
hafa haft veg og vanda af undir-
búningi dagskrárinnar. Heiðurs-
gestur kvöldsins verður frú Gerd
Grieg, ekkja skáldsins.
Það er e.t.v. nánast að bera i
bakkafullan lækinn að geta æviat-
riða Nordahls Grieg,enda varla
ofmælt, að fáir erlendir menn á
siðari timum hafa áunnið sér jafn
óskerta virðingu og þökk Is-
lendinga og einmitt hann. Grieg
dvaldist hér mikið á árunum 1941-
42, og orti hér nokkur af sinum
frægustu kvæðum, m.a. ,,Á Þing-
völlum” og „Den menneskelige
natur”. Hann las upp úr verkum
Nordahl Grieg
sinum i Reykjavik og kynntist
náið islenzkum skáldum og
menntamönnum, m.a Tómasi
Guðmundssypi og Magnúsi
Ásgeirssyni, sem þýddi mörg
ljóða hans af óskeikulli snilld.
Nordahl Grieg fórst 2. des. 1943,
er flugvél hans var skotin niður
yfir Berlin.
Ekkja skáldsins, frú Gerd
Grieg, er Islendingum ekki siður
kunn en maður hennar, en hún
var á timabili mikil driffjöður i
leiklistarlifi Reykvikinga. M.a.
setti hún upp i Iðnó þrjú af leikrit-
um Ibsens og lék i þeim jöfnum
höndum, og hér var hún stödd,
þegar maður hennar fór sina.sið-
ustu för. Hún hefur alla tið verið
bundin Islendingum traustum
vináttuböndum, og er ekki að efa,
að þeir munu fagna komu hennar
til landsins nú.
Axlaskipti á tunglinu
- minningar og myndir eftir sr. Jón Skagan
SB—Reykjavik
Bókaútgáfan Skarð hf. hefur
sent frá sér bókina „Axlaskipti á
tunglinu” eftir sr. Jón Sagan. 1
bókinni eru dregnar fram margar
myndir úr lifi höfundar. Hljóta
þessar frásagnir prestsins að
vekja margan til umhugsunar
um, hvar við stöndum i dag.
I formála segir höfundur, að á
siðustu árum hafi mjög margir
beint til sin þeim tilmælum, að
þættirnir, sem prentaðir hafa
verið i blöðum og timaritum og
fluttir i útvarp, yrðu tindir saman
i bók og gefnir út i einu lagi.
Einnig eru i bókinni þættir, sem
ekki hafa birzt áður.
Sr. Jón Skagan hefur ritað ævi-
sögu Sigurðar Magnússonar
bónda á Skúmsstöðum, og einnig
á hann hlut i bók, sem er að koma
út, „Hugurinn flýgur viða”, og
sögu Hliðarenda, sem kemur út á
næsta ári.
Af þáttum i bókinni má nefna
minningar um Guðmund dúllara
og Þjófa-Lása, Hugleiðingar um
Njálsbrennu og sjóslysin miklu
við Landeyjarsand árið 1893.
Bókin er alls sautján þættir, 155
blaðsiður, prentuð i Prentverki
Akraness hf.
Sr. Jón Skagan
Kaupið aðeins
vandaðar barna
unglingabækur
BÓKIN UM VATNIÐ,
BÓKIN UM HRAÐANN,
BÓKIN UM HJÓLIÐ
Fyrstu bækurnar í bókaflokkn-
um Litlu uglurnar, sem ætlað-
ur er 4—7 ára börnum. Þetta
eru skemmtilegar og þrosk-
andi bækur, sem hlotið hafa
meðmæli kennara og uppeld-
isfræðinga um allan heim.
Hér hafa þær verið reyndar í
Skóla ísaks Jónssonar og vak-
ið mikinn fögnuð barnanna.
Péturog Sóley
PÉTUR OG SÓLEY
Nútímaleg og heillandi barna-
bók eftir, Kerstirf Thorvall,
einn fremsta barnabókahöf-
und Svía. Þessi bók hlaut
verðlaun* I samkeppni um
beztu bókina handa 5—9 ára
börnum.„
BÓKIN ,
UM JESU
BÓKIN UM JESÚ
Fögur myndabók gerð af
frönsku listakonunni Napoli í
samvinnu við foreldra og upp-
eldisfræðinga. Hún fjallar um
líf og starf Jesú og kjarnann í
boðskap hans á látlausan og
fallegan hátt.
STÚFUR OG STEINVÖR
Þriðja bókin um Litla bróður
og Stúf eftir hinn frábæra
norska barnabókahöfund
Anne-Cath. Vestly sem aflað
hefur sér mikilla vinsælda
hérlendis fyrir bækur sínar
um Óla Alexander.
ÁRÓRA OG LITLI BLÁI
BÍLLINN
Þriðja bókin um Áróru eftir
Anne-Cath. Vestly. Áróra á
heima í blokk, mamma hennar
vinnur úti, en pabbi er heima
og vinnur heimilisverkin.
DULARFULLA
MANNSHVARFIÐ
12. bókin í bókaflokknum
„Dularfullu bækurnar“ eftir
hina vinsælu Enid Blyton.
Þetta er flokkur leynilögreglu-
sagna handa börnum og ungl-
ingum, spennandi, viðburða-
ríkar og ævintýralegar bækur.
hvergi smeyk, og þau lenda f
ótrúlegustu ævintýrum! Aðdá-
endur Enid Blyton ættu ekki
að láta þennan bókaflokk
fram hjá sér fara.
KATA OG ÆVINTÝRIN
Á SLÉTTUNNI
Önnur bókin um Kötu og
ævintýri hennar í Ameríku
eftir norska höfundinn Jo-
hanna Bugge Olsen.
Johnnna Bu^gc Ol.sen
. KATA
OGÆVINTÝRIN
ÁSLÉTTUNNI
ÞRENNINGIN OG
GIMSTEINARÁNIÐ
Á FJALLINU
Fyrsta bókin i nýjum bóka-
flokki eftir danska höfundinn
Else Fischer. Mikki, Axel og
Lísa eru skýr í kollinum og
JONNI OG KISA
Gullfalleg og skemmtileg
myndabók gerð af sömu höf-
undum og Prinsessan sem
átti 365 kjóla og Litla nornin
Nanna. Allar bækurnar eru
jafnt við hæfi drengja og
telpna.
LITLU FISKARNIR
Áhrifamikil og frábærlega vel
skrifuð unglingabók eftir Erik
Christian Haugaard, mikils
metinn barnabókahöfund.
Þessi bók hefur alls staðar
fengið mjög góða dóma og
hlotið sex alþjóðleg verðlaun.
MAMMA LITLA
Hugljúf frönsk barna- og ungl-
ingabók eftir E. De Pressensé.
Jóhannes skáld úr Kötlum og
Sigurður Thorlacius þýddu
þessa bók á stílhreina ís-
lenzku. Hún kom fyrst út árið
1935 með sérstökum meðmæl-
um Skólaráðs barnaskólanna.
SÍGILDAR SÖGUR
IÐUNNAR
I bókaflokknum Sigildar sög-
ur Iðunnar birtast eingöngu
úrvalssögur sem notið hafa
frábærra vinsælda margra
kynslóða. I dag les ungt fólk
þessar bækur með sömu
ánægju og foreldrar þeirra,
afar og ömmur gerðu áður
Nýjasta bókin heitir: Tvö ár á
eyðiey, spennandi og
skemmtileg bók eftir hinn
heimskunna höfund Jules
Verne.
Ben Húr, Lewis Wallace.
Kofi Tómasar frænda, Stowe.
ívar Hlújárn, Walter Scott.
Skytturnar I., Dumas.
Skytturnar II., Dumas.
Skytturnar III., Dumas.
Börnin I Nýskógum, Marryat.
Baskerville-hundurinn, Doyle.
Grant skipstjóri og börn hans,
Jules Verne.
Kynjalyfið, Walter Scott.
Fanqinn I Zenda, Hope.
Rúpert Hentzau, Hope.
Landnemarnir í Kanada,
Frederick Marryat.
Róbinson Krúsó, Dófoe.
Hjartarbaní, J. F. Cooper.
Sveinn skytta, Carit Etlar.
Varðstjóri drottningar, Etlar.
IÐUNN, Skeggjagötu 1 y