Tíminn - 15.12.1972, Qupperneq 8
8
TÍMINN
F'östudagur 15. desember 1972
efstu á
vinsælda-
listanum
TEGUND 2204 NR. 35-42
Svart^leöur Krónur 1925,00
TEGUND 2210 NR. 35-42
Brúnt leöur með loöfóðri Krónur 2760,00
TEGUND 2203 NR. 35-42
Brúnt eða svart leður Krónur 2560,00
meö loðfóðri
Póstsendum.
Skóverzlun Þórðar Péturssonar
við Austurvöll - Sími 1-41-81
Ætti,,Grýla" ekki að ná
til fleiri en Reykvíkinga?
Klp—Reykjavík.
Allt frá þvi aö lögreglan i
Keykjavik kom meö hinar nýju
aögeröir sinar fyrir nokkrum
dögum aö taka þá ökumcnn, sem
brjóta a.m.k. tvisvar af sér i um-
feröinni á tólf mánuðum i nýtt
ökupróf, hefur veriö þungt i
mörgum bilstjóranum.
Sérstaklega eru það atvinnubil-
stjórar, sem eru óánægðir með
þessar aðgerðir, svo og þeir öku-
menn, sem vita, að þeir hafa
brotið eitthvað af sér að undan-
förnu og biða eftir þvi að verða
kallaðir fyrir.
Af atvinnubilstjórunum hafa
það verið strætisvagnabilstjórar,
sem hæst hefur heyrzt i, en 15
þeirra hafa verið teknir fyrir aö
undanförnu, og hafa sumir þeirra
ekki náð fyrra prófinu. Litið hefur
aftur á móti heyrzt i leigubilstjór-
um, enda hafa þeir haft öðrum
hnöppum að hneppa að undan-
förnu, en að vera aö deila við lög-
regluna.
Strætisvagnabilstjórarnir vilja
halda fram, að þeir standi mun
verr að vigi i þessu máli en aðrir
ökumenn, ef frá eru taldir at-
vinnubilstjórar. Þeir þurfi að aka
þessum stóru bilum um þröngar
götur borgarinnar, oftast i tima-
þröng, a.m.k. sex tima á dag eða
um 40 stundir á viku, þegar aðrir
Vélsleði óskast
Óska eftir að kaupa góðan vélsleða. Upplýsingar i sima 2-
38-94 milli kl. 6 og 7 á kvöldin, næstu viku.
AUGLÝSING
um takmörkun á umferð í Reykjavík,
16.-23. desember 1972
Ákveðið hefir verið að gera eftirfarandi
ráðstafanir vegna umferðar á timabilinu
16. — 23. desember n.k.:
I. Einstefnuakstur:
A Vatnsstig frá Laugavegi til .norðurs að Hverfisgötu
Á naustunum frá Tryggvagötu að Hafnarstræti.
Il.Vinstri beygja bönnuð:
1. Af Laugavegi suður Barnónstig.
2. Af Klapparstig vestur Skúlagötu.
3. Af Vitastig vestur Skúlagötu.
III. Bifreiðastöðubann á virkum dögum
kl. 10-19 :
A Skólavörðustig norðan megin götunnar, frá Týsgötu að
Njarðargötu. Frekari takmarkanir en hér eru ákveðnar
verða settar um bifreiðastöður á Njálsgötu, Laugavegi,
Bankastræti og Austurstræti, ef þörf krefur.
IV. ökukennsla i miðborginni
milli Snorrabrautar og Garðastrætis er bönnuð á
framangreindu timabili.
V. Umferð bifreiða, annarra en strætisvagna
Iteykjavikur,
er bönnuð um Austurstræti, Aðalstræti og Hafnarstræti,
laugardaginn 16. desember frá kl. 20 til kl. 22 og laugar-
daginn 23. desember frá kl. 20.00 til kl. 24.00
Sams konar umferðartakmörkun verður á Laugavegi og í
Bankastræti á sama tima, ef ástæða þykir til.
Vakin skal athygli á þvi, að á þessu auglýsta timabili geta
ökumenn á ferð um Laugaveg átt von á þvi, að lögreglan
visi þeim af Laugavegi, t.d. við Höfðatún eða Rauðarár-
stig.
Ennfremur geta ökumenn búizt við þvi, að umferð úr
hliðargötum Laugavegar, Bankastrætis og Austurstrætis
verði takmörkuð inn á þessar götur á vissum timum.
Þeim tilmælum er beint til ökumanna, að
þeir forðist óþarfa akstur um Laugaveg,
Bankastræti og Austurstræti og að þeir
leggi bifreiðum sinum vel og gæti vand-
lega að trufla ekki eða tefja umferð. Þeim
tilbælum er beint til gangandi vegfarenda,
að þeir gæti varúðar i umferðinni, fylgi
settum reglum og stuðli með þvi að
öruggri og skipulegri umferð.
VI. Gjaldskylda við stöðumæla verður
sem hér segir.:
Föstudaginn 15/12
Laugardaginn 16/12
Mánudaginn 18/12
Þriðjudaginn 19/12
Miðvikudaginn 20/12
Fimmtudaginn 21/12
Föstudaginn 22/12
Laugardaginn 23/12
Kl. 09,00-22,00
Kl. 09,00-22,00
Kl. 09,00-18,00
|K1. 09,00-22,00
Kl. 09,00-18,00
Kl. 09.00-18,00
Kl. 09,00-22,00
Kl. 09,00-24,00
Lögreglustjórinn i Reykjavik, 14 des. 1972
aki varla nema úr og i vinnu og
nái þvi ekki að aka nema nokkrar
minútur á dag. Þeir hafi þvi ólikt
oftar tækifæri til að lenda i tveim
eða þrem árekstrum á ári en
þessir venjulegu ökumenn, og
sama sé að segja um aðra at-
vinnubilstjóra, sem séu undir
stýri sex til tólf klukkustundir á
daga.
Á fundi með lögreglustjóra fyr-
ir skömmu var hann spurður að
þvi, hvort honum fyndist atvinnu-
bilstjórarnir ekki hafa nokkuð til
sins máls með þessu. Hann svar-
aði þvi til, að atvinnubilstjórar
hefðu lært meir en aðrir öku-
menn, og ættu þvi að kunna meira
i umferðarreglum og akstri og þvi
engin ástæða til að gefa þeim
neina undanþágu.
Það sem situr i mönnum i sam-
bandi við þessar aðgerðir lögregl-
unnar, er, að ökuleyfið skuli vera
tekið af þeim, ef þeir ná ekki
fyrsta prófinu, sem er látið fara«
fram nokkrum min. eftir að við-
komandi er kallaður til lögregl-
unnar. Finnst mörgum þetta vera
of harkalega aðgerð, og telja, að
réttar sé að gefa mönnum dag-
stund til að átta sig á hlutunum,
eða þá að gefa út sérstakt öku-
leyfi, sem gildi aðeins meðan á
prófinu stendur.
Um réttmæti þessara aðgerða
lögreglunnar efast fáir, sem á
annað borð hugsa málið nánar.
Þegar fram i sækir kemur þessi
„grýla” til að hafa viss áhrif á
umferðarmenninguna, þó svo að
árangurinn komi ekki i ljós fyrr
en eftir nokkurn tima. Menn
verða að hafa einhverja ,,grýlu”
svipaða og þessa til að fara gæti-
lega, og einnig er þetta vel til þess
fallið, að fá menn til að lesa um-
ferðarlögin betur og oftar. En það
hljóta þeir að gera, þegar þeir
vita af þvi, að þeir verða kallaðir
fyrir og látnir taka próf, ef þeir
brjóta af sér i umferðinni. — Þar
með hafa þessauaðgerðir náð til-
ætluðum árangri.
Rétt er þó að geta þess, að þær
ná aldrei ætluninni ef aðeins reyk
viskum ökumönnum verður
hegnt. Það er ekkert réttlæti i þvi,
að þeir einir, sem búi i Reykjavik
verði fyrir þessu. Um götur
Reykjavikur ekur fjöldinn allur
af ökumönnum, sem þar eru ekki
búsettir og nægir þar t.d. að nefna
Kópavogsbúa, sem aka þar eins
mikið og Reykvikingar, og lenda
ekki siöur i árekstrum en þeir.
Það verður ekki fyrr en þessi
„nýja grýla” verður tekin upp um
allt land, að hún getur farið að
sanna ágæti sitt og þá um leið
sniðin af henni ljótustu hornin.
Plakatmeð
dagatali
SB—Reykjavik.
Nemendur Myndlista- og hand-
iðaskólans á fjórða ári hafa gefið
út fallegt plakat, sem jafnframt
er dagatal fyrir allt árið 1973. Er
sala plakatsins i þeim tilgangi að
létta undir kostnaði við utanför
nemendanna, en hún er liður i
náminu. Plakatið er 60 x45 sm. að
stærð, og grunnliturinn er gul-
brúnn. A efri helmingnum er
stjörnumerkjahringurinn, en
dagatalið fyrir neðan.
Plakatið er til sölu i verzluninni
Vest, Laugavegi 51 og bóksölu
stúdenta i Félagsstofnuninni við
Hringbraut, auk þess sem
nemendur munu selja þau hér i
bænum og úti á landi, þeir sem
þar eiga heima. Plakatið kostar
150 krónur.
Samkeppni
Framhald
af bls. 24
Þeir sem hafa hug á að finna
nafn á myndina, skal bent á,að til-
lögur skulu merktar dulnefni og
nafn höfundar fylgja i lokuðu um-
slagi. Nafnið skal vera stutt.
Tillögurnar skulu sendar fram-
kvæmdanefndarmönnum fyrir 31.
janúar nk. Þeir eru: Stefán Ja-
sonarson, Vorsabæ, Jón
Guðmundsson, Fjalli og Ólafur H.
Guðmundsson, Hellnatúni.