Tíminn - 15.12.1972, Síða 11
Föstudagur 15. desember 1972
TÍMINN
11
Útgefandi: Frátnsóknarfiokkurínn
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þór
::: arinn Þórarinsson (ábm.),'Jón Helgason, Tómas Karlsson
i Andrés Kristjánsson (ritstjóri Sunnudagsblaös Timáns)
Auglýsingastjóri: Steingrlmui*. Gislasc^ii. ■ Ritstjórnarskrif
stofur i Edduhúsinu viö Lindargötu, slmar 18300-18306
Skrifstofur i Bankastræti 7 — afgreiöslusími 12323 — auglýs
ingasimi 19523. Aðrar skrifstofurtsimi 18300. Áskriftargjah
225 krónur á mánuði innan lands, i lausasölu 15 krónur ein
takiö. Blaðaprent h.f.
Góðar fréttir berast
nú austur um haf
Undanfarna daga hafa borizt góðar fréttir
austur um haf frá Bandarikjunum.
Fullvist má nú telja, að tillaga sú, sem ísland
flutti ásamt Perú og fleiri rikjum og samþykkt
var i efnahagsnefnd Allsherjarþingsins, verði
samþykkt á þinginu sjálfu með miklum yfir-
burðum. Þessi tillaga er stór áfangi i baráttu
okkar fyrir viðurkenningu eignarréttar okkar
á auðlindum fiskimiðanna á landgrunni ís-
lands og kveður niður þann tviskinnung, sem
rikt hefur i alþjóðarétti, þar sem riki geta kast-
að eign sinni á auðæfi i og á hafsbotni hundruð
milna út frá ströndum sinum, en þjóðir, sem
eiga allt sitt undir lifinu i sjónum yfir hafs-
botni, hafa ekki viðurkenningu á rétti til vernd-
ar og nýtingar þeirra auðæfa, þótt kröfur
þeirra til slikra yfirráða gangi mun skemmra
en þeirra stórvelda, sem kasta eign sinni á oliu,
málma og fl. hundruð milna út frá ströndum.
Bandarikjastjórn hefur nú tilkynnt islenzku
sendinefndinni hjá Sameinuðu þjóðunum, að
hún muni láta af andstöðu gegn þessari ályktun
efnahagsnefndar^þegar hún kemur til atkvæða
á Allsherjarþinginu, en Bandarikin beittu sér
gegn tillögunni i nefndinni. Þróun mála á fiski-
miðunum við strendur Bandarikjanna og bar-
átta útgerðarmanna og fiskimanna þar i landi
undanfarin misseri á vafalaust sinn þátt i þvi,
að Bandarikin treysta sér ekki til að ganga
gegn tillögu, sem ekki fer neitt dult um, að er
ekki sizt yfirlýsing þjóða heims um stuðning
við málstað Islands i baráttu islenzku þjóðar-
innar fyrir tilverurétti sinum og um leið for-
dæming á framferði Breta og Vestur-Þjóðverja
á fiskimiðunum við ísland.
Bretar gera sér allténd fullkomlega ljóst, að
þessi ályktun efnahagsnefndar Sameinuðu
þjóðanna gengur i berhögg við allt það, sem
Bretar berjast fyrir i landhelgisdeilunni við ís-
lendinga. Á fundi i hópi vestrænna rikja i höf-
uðstöðvum Sameinuðu þjóðanna lögðu fulltrú-
ar Breta mjög fast að vestrænum rikjum að
greiða atkvæði gegn tillögunni á Allsherjar-
þinginu. Sögðu þeir, að þessi tillaga yrði notuð
af íslendingum til áróðurs gegn Bretum og
myndi spilla samkomulagsmöguleikum i land-
helgisdeilunni við íslendinga!
Spurningin er nú, hve mörg vestræn riki fara
að vilja Breta. Ekki sizt beinist athygli okkar
Islendinga að frændþjóðunum á Norðurlöndum
i þessu sambandi. Taki þau ekki afstöðu með
þessari ályktun, bregðast þeir ekki aðeins Is-
lendingum,heldur einnig öllum hinum vanþró-
uðu rikjum heims, eða þriðja heiminum svo-
kallaða, en þessi riki hafa öðrum fremur sagzt
hafa skilning á baráttu vanþróuðu rikjanna
gegn rikum forréttindaþjóðum.
Skilningur á nauðsyn verndunar og réttrar
nýtingar fiskistofna og rétti strandrikja til að
vernda og nýta fiskimið sin fer nú hraðvaxandi
i heiminum. Væntanlega nær sá skilningur alla
leið inn i Alþjóðadómstólinn i Haag. Að
minnsta kosti getur hann ekki hundsað þá
ályktun Allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna,
sem samþykkt verður i næstu viku,um að
varanleg yfirráð strandrikja yfir auðæfum
hafsbotns nái einnig til sjávarins og lifsins yfir
honum. —TK
Grein frá APN:
Fjögur lýðveldi stofnuðu
Sovétríkin fyrir 50 árum
í rússneska lýðveldinu er rúmur helmingur íbúa Sovétríkjanna
SOVÉTRÍKIN voru stofnuð
árið 1922, þegar fjögur
sambandslýðveldi sameinuð-
ust. Lýðveldi þessi voru:
Rússneksa lýðveldið,
Úkraina, Hvita-Rússland og
Kákasuslýðveldið
(Azerbaidsjan, Armenia og
Grúsia). Þetta fór fram á
fyrsta þingi verkamanna-
ráðanna, sem haldið var i
Bolshoj-leikhúsinu i Moskvu
þann 30. des. 1922. Stofnun
Sovétrikjanna var tilkomin
vegna hlutlægra aðstæðna.
Það var hverju lýðveldi
augljóst, að það var ekki
hægt að byggja upp nýtt
lif hjálparlaust og reisa land-
búnaðinn og iðnaðinn úr
rústum eftir heimsstyrjöldina,
sem geysaði 1914-1917, og
borgarastyrjöldina frá 1918-
1922.
V.I. Lenin lagði grundvöll
að sameiningu lýðveldanna i
Sovétrikin og byggðist hún á
jafnrétti þjóðanna og frjálsum
vilja þeirra til sameiningar. A
næstu árum voru stofnuð ný
sambands- og sjálfstjórn-
arlýðveldi. Árið 1936 voru
stofnuð lýðveldin
Azerbaidsjan, Armenia og
Grúsia, sem áður höfðu sam-
einazt i Kákasuslýðveldið, og
urðu þau sambandslýðveldi i
Sovétrikjunum.
STÆRSTA lýðveldið er
rússneska lýðveldið, sem nær
frá Kamtsjatka að Eystrasalti
yfir landsvæði, sem er 17
milljónir ferkilómetra að
flatarmáli, en flatarmál
Sovétrikjanna i heild er rúm-
lega 22.400 þúsund ferkiló-
metrar. Ibúatala rússneska
lýðveldisins var 131,8 milljónir
árið 1972, en i Sovétrikjunum i
heild 247,5 milljón manns.
tbúafjöldi i Moskvu er 7,3
millj. 1 rússneska lýðveldinu
eru framleidd 63 prósent
allrar raforku Sovétrikjanna,
81 prósent oliu, rúmlega 50
prósent af stáli og 50 prósent
af landbúnaðarafurðum.
Þegar unnið var að eflingu
efnahags, visinda, menningar
og bættra lifskjara,var fyrst
og fremst tekið tillit til
héraða, sem höfðu dregizt
aftur úr, og ibúa þeirra. T.d
gjörbreyttist lif 20 þjóðarbrota
i Norður-héruðunum, en áður
leit út fyrir, að þau mundu
leggjast i auðn.
Siðastliðin ár hefur feyki ör
þróun átt sér stað i Siberiu og
Austurströndinni, sem til-
heyra rússneska lýðveldinu.
Raforkuverin i Siberiu eru þau
stærstu i Sovétrikjunum og i
h e i m i .
1 Siberiu er verið að byggja
mörg voldug raforkuver og
tekin hafa verið i notkun 40
hitaraforkuver.
Fyrir árið 1975 verður tekin i
notkun stærsta gas- og oliu-
iðnaðarstöð sinnar tegundar i
Sovétrikjunum og verður oliu-
uppgröftur 120-125 tonn. Stöð
þessari var valinn staður i
Vestur-Siberiu. Nú fæst þrisv-
ar sinnum meira af oliu frá
Siberiu heldur en frá Bakú
(Azerbaidsjan). Siberiudeild
Visindaakademiu Sovétrikj-
anna og Visindamiðstöð Aust-
ur-Siberiu, sem er einnig deild
frá Visindaakademiunni, eru
helztu visindastöðvarnar.
AZERBAIDSJAN er 86.6
þúsund ferkiiómetrar og eru
ibúar 5.323 þúsund.
Höfuðborgin er Bakú með
1.314 þúsund ibúa. Nú á dögum
er Azerbaidsjan ekki aðeins
lýðveldi oliuvinnslu og
oliuiðnaðar. Þar hefur einnig
þróazt framleiðsla oliuvéla,
málmiðnaðar og raforku.
Rúmlega 350 tegundir
iðnaðarvara eru fluttar út til
57 landa heims. En áður voru
jafnvel steinoliulampar og
naglar fluttir inn til
Azerbaidsjan.
Helztu landbúnaðargrein-
arnar eru baðmullar- silki og
griparækt. Vinberjarækt er á
mjög háu stigi. 1 þessu héraði,
þar sem áður rikti ólæsi og
vanþekking, eru nú 140 vis-
inda- og rannsóknastofnanir,
þar sem vinna um það bil 18
þúsund visindastarfsmenn, og
eru i þeim hópi 650 visinda-
doktorar. I æðri menntastofn-
unum i Azerbaidsjan stunda
nám 100 þúsund stúdentar.
ARMENIA er 29.8 þúsund
ferkilómetrar að flatarmáli og
eru ibúar 2.635 þúsund.
Höfuðborgin er Erevan með
818 þúsund ibúa. örlög
armensku þjóðarinnar fyrir
byltinguna voru mjög
ömurleg. 1 fyrri heims-
styrjöldinni drápu Tyrkir
rúmlega hálfa aðra milljón
ibúa, en 300 þúsund manns
leituðu hælis i Rússlandi,og
mikill hluti ibúanna flýði til
Austurlanda, Ameriku og
Evrópulandanna. Um það bil
200 þúsund Armeniumenn
hafa snúið til baka til föður-
lands sins frá ýmsum löndum,
og enn snúa Armenar til sins
heimalands. Nú er iðnaður á
háu stigi i lýðveldinu, t.d. ljós-
málmaiðnaður, raftækni,
viniðnaður og fleiri, og 150
tegundir iðnaðarvöru eru
fluttar út til 70 landa.
1 iðrum Armeniu finnst
kopar, skink og sjaldgæfir
málmar. Einnig er þar mikið
af marmara og mábergi.
Lýðveldið ræður yfir mikilli
vatnsorku, en engu eldsneyti.
Gas og olía er flutt inn frá
Azerbaidsjan. Gasleiðslan
Bakú-Tbilisi-Jerevan var
byggð af fulltrúum margra
sovét-lýðvelda, eins og mörg
mannvirki i Kákasus. I
lýðveldinu eru 12 æðri
menntastofnanir og fjöldi
stúdenta er meiri heldur en i
Sviss, Austurriki eða Noregi.
GRÚSIA er 69.7 þúsund
ferkm. að flatarmáli og
ibúafjöldi 4.800 þús. manns.
Nú frarhleiðir þetta lýðveldi
næstum allar tegundir
iðnaðarvöru. Nýjar greinar
vélaiðnaðar hafa verið
byggðar upp, t.d.
rennibekkjasmiði, raftækni og
útvarpstækni. Auk stein- og
brúnkolavinnslu, þróast
oliuiðnaður, og voldugur orku-
grundvöllur hefur verið
lagður. Af hverjum 1000
ibúum i Grúsiu eru 58 manns
með æðri menntun. 1 Grúsiu er
95% af allri terækt Sovét-
rikjanna auk mikillar sitrónu
og tóbaksræktar.
ÚKRANIA er 603,7 þúsund
ferkilóm. að flatarmðli og
fólksfjöldi 48 milljónir.
Höfuðborgin er Kiev með 764
þúsund ibúa. Iðnaður
lýðveldisins er háþróaður, svo
og landbúnaður. Frá Úkrainu
kemur 1/3 hluti kolafram-
leiðslu Sovétrikjanna, næstum
10 prósent heimsfram-
leiðslunnar af stáli, járn-
málmi og dráttarvélum.
HVITA-RÚSSLAND nær
yfir 207,6 þúsund ferkilóm.
svæði og ibúafjöldi þar er 9.2
milljónir. Minsk er
höfuðborgin og eru þar yfir
milljón ibúar. Hvita-Rússland
er i fyrsta sæti i Sovétrikjun-
um hvað snertir framleiðslu
rafeindavéla, og kalium-
áburðar og i öðru sæti hvað
snertir framleiðslu vörubila,
sem eru allt að 120 tonn. Oliu-
uppgröftur er talsverður.
Rikið veitti Hvita-Rússlandi
mikla hjálp eftir siðari
heimsstyrjöldina, þar sem
fjórði hluti ibúanna féll eða
voru teknir til fanga, meðan
landið var hernumið af
nazistum, og þar af voru 380
þúsund manns sendir f
þrælkunarvinnu i Þýzkalandi
og voru það mest piltar og
stúlkur.
Milli Hvita-Rússlands og
hinna sovézku lýðveldanna
hafa haldizt náin efnahags-
tengsl og vinátta. T.d unnu
fulltrúar rúmlega 20 þjóðerna
Sovétrikjanna að byggingu
oliuiðnaðarverksmiðjunnar i
borginni Novopolotsk og
kaliumáburðarverk-
smiðjunni. Hvað snertir
stúdentafjölda á hverja 10 þús.
ibúa fer Hvita-Rússíand fram
úr Englandi, V-Þýzkalandi,
Frakklandi og Sviþjóð. Arið
1971 voru gefnar út 2.600
bækur að heildarupplagi 26
milljón eintök, en það eru
næstum þrjár bækur á hvern
,ibúa. Áður voru gefnar út
þrjár bækur árlega á hverja
100 ibúa.