Tíminn - 10.03.1973, Side 3
Laugardagur 10. marz 1973
TÍMINN
3
Ntl UM helgina veröur kosiö i
stjórn Starfsstúlknafélagsins
Sóknar, en i því eru ófaglæröar
starfsstúikur á sjúkrahúsum,
barnaheimilum og elli og
hjúkrunaheimiium. Sú breyting
veröur nú á A-listanum, lista
stjórnar- og trúnaöarmannaráös,
aö Margrét Auöunsdóttir, sem
lengi hefur veriö formaöur
félagsins er nú ekki I kjöri til þess
starfs.
Blaöamaður hitti Margréti
stuttlega að máli i gær og spurði
hana um ástæður þess að hún
dregur sig nú i hlé.
— Það eru nú liðin 19 ár siðan ég
tók fyrst sæti i stjórn þessa
félags, segir Margrét og for-
maður hef ég verið i 17 ár. Mér
finnst þvi mál til komið að ég viki
fyrir nýju fólki. Ég er þeirrar
skoðunar að það sé ekki heppilegt
að sama fólkið sitji lengi i
stjórnum verkalýðsfélaga, tiu ár
gætu jafnvel verið hæfilegur timi.
Þetta er eina breytingin, sem
verður á listanum hjá okkur að ég
fer út og önnur kemur i staðinn
fyrir mig. Formannsefnið okkar
er Guðmunda Helgadóttir, hún er
starfstúlka á Barnaheimili
Hringsins viö Dalbraut, og hefur
F.v. Guömunda Helgadóttir og Margrét Auöunsdóttir
Kosið í Sókn um helgina
verið i stjórn siðan 1968. Ég ber
fyllsta traust til fólksins, sem er i
framboöi.
— Hvað finnst þér nú merkasti
áfanginn, sem þið náðuð I ykkar
kjaramálum meðan þú varst for-
maður?
— Það er alveg tvimælalaust
vaktaálagið, sem við fengum
fyrst ailra stéttarfélaga, mig
minnir að það hafi verið 1963.
Aðeins opinberir starfsmenn
höfðu þá samið um vaktaálag.
— Hvernig er að vera að kveðja
félagið eftir allan þennan tima?
— Ég er nú ekki farin frá félaginu
þótt ég láti nú af formennsku. Ég
verð áfram i stjórn og mun
auðvitað leggja félaginu lið
meðan ég get og það þarf þess
með. Það hefur verið ánægjulegt
að starfa innan þessa félags og
samheldnin hefur verið góð þegar
um kjarabaráttu hefur verið aö
ræða.
Guðmunda Helgadóttir er Vest-
firðingur að ætt, fædd á Dýrafirði,
en hefur átt heima i Reykjavik
siðan 1952. ,,Ég hef ekki setið i
stjórn félagsins áöur, en veriö
trúnaðarkona þess á minum
vinnustað, Borgarsjúkrahúsinu,
og átt sæti i trúnaðarráöi.
Við munum að sjálfsögðu
fylgja fram þeirri meginstefnu
sem Margrét Auðunsdóttir hefur
markað, sagði Guömunda, þegar
blaðamaður Tímans hitti hana að
máli i gær.
A sumrinu 1971 voru skipu-
lagðar orlofsferðir til útlanda
fyrir félagskonur og jafnframt
greiddi félagið niður kostnað við
ferðirnar. Ég hef mikinn hug á að
halda þessari starfsemi áfram i
sumar. Það má sjálfsagt lengi
ræða um verkefni næstu stjórnar,
en ég vil nefna aö við höfum hug
á að taka til athugunar kjör
fullorðnu kvennanna, sem hættar
eru að vinna. Þá höfum við
mikinn hug á að vinna að auknum
kynnum kvenna innan félagsins,
t.d. með þvi að halda reglulega
rabbfundi. Það er góður andi og
mikil samheldni innan félagsins,
en þar mætti enn auka á með
auknum kynnum kvenna af
hinum ýmsu vinnustöðum.”
Tveir listar eru I kjöri og er
B-listinn borinn fram af Guðnýju
Sigurðardóttur o. fl. Formanns-
efni listans er Guðný Sigurðar-
dóttir.
A-listinn, listi stjórnar og
trúnaðarráðs er þannig skipaður:
Formaður: Guðmunda Helga-
dóttir, Barnaheimili Hringsins
v/Dalbraut.
Varaformaður: Andrea Helga-
dóttir, Borgarspitalanum.
Ritari: Guðrún Jóna Sigurjóns-
dóttir, Borgarspitalanum.
Gjaldkeri: Elsa Blöndal, Borgar-
spitalanum.
Meöstjórnandi: Sigriöur Jónas-
dóttir, Barnaheimilinu, Lauga-
borg.
Varastjórn:
Margrét Auðunsdóttir,
Landspitalanum,
Ester Jónsdóttir, Elliheimilinu
Grund,
Hulda Eliasdóttir, Lands-
spitalanum.
Trúnaðarmannaráð:
Steinunn Jónsdóttir, Hrafnistu
Sólveig Sigurgeirsdóttir, Borgar-
spitalanum,
Asta Arnadóttir, Hrafnistu,
Guðrún Emilsdóttir, Kópavogs-
hælinu.
Frá blaöamannafundinum á föstudaginn. Fremst á myndinni eru leiöbeinendur á námskeiöinu, fjær til hægri eru sjúkraflutningamennirnir.sem
tókuþátti námskeiöinu.
Ndmskeið fyrir sjúkraflutningamenn
JGK, Reykjavik. A fimmtudaginn
þann 8. marz lauk I Reykjavik
námskeiöi fyrir sjúkraflutnings-
menn, sem staöiö haföi frá 22.
jan. Þaö var sjúkraflutninga-
nefnd Reykjavíkur, sem gekkst
fyrir mámskeiöinu og þátttak-
endur voru sextán, allt menn sem
starfa aö sjúkrafiutningum á
vegum Reykjvikur og Rauöa
krossins.
Námskeiðið var all viöamikiö og
þar lærðu menn bráðabirgöaum-
búnað og flutning sjúkra og
slasaðra bráöabirgðameðferð við
meiri háttar slys og sjúkdóma,
lifgun úr dauöadái, öndun og
hjartahnoð, meðferð hjartasjúkl-
Æskulýðsdagur þjóðkirkjunnar:
Unglingavaka í dóm
kirkjunni í kvöld
UNDANFARIN ár hafa æsku-
lýössamtök innan þjóökirkjunnar
gengizt fyrir sérstökum kirkju-
legum æskulýösdegi og veröur
hann aö þessu sinni á morgun 11.
marz. Veröur æskulýösmessa
meö sérstöku sniöi i fiestum
kirkjum landsins, þar sem guös-
þjónustugerö fer fram, og er þar
meðal annars gert ráö fyrir, aö
aliur söfnuöurinn standi upp og
taki undir, er presturinn flytur
trúarjátningu fyrir altari.
Sérstakt biaö, Immanúel, hefur
verið gefið út i tilefni af æsku-
lýðsdegi kirkjunnar, og mun það
vera i fyrsta skipti, að slikt er
gert.
I dómkirkjunni i Reykjavik
verður sérstök vaka á sunnudags-
kvöldið, og mjög til hennar
vandað. Hefst hún klukkan tiu.
Séra Karl Sigurbjörnsson mun
flytja þar hugleiðingu og fjöldi
ungs fólks koma — til dæmis
syngur þar kór úr mennta-
skólanum við Tjörnina, og er
söngstjórinn átján ára piltur,
Snorri Sigfús Birgisson.
Kvöldvaka, sem haldin var i
dómkirkjunni á æskulýðs-
deginum I fyrra, var afarfjöl-
menn, og er sennilegt, að svo
verði einnig nú.
inga I sjúkraflutningum, fram-
komu við sjúklinga og flutning
geösjúkra og loks undirstöðu-
atriði við fæðingarhjálp. Einnig
var leitazt við aö skapa tengsl
milli sjúkraflutningsmanna og
starfsfólks sjúkradeildanna.
Kennsla á námskeiðinu fór
fram á slysadeild Borgar-
spitalans, svæfinga- fæöinga- og
lyflækningadeildum Landspit-
alans og á Kleppsspitala.
Kennslan fór fram i fjögurra
manna hópum, og mun þetta vera
fyrsta námskeið sinnar tegundar
hér á landi og visir að sérþjálfun
sjúkraflutningamanna.
A blaðamannafundi á föstu-
daginn var fréttamönnum gerð
grein fyrir námskeiðinu og til-
gangi þess. Þar flutti Jón
Sigurösson borgarlæknir ávarp
og afhenti þátttakendum I nám-
skeiðinu viöurkenningarskjöl.
Einnig tók Rúnar Bjarnason
slökkviliösstjóri til máls og lét i
ljós þá ósk.að þetta væri upphafið
að betri menntun sjúkraflutn-
ingamanna og um leið betri og ör-
uggari sjúkraflutningum.
Þegar stíflan brast
1 forustugrein Dags 7. þ.m.
er rætt um veröbólguna. Þar
segir m.a.:
„Velmegun hefur vaxiö, þvi
aö kaupmáttur launatekna er
nieiri en hann var fyrir strlö,
en hann hefur ekki vaxiö nema
um lftiö brot af launahækkun-
inni, eins og hún er I krónutali.
Tekjur og veröhækkanir slö-
ustu þrjátlu ára, eru fyrst og
fremst I þvi fólgnar aö minnka
krónuna. Þegar laun eöa verö-
lag hækka meira en þjóöarbú-
iö getur greitt, minnkar krón-
an og þaö kalla menn verö-
bóigu. Sú þróun hófst I önd-
veröu vegna þess, aö erlendar
vörur hækkuöu I veröi af völd-
um striösins. Fyrstu strlösár-
in reyndu stjórnarvöld aö hafa
hemil á veröbóigunni meö þvl
aö hafa eftirlit meö kaupgjaldi
og verölagi. En áriö 1942 brast
veröbólgustiflan og sföan hef-
ur verögildi krónunnar fariö
slminnkandi frá ári til árs, en
misjafnlega ört.”
Vísitalan
Dagur segir ennfremur:
„Sagt er, aö visitalan verö-
tryggi launatekjur, en þaö er
þó ekki nema aö nokkru leyti
rétt. Til sanns vegar má færa,
aö hún verötryggi þær launa-
tekjur, sem notaöar eru jafn-
óöum til kaupa á vörum og
þjónustu. En þann hluta tekn-
anna, sem menn leggja fyrir
sem sparifé, verötryggir visi-
taian ekki. Kaupmáttur spari-
fjárins fer minnkandi, þótt
greiddir séu af þvf háir vextir.
Þar kemur ranglæti verö-
bólguvitleysunnar fram, svo
og f veröbólgugróöa þeirra,
sem hafa lag á og aöstööu til
aö notfæra sér hiö sjúka efna-
hagsástand.”
Á valdi
þjóðarinnar
Aö lokum segir Dagur:
„Glöggur maöur sagöi fyrir
skömmu I útvarpserindi um
daginn og veginn: Engin rfkis-
stjórn ræöur viö veröbólguna.
Þaö er á valdi þjóöarinnar,
hvort hér á landi er veröbólga
eöa ekki. Nokkuö mun þessi
maöur hafa til slns máls. Ef
stéttarfélög landsmanna og sá
hluti þjóöarinnar, sem eyöir fé
þjóöarbúsins I óhófi, samein-
uöust um aö hefta veröbólg-
una, myndi margt breytast.
En hvenær gerist þaö?
TIu rikisstjórnir hafa setiö
aö völdum slöan veröbólguvit-
leysan hófst og allir þingflokk-
ar hafa staöiö aö þessum
rikisstjórnum lengri eöa
skemmri tlma. En eiga eitt
sameiginlegt: Engin hefur
ráöiö viö veröbólguna og alltaf
fer krónan minnkandi. Þaö er
ekki von, aö vel fari, þegar t.d.
forystumenn stéttarsamtaka
og stjórnarandstööu heimta,
aö skattlagning á munaöar-
vöru, svo sem áfengi og tó-
baki, sé tekin inn I visitölu."
Þ.Þ.
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
21190 21188