Tíminn - 10.03.1973, Page 4
4
TÍMINN
Laugardagur 10, marz 1973
Sendiherra snýr heim
Franko einræöisherra á Spáni
hefur nú kallaö heim
uppáhaldsdótturdóttur sina og
hinn sykursæta prins hennar,
Alfonso prins, sem verið hefur
sendiherra Spánar f Sviþjóð að
undanförnu. Maria del Carmen,
dótturdóttir einræöisherrans, er
nýroðin mamma. Sonurinn
heitir Francisco Alfonso Jaimes
Christobal Victor de la
Santisma Trinidad y de Todos
los Santos. Hann er enn ekki
nema tveggja mánaöa, og ekki
farinn að segja til nafns sjálfur
en manni dettur i hug að þaö
eigi einhvern tima eftir að
þvælast fyrir honum að muna
öll þessi nöfn, og nefna þau i
réttri röö, en kannski hægt sé aö
læra þetta eins og annaö.
Annars er pilturinn aöeins
kallaður Fran. Langafinn
Franco er mjög stoltur yfir
þessu barnabarnabarni sinu, og
segir, að þaö sé mikils um vert,
aö það sé heilbirgt og hraust á
allan hátt. Annars ku allir hafa
orðiö mjög ánægöur yfir að
barniö var drengur en ekki
stúlka. Þegar sænskur blaða-
maöur spurði Alfonso
prins,hvernig þeim hjónum
þætti að vera nú að yfirgefa
Sviþjóð svaraði hann þvi til, aö
hann hefði einhvern tima heyrt
óvenjulega lýsingu á Svium.
Þeir væru eins og tómat-
sósuflaska. Fyrst kæmi ekkert
úr flöskunni, enn kæmi ekkert,
en allt i einu dembdist allt úr
flöskunni yfir mann. Þannig
væru þeir. Þau hjón hefðu
eignazt mjög marga vini I
Sviþjóð, og myndu sakna þeirra
nú, þegar þau hverfa á
brott.Hér sjáið þiö svo ungu
hjónin meö litla soninn með
langa nafninu.
Vill ekki kasta klæðum
Anita Ekberg er heldur óhress
yfir þvi, að blöö hafa skrifað um
þaö, að hún vilji gjarnan taka að
sér aö kasta klæðum á
skemmtistöðum við Miðjarðar-
hafiö fyrir dálaglega peninga-
upphæð. Hún hefur borið þessar
fullyröingar til baka, og sagt,
að slikt myndi hún aldrei gera
fyrir peninga, enda þurfi hún
ekki að auglýsa sig á þennan
hátt. Hún sé fyrst og fremst
leikkona, og það nægi henni,
með leiknum geti hún áunniö
sér alla þá frægð, sem hún þurfi
á að halda. Anita hefur keypt
sér hús á Mallorca og þar býr
hún hálft árið, en hinn
helminginn býr hún i Róm. Það
var maður hennar Rik van
Nutter, sem réöi þvi, að þau
fluttu til Mallorca, og honum
hefur llka tekizt að eyða mestu
af peningum stjörnunnar. Það
eru nú ein 15 ár siðan Anita
lék i siöustu kvikmyndinni, og
það er langur timi I lifi kvik-
myndastjörnu. En hún er glæsi-
leg enn, 1 svörtu skikkjunni og
svörtum siðbuxunum, eins og
sjá má á þessari mynd.
DENNI
DÆAAALAUSI
Ég cr sammála Denna. Ættum
við ekki að hætta við að fara i
kirkjuna.