Tíminn - 10.03.1973, Side 19
Laugardagur 10. marz 1973
TÍMINN
19
Líkur á því að við-
skiptinviðBandaríkin
stóraukist
Koma bandarískir hjólbarðar
í stað japanskra?
K J- Reykjavík . Eftir
gengisfellingu dollarans
eru líkur á þvi aö viðskipti
Islendinga við Bandaríkin
muni stóraukast — að
óbreyttu ástandi, og t.d.
spáir Jón Þór Jóhannsson
framkvæmdastjóri véla-
deildar SIS því, að inn-
flutningur á bandarískum
hjólbörðum og bandarísk-
um bílum muni aukast að
mun. Hjalti Pálsson fram-
kvæmdastjóri innflutnings-
deildar Sambandsins telur
hugsanlegt, að viðskipti Is-
lendinga snúist meira til
Vesturheims, en hann benti
jafnframt á í viðtali við
Tímann, að islendingar
hafi ætíð f lutt mikið inn frá
Bandaríkjunum, og geri
enn.
Jón Þór Jóhannsson sagöi i viö-
tali viö Sambandsfréttir, aö verö
á bandariskum bilum sé nú oröið
mun hagstæðara en á sambæri-
legum vestur-evrópskum bilum.
Sem dæmi má nefna, aö Chevro-
let Nova (bandarískur) hefur
hækkaö úr 654 þúsundum frá þvi i
desember og upp i 744 þúsund.
Opel-Record fjögurra dyra (v,-
þýzkur) hefur á sama tima hækk-
aö úr 605 þúsundum og upp i 794
þúsund. Hluti þeirrar hækkunar
stafar þó af hækkunum erlendis,
en þarna munar fimmtiu þúsund
krónum á sambærilegum bllum,
og er þó sá ódýrari allur meiri og
stærri.
i viðtalinu viö Sambandsfréttir
sagöi Jón Þór einnig, aö hinar ný-
afstöðnu gjaldeyrissveiflur heföu
þau áhrif, aö bandariskar vörur
yröu almennt talaö hagstæöari I
innkaupum en áöur. Auk bilanna
á þetta t.d. við um hjólbaröa, en
Jón sagöi, aö ljóst væri, að verö á
bandarlskum hjólböröum yröi
svo hagstætt, aö hætt væri við aö
bandarisku hjólbarðarnir ættu
eftir aö taka verulega sölu frá
þeim japönsku hjólbarðategund-
um, sem undanfarið hafa veriö
mest ráöandi hér á markaönum.
Þá má geta þess að lokum, að
nú er aftur aö hef jast innflutning-
ur á GMC diesel vörubilum frá
Bandarikjunum, en þeir voru vel
þekktir hér á markaðnum fyrir
nokkrum árum. Er liklegt, aö
þessir vörubllar eigi eftir aö veita
þeim evrópsku, sem vinsælastir
hafa verið á undanförnum árum
hér á landi, harða samkeppni.
Innflutningsdeildin með
1800 milljón króna veltu
Tlminn haföi samband viö
Hjalta Pálsson, framkvæmda-
stjóra innflutningsdeildar Sam-
bandsins, en innflutningsdeildin
er með stærstu innflutningsfyrir-
tækjum landsins, og á s.l. ári var
heildarvelta deildarinnar um
1.800 milljónir króna. Fyrst
spurðum viö Hjalta um áhrifin af
hinum sifelldu breytingum á
gjaldmiölum heimsins.
— Þessi vandamál hafa aö
sjálfsögöu hina margvislegustu
erfiöleika i för meö sér fyrir allar
undirdeildir okkar, þó aö nokkuö
sé þaö mismunandi eftir þvi um
hvaöa vörufl. er aö ræöa. Fyrst
mætti nefna gengistap, sem er
mjög tilfinnanlegt, sérstaklega
vegna innflutnings á kjarnfóöri
og byggingarvörum, en þessar
vörur og nokkrar fleiri, eru flutt-
ar inn meö gjaldfresti, þannig aö
alltaf er stór hluti þeirra seldur,
þegar gengisbrey tingarnar
verða, og lendir þaö tap á inn-
flytjandanum. Sifelldar breyting-
ar skapa vissan glundroða og
valda einatt tortryggni viöskipta-
vina og gera erfitt um vik við út-
gáfu verölista, þvl prentsvertan
er varla þornuö, þegar þeir eru
orönir úreltir. Stöövun gjald-
eyrisviöskipta I allt aö heila viku I
einu hindrar eðlilega hreyfingu á
vörunni inn á lagera, sem er mjög
bagalegt hjá stórum fyrirtækjum.
Svona mætti halda áfram aö
telja.
— Eru ekki likindi til, aö þiö
snúiö ykkur meira til Bandarikj-
anna og Kanada meö innkaup,
þegar gengi dollarans miðaö viö
Islenzkar krónur, veröur æ hag-
stæöara?
—■ Jú, þaö er vissulega hugsan-
legt, en margs er þó aö gæta I þvi
sambandi. Hér áöur fyrr var
mjög mikill innflutningur frá
Bandarikjunum og hann hefur
alls ekki horfið, þó aö hann hafi
minnkað mikiö. Viö flytjum t.d.
inn mest allt okkar hveiti frá
þeim og sömuleiöis niöursoöna og
þurrkaöa ávexti auk nýrra af og
til, ýmsar kryddvörur, pakkavör-
ur, skrár og húna, glervörur og
sitthvað fleira. Veröbólga hefur
ekki oröiö eins mikil I Banda-
rikjunum eins og mörgum
Evrópulöndum þar sem hún hefur
valdiö stööugum hækkunum nú
siöustu ár, sem veröa enn tilfinn-
anlegri fyrir okkur, þegar gengis-
breytingar bætast svo þar ofan á.
Þetta á ekki hvaö sizt viö um
byggingarvörur, sem hækka
verulega á þessu ári. Á móti
þessu koma svo lægri tollar frá
Evrópu eftir inngöngu okkar i
EFTA og EBE, svo og hærri
flutningskostnaður frá Ameríku.
— Megum viö ekki vænta þess
aö fá aö sjá fleiri af þeim gömlu
vörumerkjum, sem a.m.k. eldra
fólk man eftir og mikiö voru flutt
inn frá Bandarikjunum hér áöur?
— Ég held varla aö fnikil breyt-
ing veröi á þvl, fyrst\)g fremst
fyrir þaö, aö flest hinna stærri,
þekktari bandarisku fyrirtækja
hafa reist verksmiöjur I Evrópu
og þaöan höfum viö fengiö flest af
þessum þekktu merkjum. Vafa-
litiö á þetta sinn þátt I erfiöleikum
Bandarikjamanna meö viö-
skiptajöfnuö sinn. Auk þess er hér
aðallega um matvöru aö ræöa, en
þær hafa hækkaö einna mest i
Bandarikjunum aö undanförnu.
— Nú hefur verið mikiö flutt inn
af vörum frá Austurlöndum, og
hafa þær verið tiltölulega ódýrar.
Veröur áframhald á því?
— Þaö er rétt, aö japanskar
vörur voru mjög ódýrar, en á slö-
ustu árum hafa þær hækkaö tals-
vert og viö gengisbreytingarnar
nú má búast við, aö mismunurinn
veröi ekki eins mikill, ef nokkur.
Flest þeirra fyrirtækja, sem viö
höfum skipt viö I Asiu, hafa reikn-
ingsfært slnar vörur I dollurum,
og viö gengisbreytingarnar núna
hækka þeir dollaraveröiö sem
gengismuninum munar. Lita nú
margir til Kina, en raunar má
segja, aö öll þessi mál séu meira
og minna I óvissu þar til einhver
stöðugleiki fæst I gjaldeyrisviö-
skipti og hin stærri iönaðarriki
finna leiöir til aö halda jafnvægi i
gjaldeyrismálum heimsins.
Viö flytjum nú inn vörur frá 34
löndum i öllum heimsálfum og
þaö veltur auðvitaö á mjög miklu,
hvernig þessi mál skipast, hvert
við beinum viöskiptum okkar
fyrst og fremst.
Varnarliðið og
þjóðaratkvæði
Framsóknarfélag Reykjavikur heldur fund, miðvikudaginn 14.
marz kl. 20.30 að Hótel Esju.
Fundarefni: Varnarliöiö og þjóðaratkvæði. Framsögumaður
Jón Skaftason alþingismaður. Allt framsóknarfólk velkomiö
Stjórn Framsóknarfélags Reykjavikur
Árnesingar!
Árnesingar!
Almennur fundur um verkalýösmál verður haldinn I Samkomu-
sal KÁ mánudaginn 12. marz og hefst kl. 21. Framsögumenn
Björn Jónsson forseti ASl og Baldur Óskarsson framkvæmda-
stjóri MFA. Framsóknarfélögin i Árnessýslu.
Framsóknarfélögin i Kópavogi halda almennan fund I Félags-
heimilinu (neðri sal) fimmtudaginn 15. þ.m. kl. 20.30 slðdegis
stundvislega — Umræöuefni:
Efnahags- og utanrlkisstefna rikisstjórnarinnar
Framsögumenn: Hannes Jónsson, blaöafulltrúi Steingrimur
Hermannsson, alþm.
Allir velkomnir á fundinn
Stjórnir félaganna.
Aðalfundur miðstjórnar
framsóknarflokksins
1973 hefst að Hótel Esju föstudaginn 27. april og stendur i þrjá
daga. Þeiraðalmenn, sem ekki geta mætt,eru beðnir aö tilkynna
það til flokksskrifstofunnar I Reykjavik, og til viðkomandi vara-
manna sinna.
Film Centrum í MIR-
salnum í dag
Mjög góð aðsókn hefur verið að
sýningum kvikmyndafólksins
Stp, Reykjavik. — Norræni kvik-
myndahópurinn, sem dvaliö hef-
ur hér undanfarna daga og haldið
sýningar á myndum sinum, eins
og fyrr hefur verið sagt frá hér I
blaðinu, heldur sina slðustu sýn-
ingu i dag, 10. marz i MlR-salnum
i Þingholtsstræti. Er þessi
lokasýning á vegum Menningar-
og fræðslusambands alþýðu.
Verða stanzlausar kvikmynda-
sýningar i MIR-salnum frá kl. 2
eftir hádegi til kl. 7 slðdegis. Sýn-
ingin verður öllum opin og að-
gangur ókeypis. Er fólki og frjálst
aö koma og fara aö vild allan tim-
ann. Myndirnar, sem sýndar
veröa þarna, fjalla um verkalýðs
mál, félagsleg vandamál og
vandamál þriðja heimsins.
(Þeim, sem fýsir að vita meira
um norræna kvikmyndafólkið
skal bent á grein um það I Timan-
um miðvikudaginn 7. marz s.l.)
Tvær islenzkar verða einnig
sýndari MÍR-salnum I dag. Eru
það mynd Þorgeirs Þorgeirsson-
ar Róöur.er sýnd var I sjónvarp-
inu fyrir skömmu, en veröur nú
sýnd i litum. Hin myndin er sú,
sem Þorsteinn Jónsson geröi um
Framboðsflokkinn margfræga,
en sú mynd var fyrir nokkru sýnd
i sænska sjónvarpinu og hlaut
frábærar viötökur hjá Svium.
Hún var og sýnd i íslenzka sjón-
varpinu fyrir skömmu. Þess má
geta, að jafnhliða sýningunum
verða umræöur um myndirnar.
Mjög góð aðsókn hefur verið að
sýningum norræna kvik-
myndafólksins undanfarna daga
og fjörugar umræður átt sér stað.
Kvikmyndafólkið, sem er fimm
manns, frá Noregi, Sviþjóð og
Finnlandi, hefur haft sýningar i
Norræna húsinu, á Akureyri
(tvær sýningar), hjá SOM i
Reykjavik, á vegum félagsfræði-
deildar H.I. og i Myndlistar- og
handíðaskólanum. Þá hefur hóp-
urinn og átt fund meö íslenzku
kvikmyndagerðarfólki.
SPARIÐ EENNIG SPORIN!
Orðsending
um nýja þjónustu
Vér höfum þá ánægju aðtilkynna yður að náðst hefur sam-
komulag við Tryggingastofnun ríkisins um greiðslu á öll-
um tegundum tryggingabóta inn á bankareikninga.
$
Framvegisgetum vér því boðið yðurþá auknu þjónustu, að
vitja greiðslna yðar þar, jafnóðum og þær koma til út-
borgunar og leggja inn á sérstaka sparisjóðsbók eða hvern
annan viðskiptareikning hér við bankann, sem óskað er.
SAMVINNUBANKINN
Bankastræti 7 sími 20700
Hóaleitisbraut 68 sími 84220