Tíminn - 10.03.1973, Qupperneq 20
20
TÍMINN
Laugardagur 10. marz 1973
jJmsión: Alfreð Þorsteinssor
2 mán-
uðir milli
leikja
MIKIL óánægja hefur rlkt hjá
2. flokks piltum Vikings i
handknattleik. Það er ekki
nema von, þeir hafa ekki
leikiö i tslandsmótinu I rúm-
lega tvo mánuöi. Vikingur lék
sinn fyrsta leik I tslands-
mótinu i janúar s.l. eöa 6.
janúar. t dag eru rúmlega
tveir mánuðir siöan og halda
þeir upp á þaö meö þvi aö
ieika sinn annan ieik I mótinu.
tþróttasiöan hefur frétt þaö,
að þeir hafi I huga aö afhenda
mótanefnd H.S.t. blómvönd I
þessu tilefni.
A þessu sést, að móta-
nefndin er á góðri leið með að
skemma islenzkan hand-
knattleik. Það getur ekki verið
mikill áhugi hjá ungum
piltum, sem leika kappleiki
með tveggja mánaöa millibili.
Ungir piltar verða að fá
verkefni, ef þeir eiga að fá
áhuga á handknattleik, eða ná
árangri I Iþróttinni. öll niður-
röðun á leikjum yngri
flokkanna er til skammar.
Kvenna-
leikir um
helgina
EIN UMFERÐ verður leikin i 1.
deild kvenna I handknattleik á
morgun. Armannsliðið leikur
gegn Val i fyrsta leiknum og ætti
það aö verða spennandi leikur.
Armann fór mjög seint I gang i
mótinu, liðiö tapaöi fyrstu
þremur leikjunum. Nú virðist
liðið, þ.e. stúlkurnar i Armanni,
búið að finna sig og má þvi búast
viö, að þær veiti Val harða
keppni. Leikur liöanna hefst kl.
14.30.
Strax á eftir mætast KR og
Fram. KR-liðið er nú i fallhættu
og er þvi þýðingarmikiö að það
vinni leikinn. Breiðablik, sem er
einnig i fallhættu, leikur gegn
Vikingsliðinu.
Halda mót,
þrátt fyr-
ir ófærð
UM HELGINA er fyrirhugað aö
halda Reykjavikurmót i svigi og
stórsvigi I Bláfjöllum. Vegurinn
er lokaður/ en séö verður um
flutning á keppnisfólki á keppnis-
stað. 1 dag, laugardag 10. marz,
hefst keppni i stórsvigi, sem
byrjar kl. 2. e.h. en nafnakall
hefst kl. 1. e.h.
A morgun, sunnudag 11. marz,
verður keppt I svigi og hefst
keppnin kl. 1. e.h. en nafnakall
hefst kl. 12 á hádegi.
Keppendur eru beðnir að mæta
kl. 11 f.h. á laugardag við endann
á snjóruðningnum.
GKK
Skíðaganga
teykjavíkur-
mótsins 1973
NIÐAGANGAN hefst við Skiöa-
skála i Hveradöium á sunnu
aginn 11. marz klukkan 3.
Keppt verður i 10 km skiða-
,'öngu fyrir 17 ára og eldri, öllum
er heimil þátttaka.
Göngustjóri verður Haraldur
’álsson og mótsstjóri verður
’ónas Asgeirsson.Ef mögulegt er,
pá tilkynnið þátttöku til gjaldkera
Skiðafélagsins i sima: 19931 og
12371.
EINS OG kunnugt er hafa leik-
menn i knattleikjum leikið i
búningum með auglýsingum á og
þá einkum I handknattleik og
körfubolta. Nú hafa keppendur i
frjálsum iþróttum fetað i fótspor
þeirra og á siðasta meistaramóti
íslands kepptu keppendur i
búningum með auglýsingum eins
og sjá má á myndinni, en þeir
á myndinni eru, taldir frá
vinstri: . Borgþór Magnússon,
Valbjörn Þorláksson og Stefán
Jóhannsson. GKK
Auglýsa
Bridgestone
BREIÐHOLTSHLAUP
ÍR í HRÍÐARMUGGU
Nú þegar keppni knattspyrnu-
kappanna okkar hefur veriö
frestað viku eftir viku vegna veö-
urs og slæmra aðstæðna, lætur
yngsta iþróttafólkiö okkar sér
ekkert fyrir brjósti brenna I þeim
efnum. Er þar átt viö þá krakka
sem taka þátt I hlaupum sem tR
gengst fyrir á hverjum sunnu-
degi, annaöhvort uppi I Breiöholti
eöa I Hljómskálagarðinum.
Þar láta keppendur sig ekki
vanta þótt færöin sé ekki upp á
þaö bezta, og hætta sé á þvi aö
hljóta skell hvenær sem er. Þann-
ig var þaö um siðustu helgi, er 50
krakkar mættu til leiks í ööru
Breiðholtshlaupi vetrarins, þrátt
fyrir slæma færö og hriöar-
muggu.
Agætir timar náöust hjá sum-
um, en aðrir hlutu byltu og gekk
ekki eins vel. Hér á eftir birtum
viö úrslit hlaupsins, og viö mun-
um framvegis I vetur birta hlið-
stæð úrslit, eins og efni og ástæö-
ur leyfa.
Úrslit hlaupsins urðu sem hér
segir: Stúlkur: ’59 min.
Dagný Pétursdóttir 3,32
Gunnhildur Hólm 3,55
Rösa D. Grétarsdóttir 3,57
’60 min.
Ólöf Amundadóttir 3,55
’61 min.
Svala Vignisdóttir 4,02
’63 min.
Eyrún Ragnarsdóttir 4,07
’64 min.
Bára Jónsdóttir 4,56
’65 min.
Margrét Björgvinsdóttir 4,41
Guðrún Ölafsdóttir 4,59
Ólafia Lövdahl 5,23
’66 min.
Sigrún Edda Lövdahl 5,32
Soffia Ingv. Eiriksd. 6,52
Piltar: ’57 min.
Stefán Ragnar Garðarss. 3,06
’58 min.
Þorkell Ragnarsson 3,10
Ólafur Haraldsson 3,10
Loftur Loftsson 3,31
’59 min.
óskar Thorarinsson 3,27
Stefán Sigurjónsson 3,45
Björn Kristjánsson 3,57
Framhald á bls. 23
Þegar „aukaatriðin"
gleymast er voðinn vís
KRÖFTUGT mótmælabréf frá
veikara kyninu hleypti af stað
umræðum um mótaskipulagið
I handknattleik. Svo virðist,
sem viðar sé pottur brotinn við
mótaskipulag en i 1. deild
kvenna. Frá þvi er skýrt á
iþróttasiðunni i dag, að tveir
mánuðir hafi liðið á milli
leikja hjá 2. aldursflokki Vik-
ings. Og ef að likum lætur, má
finna fleiri dæmi um slikt
óskipulag, sem er til þess eins
fallið að draga úr áhuga unga
fólksins á iþróttinni.
Það er til litils fyrir einstaka
forustumenn handknattleiks-
mála að deila um það
innbyrðis hjá hverjum sökin
tiggi. Þetta er mái allrar
handknattleikshreyfingar-
innar, sem leysa verður sam-
eiginlega. A.m.k. sættir hand-
knattleiksfólk sig illa við það,
að einu viðbrögð forustu-
manna handknattleiksmáia sé
innbyrðis karp um þessi mál á
meðan ekki bólar á lag-
færingum.
Að öllum sérsamböndunum
ólöstuðum hafa handknatt-
leiksmenn verið einna heppn-
astir með forustumenn á
undanförnum árum. Jafnan
hafa valizt dugmiklir menn til
forustu i HSI, og núverandi
stjórn undir forustu Einars
Mathiesen er skipuð hæfum
mönnum. Þess vegna kemur
það talsvert á óvart, að þessi
þáttur málanna, mótaskipu-
lagið, skuli ekki vera betri en
raun ber vitni. Einblina
forustumennirnir e.t.v. um of
á landsleiki og unglingalands-
leiki og starfsemina i kringum
landsliðin? Það er vissulega
ekki að ástæðulausu, að spurt
er um slikt. Svo virðist.sem
forustumennirnir gleymi
„aukaatriðum” eins og móta-
skipulagi og dómaramálum,
svo að eitthvað sé nefnt, og
átti sig ekki á þvi, að ef
þessum málaflokkum er ekki
sinnt til jafns við aðra, bitnar
það á iþróttagreininni i heild.
Handknattleiksiþróttin á
Islandi stendur á timamótum.
Lengi vel hefur hún að mestu
leyti verið einskorðuð við
Stór-Reykjavfkursvæðið, en
nú taka utanbæjaraðilar i
vaxandi mæli þátt i lands-
mótum. Og e.t.v. verður þess
ekki langt að biða, að Akur-
eyringar eignist lið i 1. deild i
fyrsta sinn. En þessi aukna
þátttaka utanbæjaraðila,
samfara aukinni þátttöku
almennt i iþróttagreininni,
kallar á aukið skipulag, og
e.t.v. er illmögulegt að skipu-
leggja þessi mál án þess að til
þess sé ráðinn launaður
starfsmaður. Nokkur sérsam-
bönd hafa farið út á þá braut
að ráða launaða fram-
kvæmdastjóra að einhverju
eða öllu leyti Hafa þessi sér-
sambönd haft við svipaða
fjárhagsörðugleika að etja og
HSI, en ekki sett það fyrir sig.
Þess vegna er þeirri spurn-
ingu varpað fram hér, hvort
ekki sé ástæða fyrir stjórn HSl
að velta þvi vandlega fyrir sér
að ráða framkvæmdastjóra
fyrir sambandið. Starfsemin
er orðin það öflug og umfangs-
mikil, að erfitt virðist að ráða
fram úr öllum verkefnum,
nema launaður starfsmaður
komi til. —alf.
Viðavangshlaup
íslands
VIÐAVANGSHLAUP íslands fer
fram við Laugardalsvöllinn i
Reykjavik sunnudaginn 25, marz
kl. 14.00. Keppt verður i 4
flokkum,: kvennaflokki, pilta,
sveina, drengja og fullorðins-
flokki.
I öllum flokkum verður keppt i
3-5 og 10 manna sveitum, og eru
veglegir farandbikarar i verðlaun
fyrir sveitir auk 1. 2. og 3. verð-
launa fyrir einstaklinga.
Þátttökutilkynningar þurfa að
hafa borizt til skrifstofu F.R.Í.. i
Iþróttamiðstöðinni i Laugardal
eða i pósthólf 1099, ásamt þátt-
tökugjaldi kr. 50.00 á hvern þátt-
takanda i siðasta lagi 20. marz
næstkomandi.
Númer og leiðarlýsing verður
afhent i skrifstofu F.R.I. milli kl.
10-12 keppnisdaginn.
Bjarni Stefánsson á
E.M innanhúss
Frjálslþróttasambandið hefur
ákveðið að senda Bjarna Stefáns-
son K.R. til þátttöku i Evrópu-
meistaramótinu innanhúss, sem
fram fer i Rotterdam 10. og 11.
marz næstkomandi. Bjarni mun
keppa i 400 m hlaupi. Haukur
Sveinsson iþróttakennari fer með
honum.
Bjarni Stefánsson
Alþjóðamót i
Reykjavik.
Frjálsiþróttasambandið sendi á
siðastliðnu ári dreifibréf til
Evrópulanda og Ameriku um al-
þjóðamót i Reykjavik i júli næsta
sumar.
Svar hefur nú þegar borizt frá
Sovétrikjunum og munu koma
þaðan 2 iþróttamenn ásamt
fararstjóra. Tilkynnt verður siðar
hverjir það verða.
Fundur hjó
Fram í dag
KNATTSPYRNUFÉLAGIÐ
Fram efnir til félagsfundar i dag.
kl. 2 i Alftamýrarskóla. A dag-
skrá fundarins verður:
1. Tilnefning heiðursfélaga.
2. önnur mál.
Stjórnin.
Miklatúns-
hlaup
Ármanns
MIKLATÚNSHLAUP Ármanns
fer fram á morgu kl. 14.00. Þeir,
sem hafa tekið tvisvar eða oftar
þátt i hlaupinu, fá viðurkenningu
að hlaupinu loknu. Þátttakendur
eru beðnir að mæta timanlega.
Leiðrétting
AÐ GEFNU tilefni skal það tekið
fram, að FH annast ekki sölu
aðgöngumiða að iþróttahúsinu i
Hafnarfirði. Þá skal það tekið
fram, að Einar Mathiesen, for-
maður HSI, gaf ekki upplýsingar
um þetta mál á iþróttasiðunni i
gær i nafni FH, eins og mátti
skilja á fréttinni. Leiðréttist þetta
hér með. Hins vegar stendur það
óhaggað, að Valsmenn fengu ekki
það magn aðgöngumiða, sem
þeir höfðu óskað eftir. en
skýringin á þvi mun vera sú, hve
seint ósk þeirra kom fram.