Tíminn - 17.03.1973, Blaðsíða 22

Tíminn - 17.03.1973, Blaðsíða 22
22 TÍMINN Laugardagur 17. marz 1973 Góðtemplarareglan kyn Hvað vill Góðtempl- arareglan GÓÐTEMPLARAREGLAN var stofnuö árið 1851, en fyrsta stúkan hér á landi 10. janúar 1884, stúkan Isafold á Akureyri. Reglan hér á landi hefur ætið verið deild i alþjóðafélagsskapnum. A alþjóðaþingi i Istanbul árið 1970 voru grundvall'arlög samtakanna tekin til endurskoðunar. Stefnu Reglunnar verður bezt lýst með þvi að taka hér upp fyrstu grein þessara grundvalllarlaga: Markmið Alþjóðafélagsskapar góðtemplara, sem stofnaður var árið 1851, er frelsi allra einstaklinga til fegurra, frjálsara og fullkomnara lifs. Félagsskapurinn hefur að grundvallarskilyrði algjört bindindi á áfenga drykki og er algjörlega á móti allri notkun hvers konar ávana-og fiknijyfja án læknisráðs. Starfsemi félagsskaparins er byggð á hugmyndinni um alþjóölegt bræðralag; en samkvæmt þvi eru allir réttbærir til persónulegs frelsis, hamingju og möguleika til sjálfsákvörðunar og tjáningar um þroskaleiðir. Samkvæmt þvi er hverjum einstaklingi skylt að vinna að farsæld meðbræðra sinna og leggja sinn hlut til framfara þjóðanna. Góðtemplarar vilja: 1. Byggja upp félagshreyfingu um heim allan fyrir konur og karla, án tillits til kynþátta, þjóðernis, trú- arbragða, stéttaskiptingar eða stjórnmálaskoðana. 2. Gefa gott fordæmi með algjöru bindindi einstaklingsins á áfenga drykki og fiknilyf, skapa heilbrigðar lifsvenjuiog undirbúa jarðveginn fyrir áfengislausa menningu. 3. Fá áfengisneytendur til að hætta neyzlu áfengis og veita þeim styrk I baráttu þeirrameð þviað taka þá inn i bræðralag félagsskaparins. 4. Útbreiða þekkingu um afleiðingar áfengisnautnar og fiknilyfjaneyzlu með gagnasamlegri fræðslu, sérstaklega i skólunum. 5. Vinna að og styðja setningu laga, er dragi úr áfengis- og fiknilyfjaneyzlu, og styðja áð framkvæmd slikra laga. 6. Vinna aðmannlegu samfélagi, þar sem jafnrétti og bræðralag sé takmarkið. 7. Rækta andlegt frelsi og aukið umburðarlyndi og samvinnu á öllum sviðum mannlegs llfs. 8. Vinna að varanlegumfriði meðal allra þjóða heims. Skuldbinding, sem Reglufélagar gangast undir, er mjög stutt og I samræmi við þessa stefnuskrá. Um þaö efni segir svo I grundvallarlögunum: Hver félagi skal skuldbinda sig til að lifa i fullkomnu bindindi á áfenga drykki og vinna að þvi að skapa þess konar viðhorf meðal annarra. Ennfrémur skalsérhver félagifallastá að vinna fyrir og styðja að friði og bræðralagi. Reglan stendur öllum opin, sem vinna vilja samkvæmt þessari stefnuskrá. Ólafur Þ. Kristjánsson stórtemplari Það, sem sköp um skiptir ENGINN mælir þvi i mót, að áfengisneyzla hafi slæmar afieiðingar hér á landi. Þar eru dæmin deginum ljósari. Það er orðið næsta al- gengt að fréttir berist um hörmuleg ölæðis- verk, — voðaverk, sem bregða varanlegum skugga á líf hlutaðeig- enda. Það eru engar tölur til um fjölda mannsláta vegna drykkju- skapar beinlinis, en sizt mun of- mælt að i flestum árum nú orðið nái þau fyllilega sambærilegri tölu við áhöfn meiriháttar fiski- skips i flotanum islenzka, ef saman eru taldir þeir, sem sjálfir fara sér að voða og hinir, sem drukknir menn verða að bana viljandi og óviljandi. Þó mun annað manntjón meira, og verður engri tölu á það komið, en þar á ég við þá, sem bugast af hugraun ýmiss konar og sálar striði vegna drykkjuskapar sjálfra sin og sinna nánustu og stöðugum kviða og áhyggju vegna yfirvofandi óskapa og óhappa. Stór er sá hópur, sem af þeim sökum tapar heilsu og starfsþreki og fellur frá fyrir tim- ann. Þó er enn ótalið það, sem vera mun sárasta og versta tjónið, en það eru andleg áföll, sem verða hlutskipti barna þeirra, sem fara á mis við nauðsynlega umhyggju og öryggi á viðkvæmustu mótun- arskeiðum ævinnar vegna áfengisneyzlu foreldranna og af- leiðingu hennar. Það ævitjón kan enginn að meta. Þessari upptalningu skal hætt. Það eru smámunir hjá þvi, sem minnzt hefur verið á, þó rikis- sjóður verði að greiða á einu ári 700 þúsund krónur fyrir auglýsingar eftir stolnum bilum, og bilaeigendur verði að hafa skaða sinn óbættan,þegar flakið af bilnum finnst, þar sem drukk- inn þjófur skildi við hann, o.s.frv. Þetta eru staðreyndir, sem allir viðurkenna, og allir játa að ættu að breytast, Um hitt greinir menn á, hvernig eigi að snúast við þessum vanda. Það, sem hér hefur verið sagt, er eins konar formáliað umræðum á þeim vett- vangi. Þetta eru viðkvæm mál. Þau eru svo viðkvæm og sár.að ýmsir kveikna sér við,ef á að ræða þau, enda misjafnlega metið að það sé gert. En þegar lif liggur við dugar enginn kveifarskapur, og það eru mörg Islenzk mannslif undir þvi komin, hvernig tekið er og tekið verður á þessum málum. Það er augljós staðreynd, að áfengisböl stendur alltaf og alls staðar I hlutfalli við það, hvað áfengisneyzla er almenn. Þar sem engin áfengisnautn er, — þar er ekkert áfengisvandamál. Þar sem drykkjuskapur er almennur má alltaf búast við ósköpum og vandræðum á samkomum. Þar sem margt fólk kemur saman og allt neytir áfengis, er alltaf hætta. Þessar staðreyndir eru sönnun þess, aö þaö er fyrst og fremst almenn bindindissemi sem dugar til að hamla gegn áfengisböli. Stærð áfengisbölsins fer einkum eftir þvi, hvort al- menn bindindissemi er meiri eða minni. Þetta er rifjað hér upp, til að minna á nokkur grundvallaratriði þessara mála. Það er drykkjutízkan —■ sú venja að veita og drekka áfengi, — sem býður hættunni heim. Þar sem þessi mál hafa verið athuguð með nokkurri nákvæmni, svo sem i Sviþjóð, kemur i ljós, að um það bil einn maður af hverj- um 10, sem eitthvað byrja á neyzlu áfengis, drekkur sér til vandræða á einhvern hátt. Afdráttarlausir bindindis- menn eru þeir klettar, sem hol- skefla drykkjutizkunnar brotnar á. Séu þeir engir, æðir hún yfir viðnámslaust og veldur ómetan- legu tjóni. Til eru staðir, þar sem bindindissemi er það almenn, að Framhald á bls. 27. ÞAÐ ER stundum ritaö og rætt um vandamál áfengisneyzlu og annarra fiknicfna, og sjá fæstir ráð til bóta. Vandinn er mikill, en þó ekki óyfirstlganlegur, fræði- lega séð. Með þessu á ég við, að iausn þessa vandamáis býr I okkursjálfum sem einstaklingum og félagsverum. Ef við leitum og Iftum inni okkur sjáif, þá er lausnin þar, I breyttum llfsvið- horfum og viðbrögðum við sam- félagslegum vanda þjóðfélagsins og þeirra mörgu einstaklinga er heyja sifelid hjaðningavlg við marghöfðaðan þursa þessara ástriðuefna. Samfélagslegur vandi þjóðar- innar er sá að þeir, er aðhyllast neyzlu áfengis, vilja ekki þurfa að neita sér um hana og telja það til ófrelsis,ef það væri af þeim tekið. I þessu felst.að hvorki hjá ein- staklingum eða ráðamönnum hefur fengizt viðurkenning þess, sem þó er þekkt staðreynd, að áfengið er fikniefni og vimugjafi, og eftir þvi bæri að fara um með- höndlun þess. Af þessu stafar tregða áfengisneytenda að viður- kenna aðrar og fleiri staðreyndir I þessu sambandi, er bent verður á hér á eftir I stuttu máli. Vandinn er I raun og veru ein- faldur, en þó engu að slður erfiður viðfangs. Það felst meðal annars I áðurnefndri tregðu einstaklinga og almennings að móttaka og viðurkenna staðreyndir og taka afstöðu samkvæmt þvi. Margir menn vilja ekki viðurkenna> að áfengi sé fikniefni og vimugjafi og að neyzla þess valdi oft og tiðum sjálfgerðri sviptingu þess að heita og vera allsgáður, eins og neyzla slikra efna hefur I för með sér. Tregða á viðurkenningu þessara sanninda sézt m.a. I þvi, að hversu mikill fjöldi manna vill ekki játa þeirri staðreynd,að þeir séu siður ökuhæfir með áfengi i kollinum en allsgáðir. Neitun á viðurkenningu þessarar stað- reyndar sézt að staðaldri i slys- Læknafélag íslands: Ályktun aðalfund- ar um áfengismál Eftirfarandi ályktun frá stjórn Læknafélags Islands var sam- þykkt á siðasta aðalfundi félagsins: „Aðalfundur L.l. haldinn á Blönduósi 23.-25. júni 1972 telur að . fullkomins ósamræmis gæti i afstöðu almennings og yfirvalda til neyzlu fikniefna, lyfja sem hafa ávanahættu I för með sér, og neyzlu áfengis. Eins og nú standa sakir, er áfengisneyzla landsmanna lang- samlega mesta vandamálið af framangreindum atriðum og er réttnefnt áfengisböl. Aðalfundurinn ályktar þvi, að sérstakra aðgerða sé þörf til að koma I veg fyrir neyzlu áfengis. Þar eð ekki hefur tekizt að skapa sterkt almenningsálit gegn ofneyzlu áfengis, telur fundurinn að ekki verði komizt hjá þvi að sala áfengra drykkja verði tak- mörkuð. Skorar fundurinn þvi á viðkomandi yfirvöld að hefja nú þegar aðgerðir til að draga úr sölu áfengra drykkja”.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.