Fréttablaðið - 15.08.2004, Blaðsíða 1
GRÍÐARLEG EYÐILEGGING Hvirfil-
bylurinn Charley gekk yfir Flórída og olli
meiri skemmdum og manntjóni en nokkur
hvirfilbylur hefur gert í meira en áratug.
Ríkisstjórinn segir versta óttann hafa orðið
að veruleika. Sjá síðu 4
SKIPTAR SKOÐANIR Þingmenn grein-
ir á um hvort umskipti á rekstri Landspítal-
ans sé sönnun þess að hagræða hafi mátt í
rekstri sjúkrahússins eða til kominn vegna
þess að álagið á starfsmönnum hafi verið
aukið verulega. Sjá síðu 6
EKKERT VOPNAHLÉ Tilraunir til að
semja um vopnahlé í Najaf runnu út í
sandinn í gær. Útlit er fyrir að áframhald
verði á bardögunum sem hafa staðið yfir í
rúma viku og kostað nokkur hundruð
manns lífið. Sjá síðu 2
PÁFI Í PÍLAGRÍMSFERÐ Jóhannes
Páll páfi annar hélt í pílagrímsför til lind-
anna í Lourdes. Þar sagðist hann skilja
þjáningar sjúkra enda ætti hann sjálfur við
veikindi að stríða. Sjá síðu 4
SLÖKKVILIÐSDAGURINN Ungum
sem öldnum býðst að kynna sér tæki og tól
slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins í dag.
Mikið verður um að vera við verslunarmið-
stöðina Fjörðinn í Hafnarfirði.
Þrátt fyrir ófrið í Írak slá líkams-
ræktarmenn ekki slöku við í lík-
amsræktarstöðinni sem nefnd er
eftir Arnold Schwarzenegger.
▲
SÍÐA 16
The Arnold Classic
Gym í Bagdad
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 550 5000
Kvikmyndir 26
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 20
Sjónvarp 28
SUNNUDAGUR
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
15. ágúst 2004 – 220. tölublað – 4. árgangur
N†TT KORTATÍMABIL
SÍÐA 30
▲
Reynir Lyngdal öskrar
á tígrisdýr
Á BATAVEGI EFTIR ERFIÐ VEIKINDI
Davíð Oddsson tók á móti Göran Persson og eiginkonu hans að heimili sínu í gær. Hann lýsti við það tækifæri framtíðaráformum sínum
um að fara í utanríkisráðuneytið þegar hann stígur af stóli forsætisráðherra. Davíð ætlar að sjá til hvort hann nái ekki fullum kröftum aftur.
Fjölburafæðing:
Tvíburi ól
fjórbura
BANDARÍKIN, AP 34. afmælisdagur
Geana Morris á eftir að verða
henni heldur betur eftirminnileg-
ur því þá fæddi hún tvö pör af ein-
eggja tvíburum. Sjálf er Geana
tvíeggja tvíburi.
„Þetta er mjög sérstakur dagur
fyrir mig,“ sagði Geana himinlif-
andi eftir að hafa fætt fjórburana.
Geana gekkst undir tæknifrjóvg-
un í janúar. Þá var tveimur fóstur-
vísum komið fyrir í henni í von
um að annar næði að þroskast í
barn. Árangurinn var því vonum
framar.
Fyrir eiga Geana og maður
hennar tveggja ára son. ■
Opið 13-17 í dag
STJÓRNMÁL Davíð Oddsson forsæt-
isráðherra gerir ráð fyrir að taka
við starfi utanríkisráðherra þegar
Halldór Ásgrímsson tekur við
sem forsætisráðherra hinn 15.
september næstkomandi.
Davíð hefur verið fjarverandi
frá störfum undanfarnar vikur
vegna skurðaðgerða sem hann
gekkst undir og segir ekki víst
hvenær hann snýr aftur til starfa.
„Ég býst við að verða á hálfu gasi
eitthvað fram eftir og sé til hvort
ég nái fullum kröftum. Geri ég
það ekki verð ég að hætta.“ Davíð
segist „leyfa sér þann munað“ að
hugsa ekki mikið út í hvaða verk-
efni verða helst á hans könnu þeg-
ar hann tekur við utanríkisráðu-
neytinu. Eitt af hans stærstu
verkefnum verður varnarsam-
starfið við Bandaríkjamenn.
Á morgun mun Bandaríkjafor-
seti tilkynna um niðurskurð
bandaríska heraflans í Evrópu.
Davíð segist ekki búast við niður-
skurði hér á landi. „Ég átti góð
samtöl við Bandaríkjaforseta og
hann sagði mér að herþoturnar
munu ekki fara án okkar samþykk-
is. Hann talaði af hreinskilni og
milli okkar ríkir mikill trúnaður.“
Sjá síðu 2
Davíð á leiðinni
í utanríkismálin
Davíð Oddsson fer úr forsætisráðuneytinu í utanríkisráðuneytið. Óvíst er
hvenær hann snýr aftur til starfa en hann ætlar að fara sér hægt í fyrstu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
SUMARBLÍÐA ÁFRAM Í DAG Það
þykknar eitthvað upp sunnan- og vestanlands
í dag en þrát fyrir það verður áfram bjartviðri
um land allt. Sjá síðu 6
JAKOB SETTI MET
Jakob Jóhann varð fyrsti Íslendingurinn til
að synda undir 1 mínútu og 3 sekúndum í
100 metra bringusundi.
Íslandsmet á
fyrsta degi
ÓLYMPÍULEIKAR Fyrsta Íslandsmetið
á Ólympíuleikunum í Aþenu féll
strax á fyrsta degi í sundlauginni.
Jakob Jóhann Sveinsson setti
glæsilegt nýtt Íslandsmet í 100
metra bringusundi en það dugði
þó ekki til koma honum áfram.
Jakob endaði í 23. sæti af 60 kepp-
endum og synti á 1:02.97 en gamla
metið hans var 1:03.1. Jakob
Jóhann vann sinn riðil en hefði ef-
laust getað synt enn betur í sterk-
ari riðli.
Rúnar Alexandersson náði
glæsilegum árangur á bogahesti
og komst í úrslit.
Sjá síður 20-23
Sérhæfir sig í
fölskum játningum
Gísli Guðjónsson segir að sannleiksástin
sem rekur hann áfram geti reynst dýrkeypt. SÍÐUR 14 & 15
▲
Leikstýrði tígrisdýrum þegar
hann var að búa til auglýsingu
fyrir náttúruverndarsamtökin
World Wild Life Fund.