Fréttablaðið - 15.08.2004, Blaðsíða 16
16 15. ágúst 2004 SUNNUDAGUR
Margir af helstu þungavigtar-
mönnum Íraka í vaxtarrækt æfa
í The Arnold Classic Gym lík-
amsræktarstöðinni í Bagdad
sem stofnað var árið 1997 til
heiðurs Arnold Schwarzenegger
sem gerði garðinn frægan sem
heimsmeistari í líkamsrækt
áður en hann sneri sér að túlkun
ofurmenna í Hollywood í mynd-
um eins og Conan, Commando og
Terminator. Koma hans á hvíta
tjaldið markaði ofurhetjunni
nýtt upphaf því þar var kominn
fram maður sem hafði lagt
meira á sig en aðrir til að ná sér
í fullkominn líkama. Metnaður
Arnolds var slíkur að hann
tuggði tennisbolta til að ná sér í
styrkari kjálkavöðva sem
annars erfitt er að þjálfa upp
með hefðbundnum aðferðum
eins og svo marga af minni vöðv-
um líkamans.
Það er því ekki skrítið að karl-
menn um allan heim dáist að
slíku hreystimenni og tileinki
manninum eitt af musterum lík-
amans.
Þrátt fyrir þá örðugleika sem
steðjað hafa að Írak á síðustu
árum finna menn sér enn tíma til
að lyfta lóðum og verða hroða-
legir eins og þessar myndir gefa
til kynna. Það er mannlegu eðli
til mikillar blessunar að til séu
slíkir menn sem sýna sjálfum
sér og umhverfi sínu tilskilda
virðingu með því að líta vel út
þegar illa árar.
Á dögunum var svo haldið
vaxtarræktarmót í stöðinni til að
fagna 57 ára afmæli
Schwarzeneggers sem eins og
alþjóð veit hefur afklæðst leður-
gallanum og hengt hríðskota-
byssuna upp á vegg og tekið upp
siðsamlegri háttu sem ríkistjóri
Kaliforníu. Utanríkisstefna
Bandaríkjanna í Mið-Austur-
löndum og viðsnúningur Arnolds
frá vaxtarræktarsviðinu yfir á
pólitíska sviðið sem leiðtogi eins
ríkasta fylkisins í landinu hafa
þó greinilega ekki deyft vin-
sældir hans í arabaheiminum
enda er hann einn af helstu for-
vígismönnum vaxtaræktarinnar
sem íþróttar í heiminum og lif-
andi minni um mikinn keppnis-
mann. ■
EFNILEGUR Ungi maðurinn innan um vöðvatröllin er Arnold Mahdi, sonur eiganda líkamsræktarstöðvarinnar, og er hann að sjálfsögðu skírður í höfuðið á hinum eina sanna Arnold.
PÓSUTRÖLL Það er gaman að lyfta. Þrír íraskir vöðvamassar hnykla fleygaða líkama sína
hróðugir fyrir ljósmyndarann.
EIGANDINN Aðdáandinn og eigandinn, Sahabtalib Mahdi, glaðhlakkalegur milli tveggja
styttna af bronsuðum ofurbúkum.
MEISTARI Ungur lyftingameistari með stjörnur í augunum sést hér spottaður af þjálfar-
anum sínum.
Líkamsræktarmenn í Írak slá ekki slöku við þrátt fyrir ófriðinn í landinu:
Til heiðurs Schwarzenegger
M
YN
D
IR
: B
R
EN
T
ST
IR
TO
N
/G
ET
TY