Fréttablaðið - 15.08.2004, Qupperneq 27
SUNNUDAGUR 15. ágúst 2004
Bækur mánaðarins
Sérhönnuð fyrir námsfólk
Verð aðeins
1.390 kr.
Fullt verð 1.990 kr.
Þróuð TÖLVUORÐABÓK
• Flettu upp í öflugri ensk-íslenskri og
íslensk-enskri orðabók
• Glósaðu
• Skoðaðu beygingar orða
• Æfðu óreglulegar enskar sagnir
• Leitaðu í leitarvélum, alfræðibókum
og orðabókum á vefnum
• Hugbúnaður fyrir Windows stýrikerfi
Ómissandi öllu skólafólki!
Hlý og hjartnæm saga
Þriðja barnabók Madonnu
Hvernig skyldu sjö skítugir þjófar geta
hjálpað fárveikum dreng? Um það fjallar
þessi skemmtilega og hlýja saga eftir
Madonnu. Myndir Gennady Spirin gera
bókina að sannkölluðu listaverki.
„Madonnu hefur tekist að skrifa alvöru
ævintýri með sorglegum aðstæðum, um
leið og hún skemmtir börnunum og kemur
þeim á óvart.“
- Hildur Loftsdóttir, Mbl.
Verð aðeins
1.990 kr.
Fullt verð 2.990 kr.
Leikarinn Robert De Niro, sem
verður að öllum líkindum heiðrað-
ur með ítölskum ríkisborgararétti
á kvikmyndahátíðinni í Feneyj-
um, hefur verið harðlega gagn-
rýndur af samtökunum The Order
of the Sons of Italy í Bandaríkjun-
um. Í samtökunum eru um 600
þúsund Bandaríkjamenn sem eru
af ítölsku bergi brotnir.
De Niro er sakaður um að hafa
eytt ferli sínum í að leika glæpa-
menn af ítölskum uppruna. Sam-
tökin segja að hlutverk kappans
sem ítalsks mafíósa í myndum á
borð við Guðföðurinn II og Casino
hafi valdið því að almenningur
hafi mikla fordóma gagnvart Ítöl-
um. Hafa þau skrifað Silvio
Berlusconi, forsætisráðherra Ítal-
íu, bréf þar sem hann er hvattur
til að hætta við að veita De Niro
ríkisborgararéttinn. Langafi og
langamamma De Niro voru Ítalir
og fluttu til Bandaríkjanna undir
lok 20. aldar. Þar liggur grunnur-
inn að ríkisborgararéttinum.
Hann hefur hins vegar aldrei
heimsótt heimabæ þeirra, Ferr-
azzano.
„Hann hefur ekkert gert til að
auka veg ítalskrar menningar í
Bandaríkjunum,“ sagði Dona de
Sanctis, meðlimur ítölsku samtak-
anna. „Þvert á móti þá teljum við
hann ábyrgan fyrir því að skaða
mannorð bæði Ítala og Banda-
ríkjamanna af ítölsku bergi brot-
na.“
De Niro nýtur þó enn stuðnings
heimamanna í Ferrazzano. Þar er
árlega haldin hátíð honum til heið-
urs. „Saga okkar hefur bæði góð
og slæm tímabil,“ sagði skipu-
leggjandinn Mariassunta Baran-
ello. „Þú getur ekki afneitað for-
tíðinni. De Niro er besti leikari í
heimi.“ ■
■ KVIKMYNDIR
De Niro hefur skaðað mannorð Ítala
ROBERT DE NIRO De Niro hefur verið
harðlega gagnrýndur af samtökum Ítala í
Bandaríkjunum.
Ha r ð j a x l i n nC l i n t
Eastwood hefur
hætt við máls-
höfðun vegna
ummæla í ævi-
sögu sem skrifuð
var í óþökk hans.
Þar er Eastwood
sakaður um að
hafa lamið fyrr-
verandi eiginkonu sína. Í stað máls-
höfðunarinnar verða ummælin tekin
úr bókinni, sem kallast Clint: The Life
and Legend.
Le i k s t j ó r i n nM i c h a e l
Moore neitar að
biðja eigendur
dagblaðs í Illinois
afsökunar á að
hafa tekið fyrir-
sögn blaðsins úr samhengi og notað
í heimildarmynd sinni Fahrenheit
9/11. Í fyrirsögninni stóð að Al Gore
hefði unnið forsetakosningarnar í
Bandaríkjunum samkvæmt nýjustu
talningu í Flórída. Talsmenn Moore
vísa ásökunum á bug og segja hann
ekkert hafa brotið af sér.
Hj ó n a b a n dleikkonunnar
Rosie O’Donnel
og Kelli Carpenter
hefur verið úr-
skurðað ólöglegt
af hæstarétti í
Kaliforníu. Um
4.000 hjónabönd
samkynhneigðra sem voru leyfð fyrr
á árinu af borgarstjóranum Gavin
Newsom í San Francisco hafa verið
ógilduð.
Grínistinn Jamie Foxx hafði svomikla ánægju af því að vinna
með Tom Cruise við myndina Colla-
teral að hann gaf honum 1,4 millj-
óna króna dem-
antsúr. Foxx gaf
m ó t l e i k k o n u
sinni, Jada Pin-
kett Smith, einnig
fallegt úr að gjöf
fyrir samstarfið.
Foxx var víst ná-
lægt því að vinna
með Cruise í
myndinni Jerry Maguire en missti
hlutverkið til Cuba Gooding Jr.
Leikkonan Jamie Lee Curtis segirað eina leiðin til þess að þrá-
hyggja almennings varðandi lýtaað-
gerðir minnki sé ef
einhver stórstjarna
myndi deyja í slíkri
aðgerð. Curtis, sem
sjálf hefur gengist
undir lýtaaðgerðir,
segir að alltof marg-
ar konur sem fari í
aðgerðir líti hræði-
lega út á eftir. Halle
Berry, Sarah Jessica Parker og Sharon
Stone hafa einnig mótmælt lýtaað-
gerðum harðlega.
Fred Durst, söngvari Limp Bizkit,sást nýverið úti að borða með
hótelerfingjanum Paris Hilton. Létu
þau vel hvort
að öðru og
virtust afar ást-
fangin. Durst,
sem er 33 ára,
hefur átt í ást-
arsamböndum
við Britney
Spears, Halle
Berry og Avril
Lavigne.
FRÉTTIR AF FÓLKI