Tíminn - 08.07.1973, Síða 4
4
TÍMINN '
Sunnudagur 8. júli 1973.
Kennsla í sjónvarpi
1 Bandarikjunum hefur verið
sýndur sjónvarpsþáttur, sem
kallast Sesame Street, og er
honum ætlað að kenna börnum
til dæmis stafina á mjög ein-
faldan og skemmtilegan hátt
með söng og leik. Hér er um
framhaldsþátt að ræða, og hefur
hann vakið mikla eftirtekt, og
nýtur mjög mikilla vinsælda
bæði meðal barna og foreldra
þeirra, sérstaklega vegna hins
góða árangurs, sem náðst hefur
hjá þeim börnum, sem horft
hafa á hann að staðaldri.
Þátturinn hefur verið sýndur i
Þýzkalandi i þýzkri útgáfu, og
vakið athygli þar, ekki siður en i
heimalandi sinu. Þrir skrýtnir
karlar koma fram i þættinum og
kallast þeir Ernie, Bert og
Monster (eða ófreskjan) Sjást
þeir hér á myndinni. Það er
menntamálaráðherra Þýzka-
lands, sem heldur hér á
ófreskjunni, en með honum eru
tvö börn, hans, sem halda á hin-
um körlunum tveimur. Þessir
karlar koma mikið við sögu i
Seasame-þættinum, og með að-
stoð þeirra læra börnin stafina
eins og skot, nánast án þess þau
viti af, Börn dr. Klaus von
Dohnanyi ráðherra eru lika
mjög ánægjuleg á svipinn, þar
sem þau aðstoða föður sinn við
að setj. á svið einn
Sesamþáttinn. . .
•
Presturinn
er lofthræddur
Söfnuðurinn i Sommelsdijk i
Hollandi þarf ekki að lita upp til
prestsins sins, hans sr. G. Van
Estrik, þegar hann er að messa,
vegna þess að predikunar-
stóllinn stendur á gólfinu fyrir
framan söfnuðinn. Ástæðan er
sú, að þegar sr. Estrik kom I
kirkjusóknina sagðist hann vera
svo lofthræddur, að hann þyrði
ekki að predika úr hinum 10 feta
háa predikunarstól.Þar af leið-
andi var smiðaður nýr
predikunárstóll, sem stóð á
kirkjugólfinu. En það eru aðrir
prestar en Estrik, sem geta
ekki sætt sig við það, sem i
kirkjum þeirra á að vera. Sr.
E. Smith-Evans .i Miami i
Florida getur alls ekki fellt sig
við orgeltónlist, og þess vegna
lét hann koma fyrir pianói i
kirkjunni sinni. —Ég gerði það,
segirhann, —vegna þess að það
fer hrollur um mig við að heyra
i orgelinu, og mér verður óglatt.
DENNI
DÆMALAUSI
Pabbi, veiztu hvernig á að ná
flugdreka ofan úr sjónvarpsloft-
neti?