Tíminn - 08.07.1973, Blaðsíða 28
28
TÍMINN
Sunnudagur 8. júlí 1973.
Svipmyndir frá heimsókn
drottningar til Akureyrar
r
Prinsinn
renndi
fyrir lax
Eins og Timinn skýrði frá
á fimmtudag, þá kom Henrik
prins með veiðistöng og háf
hingað til lands. Það brást
ekki, að prinsinn notaði þessi
veiöitæki.
i gærmorgun brá hann sér
inn að Elliðaám og renndi
fyrir lax. Og viti menn: Inn-
an skamms beit vænn lax á
hjá drottningarmanninum
og var hann ekki seinn á sér
að landa fiskinum.
Síðan sneri gæfan baki við
Henrik, þvi að hann varð
ekki var, þótt hann héldi
áfram veiðum drjúga stund.
Þá er rétt að geta þess, að
rúða bnotnaði i flugvél Land-
helgisgæzlunnar i fyrradag
svo að vélin var óflugfær i
gær. Henrik prins varð þvi
að láta sér nægja að sitja i
minni flugvel frá Landhclg-
isgæzlunni til Eyja. Ferðin
tókst þó vel og skoðaöi prins-
inn verksummcrki á Ileima-
ey i fylgd Magnúsar
Magnússonar, bæjarstjóra
og Sigurgeirs Kristjánsson-
ar, forscta bæjarstjórnar,
auk annarra forráðamanna i
Eyjum.
Krá móttökuathöfninni i Lystigarðinum á Akureyri. Myndin sýnir hluta mannfjöldans, sem þar var saman kominn.
Heimsóknir
í Arnagarð
og Land-
spítalann
Jón Sólnes, forseti bæjarstjórnar gengur með hinum tignu gestum um
Lystigarðinn.
AAynd fró komu
Friðriks VIII sýnd
í hófinu ó Akureyri
Kvöldverðarboð bæjarstjórn-
ar Akureyrar i fyrrakvöld,
sem haldið var drottningu og
manni hennar til heiðurs, sátu
um eitt hundrað manns. Sam-
kvæinið á Hótel KEA fór I alla
staði vel fram.
Jón Sólnes, forseti bæjar-
stjórnar, ávarpaði drottningu,
en hún svaraði með fáum orð-
um. Þá var sýnd i fagnaðinum
kvikmynd frá heimsókn Frið-
riks konungs 8. til Akureyrar
1907, en myndin er i eigu
Akureyrarbæjar.
Frásögn: Eiríkur Tómasson
Myndir: Gunnar Andrésson
Róbert Ágústsson
Frá samkvæminu á Hótel KEA I gærkvöldi. Forseti bæjarstjórnar á tali viðdrottningu og Forseta tslands, Til vinstri sjást m.a. GIsli Jóns-
son, bæjarfulltrúi og frú, Ingvar Gislason, alþingismaöur og frú, og steindór Steindórsson, fyrrv. skólameistari.
Margrét Danadrottning
heimsótti Handritastofnunina
- i Arnagarði I gærmorgun.
Jónas Kristjánsson, for-
stöðumaður stofnunarinnar,
Magnús Már Lárusson, rektor
Haskólans og Magnús T.
ólafsson, menntam álaráð-
herra tóku á móti drottningu
og fylgdarliði hennar á tröpp-
um Arnagarðs. Að þvi búnu
gekk Margrét um Handrita-
stofnunina I fylgd starfs-
manna hennar. Virtist hún
sýna hinum fornu handritum
mikinn áhuga, enda varla
furða, þar eð handritamálið
hefur skipt svo miklu i sam-
skiptúm Dana og tslendinga
að undanförnu.
Frá Arnagarði hélt Margrét
drottning að Landspitalanum.
Þar tóku á móti henni Sig-
urður Sigurðsson, fyrrv. land-
læknir, Kristbjörn Tryggva-
son, yfirlæknir Barnaspitala
Hringsins, Ragnheiður Ein-
arsdóttir, formaður Kvenfé-
lagsins Hringsins, Páll Sig-
urðsson, ráðuneytisstjóri og
Magnús Kjartansson, heil-
brigðisráðherra, auk annarra.
Siðan var drottningu sýndur
barnaspitalinn og brosti hún
innilega við börnunum, enda
er hún sögð mjög barngóð.
Margrétivar mjög vel tekið á
Landspitalanum, fjöldi fólks
hyllti hana á hverri hæð, sem
hún fór um, og litil stúlka af-
henti henni fallegan blóm-
vönd.