Tíminn - 08.07.1973, Blaðsíða 40
Sunnudagur 8. júlí 1973
Auglýsingasími
Tímans er
195»
MERKID SEM GLEÐUR
HHtumst i haupjélaghtu
GBÐI
fyrir gúóan ntai
^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
Vel gengur
við Lagarfljót
SH við Lagarfljótsvirkjun . Unnið
i*r nú af fulluin krafti við virkjun
Lagarfoss i Lagarfljóti. Tilboð i
virkjunarframkvæmdirnar voru
opuuð á. júlf 1971. Lægsta tilboð i
luunnvirkjagerð var frá Norður-
verki h/f á Akureyri, kr.
70.1)58.000 og var gengið að þvi.
Ilagstæðasta tilboð i vélar
stöðvarluíssins var frá Skoda
Kxporl i Tékkóslóvakiu. i þvi
lilboði var gert ráð fyrir stærri
ral'al en áætlað hafði verið sam-
kvæint útboði og var gengið að
þvi. en liann er um 8.3 megawött.
Samkvæmt áætlun á stöðvar-
húsið aö veröa fokhelt i haust og
tilbúið undir gralauppsetningu.
Reikna má meö að uppsetning
véla hefjist upp úr þvi en fram-
leiðsla rafmagns á aö geta hal'ist
al' fullum krafti um áramótin
1974-75.
Þær breytingar hafa orðið á
verkinu siðan samningar voru
undirritaðir, að á stiflumann-
virkið á nú að koma brú, sem
brúar Lagaríljót á milli Hjalta-
staöaþinghár og Hróarstungu.
Brúin, sem lokið hefur verið við
að steypa, er um 90 metra löng en
eftir á að stifla Lagarfljót og veita
þvi undir brúna.
Þá er byggður nýr fiskivegur i
fossinn i stað þess eldri en talið
er, að lax hafi aldrei gengið i
hann. Liggur nýi fiskivegurinn að
hluta i gegnum stöðvarhúsið.
Við Lagarfoss vinna nú 65
manns. Verkfræðingur fyrir
Norðurverk h/f á staðnum er
Sveinn Þórarinsson. Eftirlits-
verkfræðingar eru Kristján Már
Sigurðsson og Sveinn Jónsson.
Eru þeir frá verkfræðiskrifstofu
Sigurðar Thoroddsen i Reykja-
vik, sem gert hefur allar teikn-
ingar og hannað virkjunina.
Meðfylgjandi myndir tók fréttaritari Tlmans á Eskifiröi, Sigmar Hjelm, af virkjunarfram-
kvæmdunum. Myndin aö ofan er af brúnni/ stiflunni yfir fljótiö, aö neðan er undirstaöa túrbinunnar og
til vinstri nýi laxastiginn.
Hér stendur hann aftur i báöa fætur, en sá hægri er nú nýr gerfifótur
(Timamyndir GE og Róbert)
„Verst að missafótinn
á þennan hótt"
Rætt við Hafstein Jósefsson, sem missti hægri
fótinn í skotórósinni í Breiðholti í vetur
MÖRGUM er eflaust enn i fersku minni skotárásin að Yrsufelli 11 í Breið-
holti þann 14. janúar s.l. Þann dag gekk óður maður vopnaður haglabyssu
inn i húsið og skaut m.a. á fyrrverandi tengdamóður sina og á mann, sem
átti heima i annari ibúð, sem byssumaðurinn réðst til inngöngu i. En skot
hljóp úr byssunni og i hægri fót þess manns er hann ásamt féiaga sinum
yfirbugaði byssumanninn.
Mikið var skrifað i blöð og rætt
um þessa árás svo og hlutákipti
mannsins, sem varðfyrir skotinu,
á sinum tima. Var þá m.a. komið
af stað söfnun til styrktar honum
og fjölskyldu hans og stóð hún
sem hæst þegar gosið i Vest-
mannaeyjum hófst. Allt annað
hvarf þá i skuggann og þessi
maður, sem heitir Hafsteinn
Jósefsson, gleymdist nær algjör-
lega nema hjá sinum nánustu.
Við fórum á stúfana fyrir
nokkru til að hafa upp á honum,
og fundum hann i sinni gömlu
ibúð að Yrsufelli 11, þar sem við
ræddum við hann i góða stund.
Hafsteinn sagði okkur, að hann
hefði legið á Borgarspitalanum,
þar sem hægri fótur hans var tek-
in af um hné, i rúmar sex vikur.
Þá hefði hann verið búinn aö fá
gervifót, sem hann hefði siðan
veriö með þar til nú íyrir
skömmu, að hann hefði fengiö
annan betri.
Er að venjast gervifæt-
inum
— Eftir að ég kom heim byrjaöi
ég æfingar hjá Styrktarfélagi
lamaðra og fatlaðra aö Háaleitis-
braut 13, þar sem mér var m.a.
kennt að ganga upp á nýtt og að
nota gervifótinn rétt sagði Haf-
steinn.
— Það gekk ágætlega og kemst
ég nú yfirleitt það, sem ég vil og
er að.komast upp á lag með að
nota þennan fót. Það tekur aö
sjálfsögðu sinn tima að venja sig
við þetta, en ég hef ekki svo mikl-
ar áhyggjur af þvi enda lofar
byrjunin góðu.
Það versta við þetta allt, er að
maður hefur ekkert fyrir stafni,
þvi ég er ekki orðinn enn það
brattur, að ég geti farið að vinna.
Svo er nú ekki gott fyrir mig, er
litið þekki annað en bilaviðgerðir,
að fá starf i sambandi viö fagið,
enda liggur maður ekki á hnján-
um eða skrlður undir bila svona á
sig kominn. En ég vona þó að ég
fái einhverntima starf i sambandi
við bilaviðgerðir eða á bilaverk-
stæði, sem ég get ráðið við.
Keyptu ibúð fyrir söfn-
unarféð
Annars hef ég ákveðið að fara
af stað og dunda I sambandi viö
Ibúð, sem við keyptum tilbúna
undir tréverk i Kópavoginum. Við
fáum hana afhenta einhvern
næstu daga, og þar fær maður
sjálfsagt nóg að gera.
Þessa ibúð keyptum við fyrir
Framhald á bls. 23.