Tíminn - 08.07.1973, Blaðsíða 6

Tíminn - 08.07.1973, Blaðsíða 6
6 TÍMINN Sunnudagur 8. júlí 1973. Stálgrindahús hcfur Sindri reist víðsvegar um landið og átt sinn þátt í að ryðja braut þessari húsagerð. stæöa Snæfelling, sem hef- ur mörg járn í eldinum — í einfaldasta skilningi þess orös. Tíminn kynnir Sindra- fyrirtækin að þessu sinni: Lífsstarf Einars í Sindra. i viðtali við blaðið, sagð- ist honum á þessa leið: Fæddur á Fróðá og alinn upp á Grund og Bár. Bg er fæddur á Fróðá, en ólst upp i Grundarfirðinum, á Grund og Bár. Þarna var þá stundaður blandaður búskapur, sem sé sjó- róðrar og landbúnaður. Þarna voru margir myndarmenn og margvislegir. Sumir þeirra hafa oft minnt mig á vissan hóp stjórn- málamanna. Við höfðum menn fyrir vestan, sem vissu bókstaf- lega allt. Það var aðeins eitt, sem þeir ekki vissu: það var hvernig átti að búa á jörð. Þeir höfðu ekki hugmynd um það, — en gátu rak- ið þjóðfélagskerfi fyrirmyndar- rikisins, þúsundárarikisins og deilt um háleit hugfræðileg mál- efni. Þarna ólst ég upp og sam- bandið við landið og sjóinn var náið, og ég undi mér vel. Árið 1919 hélt ég svo til Reykja- vikur. Þar fór ég að læra járn- smiði hjá Kristjáni Kristjánssyni. Hann var svo harður heima- stjórnarmaður af gamla timan- um, að þegar sjálfstæðismenn af gamla timanum gengu framhjá, þá hrækti hann gjarnan til að sýna fyrirlitninguna. Þess má þó geta, að faðir minn hafði verið sjálfstæðismaður og verið virkur þátttakandi i baráttunni á Snæ- fellsnesi á fyrstu tugum aldarinn- ar, en lætin á Snæfellsnesi voru fræg. Sumir kölluðu nesið þá Litla-Rússland. Ekki lét Kristján mig þó liða fyrir skoðanir föður . ins. Sindrasmiðjan byrjaði 1924 Ég byrjaði smiðaverk fyrir eig- in reikning árið 1924. Það var vél- smiðjan Sindri. Við vorum fyrst til húsa við Lækjargötu 10. 1 Lækjarkoti, eins og það hét þá. Það er undir veggnum á Iðnaðar- bankanum núna. Þetta var i smiðju Þorsteins Tómassonar, járnsmiðs, sem margir könn- uðust við. Ég leigði smiðjuna og vann að algengri járnsmiði. Hjá mér voru 2—3 menn, en húsnæðið var 60 fermetrar, eða svo og með útirými um 100 fermetrar. Verkin erum núna. Skrifstofur okkar eru þó hér ennþá. 100 manns á 20.000 fermetra athafnasvæði Sindra Sindra-fyrirtækið hefur vaxið nokkuð jafnt og þétt, en allur samanburður er erfiður vegna krónunnar. Ef til vill sýnir mann- fjöldi og fermetrafjöldi svona reksturs bezt, en hjá okkur vinna nú yfirleitt um 100 manns og at- hafnasvæði okkar er á um 20.000 fermetrum, en við byrjuðum með 2—3 menn á 100 fermetrum, eins og áður var sagt. En hvort þetta er stórt, er erfiðara að segja um og þá sér á parti, ef litið er á þessi mál frá sögulegu sjónarmiði. Ég lit aðeins á mig sjálfan, sem venjulegan mann uppalinn við út- róðra og sveitarstörf. Þegar ég var að alast upp voru iðnaðar- mennstórir i sniðum i Reykjavik. Ég á við mennina, sem byggðu Iðnó, Iðnskólann sem auðvitað er langtum meiri stórhugur, en t.d. bygging Þjóðleikhússins og Iðn- aðarbankans. Já og i rauninni hrein afrek, ef litið er á aðstæður. Iðnaðarmenn voru á áratugunum fyrir og eftir aldamótin siðustu, ekki einasta stórhuga i fram- kvæmdum og faglegri þekkingu, heldur gegndu umtalsverðum hlutverkum i menningarlifi borgarinnar. Nægir að nefna menn eins og Helga Helgason, Þorstein Tóm^isson, Sigurð Jóns- son og marga fleiri. Meðal þess- ara manna voru margir járniðn- aðarmenn, sem að likum lætur. t stað þessara manna kemur kynslóð málglaðra, smátt hugs- andi iðnaðarmanna, sem meðal annars unnu það afrek að byggja Súðarvoginn, þar sem gert er ráð fyrir verkstæðum manna á þrem 100—150 fermetra hæðum. Það myndi enginn i viðri veröld láta sér detta svona nokkuð i hug nema okkur. Það er t.d. ekki hægt að reka vélsmiðjur af neinu viti i svona húsnæði. Við hefðum átt að byggja falleg hús við Elliðaár- voginn, sem er einhver fegursti staðurinn hér um slóðir en láta iðnaðinn fá drjúg athafnasvæði á einni hæð, ásamt landi fyrir út- svæði. Timabil smátt hugsandi manna má ekki eyðileggja iðn- aðarmennina. Þetta hefur leitt af sér minni reisn á öllum sviðum. Við eigum að visu til menn, sem hafa verið sér á parti. Guðmund á Þingeyri, sem rak vélsmiðju á heimsmæli- kvarða vestur á Þingeyri og enn starfar. Marselius á Isafirði, Ell- ert á Akranesi og þá á Fáskrúðs- SINDRA FYRIRTÆKIN HAFA HUNDRAÐ MANNS í VINNU Á 20 ÞÚSUND FERAA. ATHAFNASVÆÐI Einar i Sindra, Ásmunds- son er i hópi kunnustu at- hafnamanna þessa lands. Kunnur af umfangsmikl- um rekstri Sindra-fyrir- tækjanna og svo ýmsum tiltækjum, þvi að hann hef- ur ekki alltaf bundið bagga sína sömu hnútum og sam- ferðamennirnir. Einar er Snæfellingur fædd- ur á Fróðá og alinn upp á Grund og Bár. Hann er Grundfirðingur fyrst og fremst og hvorki Mercedes Benz, Krupp, eða önnur voldug fyrirtæki hafa getað breytt þvi, hvorki til hins betra, eða verra og oft minnir hann okkur mest á kjarnyrtan sjálfseignar- bónda, eða formann í stýrishúsi. Einar hefur eldað grátt silfur við stjórnvöldin og þá ekki sízt sinn eigin flokk, og vinir hans telja það vera réttlætiskennd vestan úr Grundarfirði, sem Ijái hon- um kjark. Það er óþarfi að nefna héreinstök dæmi,' en þrátt fyrir gagnrýni, munu flestir virða þennan sér- voru hin margvislegu. Maður skerpti skauta, smiðaði skeifur og amboð og gerði við skip, en nokkrum árum siðar keypti ég húseignina Hverfisgata 42, en þangað flutti ég smiðjuna. Skömmu siðar reisti ég þar stór- hýsi, á þeirra tima mælikvarða, en tvö hús voru fyrir á lóðinni. Þarna var ég framundir 1950, er starfsemin fór að færast meir og meir inn i Borgartún, þar sem við firði. Það er ekki ónýtt fyrir byggðarlög þessara manna, að þeir hafa skynjað þarfir timans. Iðnaðarmenn verða með ein- hverjum hætti að endurheimta stöðu sina i islenzku þjóðlifi og menningu. Birgðastöðin mikla fyrir járniðnaðinn Frá árinu 1950, eða svo hefur Sindri haft á hendi umtalsverðan inn- og útflutning á járni og irgðastöð Sindra eru jafnan 3-4000 tonn af stáli og smíðaefni fyrir járn- og byggingaiðnaðinn

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.