Tíminn - 08.07.1973, Page 30

Tíminn - 08.07.1973, Page 30
30 TÍMINN Sunnudagur 8. júli 1973. HÆTTIÐ AÐ REYKJA! Tíðni krabbameins í skjaldkirtli og lungum kvenna á íslandi er sú hæsta d Norðurlöndum /100000 F I N S F I N S males females ESOPHAGUS (site 150) F I N S F I N S males females STOMACH (site 151) F I N S F I N S males females COLON AND RECTUM (sites 153,154) Stólparitið i miðið sýnir tiðni krabbameins i maga. (Females — konur, maler kariar). F = Finnland, I = ísland, N = Noregur, S = Sviþjóð NORDISK CANCERUNION/ sam band krabbameinsfélag- anna á Norðurlöndum, sem starfað.hefur allt frá árini 1949, með þátttöku Íslandí frá 1957, hélt í vikunni ár- legan fund sinn hér i Reykjavík. Fundir þessir eru haldnir til skiptis é hinum ýmsu Norður- löndum. Hafa þeir tvisvar áður verið haldnir hér, þ.e. árið 1963 og 1968. Alls sátu um 20 manns fundinn, formenn og ritarar hinna ein- stöku krabbameinsfélaga auk nokkurra lækna. Einnig mætti sem gestur á fundinn prófessor N.F.C. Gowing frá Englandi og flutti fyrirlestur. Jafnframt héldu forstöðumenn krabbameins- skráninga á Norðurlöndum með sér fund um leið Hin ýmsu krabbameinsfélög á Norðurlöndum starfa með nokkuð misjöfnu sniði i hverju landi fyrir sig, en beita sér þó öll fyrir nokkrum, sameiginlegum höfuðverkefnum. Má þar nefna almenna fræðslustarfsemi um or- sakir, einkenni og eðli hinna ýmsu krabbameinssjúkdóma, reglulega skráningu allra nýrra sjúklinga með illkynjuð æxli og krabbameinsleit. Krabbameins- félag íslands, sem stofnað var 27. júni 1951, hefur enn sem komið er ekki getað beitt sér nándar nærri eins mikið fyrir visindalegum grunnrannsóknum og krabba- meinsleit og hin félögin vegna fjármagnsskorts. A öllum hinum Norðurlöndunum hefur slik starf- semi hins vegar verið styrkt verulega. ' Á fundinum hér var rædd starf- semi félaganna og niðurstöður þeirra á siðasta ári og það, sem efst er á baugi hjá þeim um þessar mundir. Eitt af aöalum- ræöuefnunum var þó sameigin- leg kynning krabbameins- félaganna á Norðurlöndum, sem fyrirhugað er að koma fram með á alþjóðlegu þingi krabbameins- félaga, sem haldið verður i októ- ber 1974. Krabbameinsleit í leghálsi kvenna Margt athyglisvert kom fram á fundi, sem fulltrúar krabba- nooooo • moles females Tiðni Krabbameins i skjaldkirtli meinsfélaganna héldu með fréttamönnum á þriðjudag s.l. Skýrði hinn nýi formaður Krabbameinsfélags* íslands Ólafur Bjarnason próf. m.a. frá þvi að eitt aðalverkefni félagsins hefði undanfarin ár verið að leita að krabbameini á byrjunarstigi meðal fólks, sem ekki hefur ein- kenni. Þessi fjöldaleit fer fram út um allt, en komið hefur verið upp leitarstöðvum viðs vegar um landið i þessum tilgangi, sagði Ólafur, en nú væri búið að loka hringnum. Sýnin, sem þessar leitarstöðvar taka, eru send til krabbameinsrannsóknarstöðvar- innar i Reykjavik til frekari rann- sókna. Eitt aðalverkefni kvabba- meinsfélaganna, hér sem annars staðar á Norðulöndum, hefur undanfarið verið fjöldaleit að krabbameini á byrjunarstigi i leghálsi kvenna. Ólafur Bjarnason prófessor skýrði og frá þvi á fundinum, að /100000 Nordisk Carcerunion veitti árlega einn styrk til krabbameinsrann- sókna. Er styrknum ætið úthlutað til visindamannsfrá þvi landi sem fundurinn er haldinn hverju sinni. 1 þetta sinn hlaut styrkinn Gunn- laugur Geirsson læknir, sem er við framhaldsnám i meinafræði i Bandarikjunum. Styrkinn er Gunnlaugi ætlað að nota til að kynna sér greiningu krabba- meins á byrjunarstigi með frumurannsóknum, en „frumu- aðferðin” er nú mjög notuð við greiningu krabbameins sem fjölda annarra sjúkdóma. Enginn sérfræðingur á þessu sviði er til hér á landi, en frú Alma Þórarinsson læknir og Ólafur Jónsson læknir hafa undanfarin ár fengizt við hliðstæðar rann- sóknir. Sagði Ólafur Bjarnason prófessor, að Gunnlaugur myndi væntanlega taka við starfi for- stöðumanns Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins, er hann kæmi heim frá námi. Fróðlegt rit komiö út Krabbameinsfélögin i Finn- landi, tslandi, Noregi og Sviþjóð, gáfu nýlega út allmikið rit um tið- ni krabbameins i þessum lönd- um, og var það kynnt á fundinum. Danmörk er ekki með i þessari útgáfu af vissum ástæðum. Danska félagið hefur nýlega gefið sjálft út hliðstætt rit, en þess má geta i leiðinni, að Krabbameinsfélag Danmerkur er það elzta á Norðurlöndum, stofn- að 1943, en hin ekki fyrr en nokkru eftir strið. 1 umræddu riti kemur margt afar fróðlegt fram, þar sem gerður er samanburður á tiðni krabbameins i hinum ýmsu lif- færum á þessum fjórum Norður- löndum. Aðeins verður hér drepið á nokkrar af niðurstööum þeim, er fram koma i þessu riti, en ef til vill verður greint nánar frá þeim siðar. Há Tíðni krabba- meins á Islandi Eitt er það, sem sérstaka athygli vekur i þessu riti og var tekið rækilega til ihugunar á fundinum. Var samþykkt að taka það mál til sérstakrar athugunar á næstunni. Það, sem um ræðir, er, hve tiðni krabbameins i skjaldkirtli er miklu hærri hér á íslandi en á hinum þrem Norður- löndunum. Gildir það fyrir bæði kyn, en þó einkum og sérilagi konur. Hlutfallið milli tiðni kvenna hér á landi annars vegar og i Noregi og Finnlandi hins vegar er hvorki meira né minna en 3,2:1. Hvað karlmenn snertir, er þetta hlutfall 2,5:1. Að sögn prófessors Ólafs er ekki ljóst, hvað liggur á bak við þessa ‘háu tiðni krabbameins i skjaldkirtli kvenna (og karla) hér á landi, en að llkindum væri orsakanna af einhverju marki að leita til mjög aukinna reykinga á siðari árum. Áður óttuðust ýmsir, þar á meðai próf. Niels Dungal, hangikjöt (og hliðstæðan mat), hvað krabba- mein snerti. Siðasta áratuginn hafa frystigeymslur hins vegar dregið mjög úr neyzlu saltaðra og reyktra matvæla, en reykingar vaxið þeim mun meira. Það er ekki aðeins i skjaldkirtli, ■sem tiðni krabbameins er hærri hér á landi en yfirleitt á Norður- löndum. Til dæmis er tiðni krabbameins i maga, bæði kyn, allmiklu hærri hér á landi en á hinum þrem löndunum. Hvað karlmenn snertir, eru hlutföllin þessi: ísland: 2,5 — Finnland: 1,8 — Noregur: 1,2 — Sviþjóð: 1. Fyrirkonur: (1): 2,1 — (F): 1,8 — (N): 1,3 — (S): 1. Finnskir karl- menn hafa aftur á móti langsam- lega hæztu tiðni krabbameins Hungum. Þar eru hlutföllin: (F):. 4,7 - (S): 1,3 - (N): 1,1 - (D: 1. Munurinn er minni hjá konunum og þar eru þær islenzku ,,i efsta sæti” og Finnland næst. Hlutföllin eru: (D: 2,3— (F): 1,6 - (S) 1,4 — (N): 1. Hættið að reykja! Krabbamein er einn skæðasti sjúkdómurinn i dag i þróuðu löndunum. Ljóst er, að við íslend- ingar förum ■ sannarlega ekki „varhluta” af honum, nema siður sé. Það er þvi ástæða til að fylgjast náið með starfi visinda- manna, er um þessi mál fjalla, og kynna sér niðurstöður þeirra. En það er ekki nóg. Menn verða líka að taka tillit til þeirra. Ekki er lengur deilt um, hvort reykingar geti verið valdar að krabbameini eða ekki. Fullvitað er, að þær geta það, en með hverjum hætti, er enn ekki fyllilega Íjóst. Verið þvi á varbergi Islendingar, karlar og konur. Fundur Nordisk Cancerunion stóð á mánudag og þriðjudag, en á miðvikudag fóru fundarmenn til Akureyrar og ætluðu að heim- sækja þar Krabbameinsfélag Akureyrar. Einnig var meiningin að skreppa austur i Mývatnssveit —Stp /iooooo LARYNX LUNG (site 161) (sites 162-163) Tiðni krabbameins í lungum. JOHNS-MANVILLE glerullar- 9 einangrun er nú sem fyrr vinsælasta og öruggasta glerull areinangrun á markaðnum í dag. Auk þess fáic þér frían álpappír með. Hagkvæmastö einangrunarefnið í flutningi. Jafnvel flugfragl borgar sig. Munið Johns-Manville í alla einangrun. Hagkvæmir greiðsluskilmálar. Sendum hvert á land sem er. JÓN LOFTSSON HF. Hringbrout 121 . Simi 10-600 =J|B Bifreiðaeigendur Verkstæði vort verður lokað vegna sumarleyfa frá 20. júli til 6. ágúst. Lúkasverkstæðið, Suðurlandsbraut 10, Simi 81320. * Við velium PwM það borgar sig % nidfll • OFNAR H/F. Síðumúla 27 . Keykjavík Símar 3-55-55 og 3-42-00 /100000 Tiðni krabbameins i skjaldkirtli á hinum ýmsu aldursstigum.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.