Tíminn - 08.07.1973, Qupperneq 14
TÍMINN
Sunnudagur 8. júli 1973.
Samband íslenzkra samvinnufélaga
VÉLADEILD
ÁrmúlaS. Reykjavik sími3S900
Sumarsýning í
Myndlistarhúsinu
— Sjaldséðar myndir eftir Gunnlaug
Scheving og verk eftir samtímamenn
hans og unga listamenn
Á sunnudag kl. 4 síð-
degis verður opnuð
sumarsýning ’73 i mynd-
listarhúsinu á Mikia-
túni. Mikill hluti sýn-
ingarinnar eru myndir
eftir Gunnlaug Ó.
Scheving, einkasafn Dr.
Gunnlaugs Þórðarson-
ar. En meðal þeirra eru
málverk, sem urðu sem
mestir hneykslunar-
valdar á fyrstu haust-
sýningunni 11947 og á
sýningu þeirra Þorvalds
Skúlasonar og Gunn-
laugs Scheving i Græn-
metisskálanum, (þar
sem nú eru Hallveigar-
staðir) 1941.
Fáum kæmi liklega til hugar að
hneykslast á myndefni Gunn-
laugs nú, skipum og hrörlegum,
en myndrænum húsum. En fyrir
þrjátiu árum þótti argasti dóna-
skapur að setja slikt á mynd.
„Listaverk þótti ekki boðlegt, ef
það var ekki af Þingvöllum eða
með bóndabæ i forgrunni”, sagði
Valtýr Pétursson fulltrúi sýn-
ingarráðs myndlistarhússins á
fundi með fréttamönnum, og
bætti við — ,,en það var einmitt á
þessum tima, sem Snorri Arin-
bjarnar lifði sultarlifi við að mála
skipamyndir slnar”.
Vilja sýna
einkasöfn
En það var fleira að gerast á
þessum tima. Þegar Gunnlaugur
Þórðarson fór á sýningu nafna
sins Schevings og Þorvalds
Skúlasonar 1941 tvitugur að aldri,
opnaðist honum nýr heimur og
siðan hefur myndlistin verið hon-
um ástriða. Þá keypti hann fyrstu
myndina, sem hann eignaðist eft-
ir Scheving, Prestshúsið (nr. 31 á
sumarsýningunni) fyrir 300 kr. og
gaf unnustu sinni Herdisi Þor-
valdsdóttur leikkonu.
Sýningarráð myndlistarhússins
er aö marka stefnu sina. Með
þessari sýningu nú er ætlunin að
hefjast handa með að draga
einkasöfn fram i dagsljósið, en
þau hafa til þessa verið lokaður
heimur öllum almenningi hér á
landi. Vonast ráðið til,að fram-
hald verði á slikum sýningum.
Nokkrir myndlistarmannanna, sem sýna á Miklatúni, Finnur Jónsson, Halisteinn Sigurðsson, Jón
Benediktsson, Ragnheiður Jónsdóttir Ream, Guðmundur Benediktsson «g Sigrún Guðmundsdóttir. 1
baksýn sjást málverk eftir Gunnlaug Scheving og fremst er grásteinsmynd Sigurjóns Ólafssonar,
Freyja. TlmamyndGE
14 aðrir
listamenn
33 verk eftir Gunnlaug Schev-
ing eru á sýningunni, vatnslita-
myndir, oliumálverk og klipp>
myndir. Þá eiga 14 aðrir lista-
menn verk á sýningunni, bæði
samtimamenn Gunnlaugs Schev-
ing og nokkrir af yngstu mynd-
listarmönnum okkar. Flest verk
þeirra á sýningunni eru til sölu.
Finnur Jónsson sýnir nýjar
myndir og nýstárlegar. Ragn-
heiður Jónsdóttir Ream á þarna
málverk, en að undanförnu hafa
sjaldan gefizt tækifæri til að
skoða list hennar. Auk þess sýna
málararnir Þorvaldur Skúlason,
örlygur Sigurösson, Steinþór
Sigurösson, Guðmunda
Andrésdóttir, Bragi Asgeirsson,
Hjörleifur Sigurösson, Hrólfur
Sigurðsson og myndhöggvararnir
Sigurjón Ólafsson, Guðmundur
Benediktsson, Jón Benediktsson,
Sigrún Guðmundsdóttir og Hall-
steinn Sigurðsson.
Sýningin verður opin allan júli-
mánuð kl. 4-10 daglega nema á
mánudögum og er aðgangur
ókeypis. I Kjarvalssal er sýning á
myndum Reykjavikurborgar eft-
ir Jóhannes Kjarval opin á sama
tima.
SJ
Höfum
fyrirliggjandi H 65 B
VELSKÓFLU
Vökvaskipt með húsi og
miðstöð
Skóflustærð 1900 lítrar
Verð kr. 3,1 milljón
Glava
glerullar-
hólkar
Hlýindin af góðri
hitaeinangrun
vara lengur en
ánægjan af
"lágu'verði
allir kaupa
hringana hjá
HALLDÓSI
Skólavörðustíg 2
FRÍMERKI — MYNT|
Kaup — sala
Skrifið eftir ókeypis
vörulista.
Frimerkjamiðstöðin
Skólavörðustíg 21 A
Reykjavík
gjöfin sem