Tíminn - 08.07.1973, Qupperneq 25
Sunnudagur 8. júli 1973.
TÍMINN
25
Verdi meö hljómsveit
Metrópólitanóperunnar i
New York.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Siðdegissagan: „Eigi
má sköpum rcnna” eftir
Harry Ferguson.Axel Thor-
steinsson þýðir og les (5).
15.00 Miödegistónleikar:
Budapestkvartettinn leikur
strengjakvartett i c-moll op.
18 nr. 4 eftir Beethoven.
Robert Casadesus leikur á
pianó „ítalska konsertinn”
eftir J.S. Bach, Robert,
Gaby og Jean Casadesus
leika með Filadelfiuhljóm-
sveitinni. Konsert i F-dúr
(K-243) fyrir þrjú pianó og
hljómsveit, Eugene
Ormandy stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
16.15 Veðurfregnir.
16.25 Popphornið
17.10 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.20 Daglegt mál. Helgi J.
Halldórsson cand mag. flyt-
ur þáttinn.
19.25 Strjálbýli — Þéttbýli.
Þáttur i umsjá Vilhelms G.
Kristinssonar fréttamanns.
19.40 Um daginn og vcginn
Þorsteinn Sæmundsson
stjarnfræðingur talar.
20.00 Mánudagslögin.
20.30 Sólin i íberiu. Þáttur i
umsjá Ingibjargar
Jónsdóttur.
21.05 Pianóleikur Martha
Argerich leikur sónötu i
h-moll op. 58 eftir Chopin.
21.30 Útvarpssagan: „Blómin
i ánni” eftir Editu Morris.
Þórarinn Guðnason þýddi.
Edda Þórarinsdóttir les (3).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Búna'ðar-
þáttur: Pétur Sigurðsson
framkvæmdastjóri Lif-
eyrissjóðs bænda talar um
Lifeyrissjóð bænda.
22.30 Hljómplötusafnið i
umsjá Gunnars Guðmunds-
sonar.
23.30 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
Skatt- og útsvars-
skrór Reykjanes-
umdæmis drið 1973
Skatt- og útsvarsskrár allra sveitarfélaga
i Reykjanesumdæmi og Keflavikurflug-
vallar fyrir árið 1973 liggja frammi frá 10
júli til 23. júli að báðum dögum með-
töldum á eftirgreindum stöðum:
í Kópavogi:
í Félagsheimili Kópavogs á II. hæð, alla
virka daga frá kl. 10-12 f.h. og 13-16 e.h.,
nema laugardaga.
í Hafnarfirði:
Á skattstofu Reykjanesumdæmis frá kl.
10-16 alla virka daga, nema laugardaga.
í Keflavik:
Hjá ,,Járn og Skip” við Vikurbraut.
Á Keflavikurflugvelli:
Hjá umboðsmanni skattstjóra, Guðmundi
Gunnlaugssyni, á skrifstofu Flugmála-
stjórnar.
í Hreppum:
Hjá umboðsmönnum skattstjóra.
í skránum eru eftirtalin gjöld:
1. Tekjuskattur.
2. Eignarskattur með viðlagagjaldi.
3. SlysaD’yggingagj. v/heimilisstarfa.
4. Slysatryggingjargj. atvinnurckenda.
5. I.ifeyristryggingagjald atvinnurekenda.
6. Atvinnuleysistryggingjariðgjald.
7. Iðnlánasjóðsgjald.
8. Iönaðargjald.
9. Launaskattur (ögreiddur).
10. Útsvör.
11. Viðlagagjald 1% af útsvarsskyldum tekjum.
12. Aðstöðugjöld, þar sem þau eru álögð.
13. Viðlagagjald af aöstöðugjaldsstofni.
í skránum eru einnig
sóknargjöld og kirkjugarðagjöld þeirra
sókna, sem þess hafa óskað, en þessi gjöld
eru ekki álögð af skattstjóra
1 tekju- og eignarskatti er innifalið 1%
álag til Byggingarsjóðs rikisins.
I fjárhæð álagðs eignarskatts, sem nemur
kr. 439 eða hærri upphæð, er innifalið
viðlagagjald, sem nemur 22,9% f járhæðar
álagðs eignarskatts.
Kærufrestur vegna ofanritaðra gjalda
undir tölulið 1-13 er til loka dagsins 23. júli
1973. Kærur skulu vera skriflegar og
sendast til Skattstofu Reykjanesumdæmis
i Hafnarfirði eða umboðsmanns i heima-
sveit.
Skrár um álagðan söluskatt I Reykjanes-
umdæmi 1973 liggja ennfremur frammi á
skattstofunni.
Hafnarfirði, 7-júli 1973.
Skattstjórinn i Reykjanesumdæmi.
DREPUR VATNSMIÐLUNIN
ALLAN SILUNGINN?
Mun allur silungur i Þórisvatni
deyja út, vegna vatnsmiðlunar-
framkvæmda Landsvirkjunar?
Slikt er engan veginn útilokað,
þvi vatnsmiðlunin hefur þær af-
leiðingar að árstiðarbundinn mis
munur á hæð yfirborðs vatnsins
getur orðið allt að fjórtán metrum
og við það munu hrygningar-
stöðvar urriðans, em er eini
nytjafiskurinn i vatninu, eyði-
leggjast. Urriðinn hrygnir þar,
sem nokkur straumur er i
vatninu, en slikir staðir eru nærri
yfirborði vatnsins. Ef vatnsborðið
lækkar um marga metra um vet-
urinn gefur auga leið að klak-
stöðvarnar lenda á þurru,og þarf
þá enginn að vonast eftir mörgum
seiðum frá slikum klakstöðvum.
Bifreiða-
viðgerðir
Fljótt og vel af hendi
leyst.
Reynið viðskiptin.
Bifreiðastillingin
Grensásvegi 11, simi
81330.
Einnig hefur vatnsborðs-
breytingin þær breytingar i för
með sér, að allur gróður i vatninu
mun minnka stórlega og þar með
fækkar botndýrunum, sem eru
aðalfæðutegund urriðans.
Jón Kristjánsson, fiskifræðing-
ur, gerði athugun á þeim aðstæð-
um, sem verða fyrir urriðann i
vatninu eftir breytinguna. Segir
Jón i álitsgerð sinni, að engan
veginn sé útilokað að halda við
silungsstofninum, en þá þurfi að
sleppa 150 til 250 þúsund seiðum i
vatnið á ári hverju.
Ölver Karlsson i Þjórsártúni,
sagði við blaðamann Timans, að
vegna þessarar hættu, sem nú
steðjaði að fisinum i Þórisvatni
hefðu veiðiréttareigendur skrilaö
stjórn Landsvirkjunar bréf,þar
sem bændurnir fóru fram á, að
Landsvirkjun ætti viðræður við
eigendur veiðiréttarins um,
hverjar leiðir væru færar til að
halda við fiski i vatninu. Annað
og meira báðu bændurnir ekki
um. Ennþá hefur ekkert svar
borizt frá Landsvirkjun. Sagði
ölver, að ef Landsvirkjun ætlaði
sér að halda áfram á sömu braut,
og koma sér hjá þvi að ræða við
bændurna, sæju þeir sér ekki
annað fært, en að höfða mál á
hendur Landsvirkjun, þar sem
þeir færu fram á bætur vegna
vatnsmiðlunarframkvæmdanna.
Þriggja herbergj,
100 fermetra íbúð
til sölu i tvibýlishúsi á góðum stað i mið-
borginni, nálægt Háskólanum.
íbúðin er öll nýstandsett m.a. ný teppi,
eldhúsinnretting, og fl. Mjög vandaðar
innréttingar. Laus nú þegar, skipti koma
til greina. Tilboð óskast send i P.O. BOX
374.
w
m
X
Á NÆSTA
LEITI ■ HÁALEITI
Háaleitisútibú Samvinnubankans
er staðsett miðsvæðis i austur
borginni. GREIÐ AFGREIÐSLA
NÆG BÍLASTÆÐI
Afgreiðslutimi kl. 13-18,30
SAMVINNUBANKINN
Háaleitisútibú-Austurveri
prasTasKogur
Unglinga-
búðir:
íþróttir, starf, leikir o. fl.
ungmennatelag Islands og Ung-
mennasamband Kjalarnesþings
munu i sumar starfrækja
Unglingabúðir fyrir 12 til 14 ára
unglinga i Þrastaskógi Árnessýslu.
Megin starfsþættir verða:
Vinnuskóli þar sem unnið verður
að fegrun skógarins, hreinsun, lag-
færingu tjaldstæða, plöntun og
grisjun trjágróðurs.
íþróttir. Kenndar verða helztu
greinar iþrótta svo sem frjálsar
iþróttir, knattleikir, ef til vill glima
o.fl. Leikir. Kvöldvökur verða i
umsjá þátttakenda, einnig verða
leikirstundaðiri dagsins önn þegar
Þessi námskeið eru ákveðin:
1. 22. júli til 28. júli.
2. 29. júli tii 4. ágúst.
3. 6. ágúst til 12. ágúst.
4. 12. ágúst tii 18. ágúst.
Þátttökugjald verður krónur 900,00
fyrir hvert námskeið. Tekið er á
móti pöntunum og nánari
upplýsingar gefnar i simum 16016
og 12546, einnig á skrifstofu UMFÍ
Klapparstig 16 Reykjavik.
UMFÍ UMSK