Tíminn - 08.07.1973, Qupperneq 26
yVSJífM'
TÍMINN
f'TOr
26
Sunnudagur 8. júlí 1973.
HERMANN GUNNARSSON...sést hér senda knöttinn í netiö hjá Norömönnum. islenzkur sigur var staðreynd 2:0.
ÞEGAR HANN ER í ESSINU SÍNU
GETUR HANN ÓGNAÐ HVAÐA
VÖRN OG HVAÐA MARKVERÐI
ft A f" Hermann Gunnarsson hefur oft komið áhorfendum til að rísa úr sínum af spenningi
BZ B m 1 WZ, og hann hefur komið mörgum áhorfendum á Laugardalsvellinum í gott skap
Hverjir þekkja ekki Hermann Gunnarsson, einhvern marksæknasta knattspyrnu-
mann, sem ísland hefurátt. Þeir, sem hafa ekki séö Hermann, eða Hemma eins og
hann er kallaður, hafa örugglega oft lesið setningar á þessa leið. „Hann sigldi
örugglega fram hjá varnarmönnum — og skaut síðan hörkuskoti framhjá mark-
verðinum, sem reyndi árangurslaust að verja — knötturinn söng algjörlega óverj-
andi í netinu." Það á að vera óþarfi að lýsa þessum mikla markaskorara, sem
byrjaði yngstur manna að leika í meistaraflokksliði —aðeins 16 ára. Hermann hefur
ótrúlegustu reynslu að baki, hann hefur skorað mörk á móti sterkustu félagsliðum
Evrópu og verið ofarlega á lista y fir markhæstu menn i Evrópukeppni.
HÆTTA VIÐ MARKIÐ......Hermann Gunnarsson á fullri ferö aö marki Skagamanna. Stuttu sföar söng
knötturinn I netinu.
Byrjaði ungur að hrella
markverði
Þótt að Hermann væri kominn
af mikilli Valsfjölskyldu, byrjaði
hann sinn kanttspyrnuferill hjá
Víking. Þá var hann aðeins 7 ára
og lék i 4.flokki (5. flokkur var þá
ekki til), en fljótlega gekk hann
yfir i Val. Ekki leið á löngu, áður
en markverðir færu að hræðast
Hermann, enda ekki nema von,
ungur byrjaði hann að hrella þá.
Hann skoraði mikið af mörkum,
þvi fengu gömlu félagarnir hans
úr Viking fljótlega að kynnast.
Ari eftir að hann fór yfir i Val, lék
hann tvo leiki gegn Viking. Valur
vann fyrri leikinn, sem var i
Reykjavikurmóti 14:0. Hermann,
eða Hemmi eins og hann er
kallaður, skoraði tiu mörk þá.
Fimm dögum siðar, léku Valur og
Vikingur til úrslita i Islands-
mótinu — þeim leik lauk með
sigri Vals 10:0 og skoraði Her-
mann þá sjö mörk.
Aðeins 16 ára lék Hermann sinn
fyrsta meistaraflokksleik (þá
ennþá leikmaður i 3. flokki) Hann
og Bergsveinn Alfonsson komu
þá inn i Valsliðið, sem nýliðar i
Reykjavikurmóti. Byrjunin var
góö, Valur varð Reykjavikur-
meistari og skoraði Hermann sjö
mörk i mótinu. Hann varð fastur
leikmaður i Valsliðinu og varð
Bikarmeistari KSI 1956 Reykja-
vikurmeistari 1968, íslands-
meistari 1966 og ’67 með liðinu.
Hermann hefur þrisvar sinnum
orðið markakóngur 1. deildar,
1965, 1967 skoraði þá 14 mörk) og
1970, en þá lék hann með Akur-
eyrarliðinu. Hermann var kosinn
„Knattspyrnumaður ársins” i
fyrstu skoðunarkönnun Timans,
1968.
Var á lista með mestu
markaskorurum
Evrópu
Það eru ekki eingöngu is-
lenzkir markverðir, sem hafa
þurft að hirða kn. úr netinu, þeg-
ar Hermann hefur skorað. Hann
hefur skorað mörk gegn mörgum
heimsfrægum liðum, eins og
Lundúnarliðinu Arsenal, Benfica,
ungversku 1. deildarliðunum
Vasas Budapest og Tatabanya.
Hermann var fyrirliði Vals-
liðsins, þegar það varð fyrsta is-
lenzka knattspyrnuliðið, sem
komst i 2. umferð Evrópu-
meistarakeppninnar árið 1967.
Fyrsti leikur hans sem fyrirliði
var gegn Jeunesse D’ Esch frá
Luxemborg. Þan leik spilaði
Hermann tábrotinn — hann lét
það ekki á sig fá og skoraði mörk
i leiknum.
Þegar Valsliðið lék i 2. um-
ferðinni gegn ungverska liðinu
Vasas, birtist i franska Knatt-
spyrnublaðinu FRANS
FOOTBALL, listi yfir markhæstu
leikmenn Evrópukeppninnar.
Markhæstur þá var Paul Van
Himst, kanttspyrnukappinn mikli
frá Belgiu — hann hafði þá skorað
fimm mörk. í blaðinu var sagt frá
honum og hvað hann heföi af-
rekað um ævina. I öðru sæti kom
svo óþekkt nafn, sem enginn
þekkti. Einhver Eskimói frá Is-
landi en það var enginn annar en
Hermann Gunnarsson með fjögur
mörk.
Þegar við spurðum Hermann,
hvernig honum hefði fundizt að
vera á lista með mestu marka-
skorurum Evrópu, sagði hann:
„Oneitanlega var það gaman,
sérstaklega þegar nöfn eins og
George Best og Denis Law, hinir
snjöllu leikmenn Manchester
United, voru fyrir aftan mig á
listanum með 1 og 2 mörk. En
United-liðið var þá geysilega
sterkt, enda vann liðið Evrópu-
keppnina.
Hann ógnaði hvaða vörn
og hvaða markverði
sem var.
Hermann hefur leikið 19 lands-
leiki i knattspyrnu, hann lék sinn
fyrsta leik 19 ára gamall gegn