Fréttablaðið - 22.08.2004, Blaðsíða 4
4 22. ágúst 2004 SUNNUDAGUR
Hrafnabjörg ehf. og Landsvirkjun:
Samkeppni um virkjanaleyfi
IÐNAÐUR Hrafnabjörg ehf., nýstofn-
að félag Orkuveitu Reykjavíkur,
Þingeyjarsveitar, Orkuveitu Húsa-
víkur og Norðurorku á Akureyri,
keppir við Landsvirkjun um virkj-
analeyfi við Hrafnabjörg við
Skjálfandafljót. Orkuveita Reykja-
víkur sótti um virkjanaleyfi til iðn-
aðarráðuneytisins, en umsóknin
færist, að sögn Ásgeirs Margeirs-
sonar, aðstoðarforstjóra OR og
stjórnarformanns Hrafnabjarga,
yfir á nýstofnað félag.
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar-
ráðherra hefur viðrað hugmyndir
um samnýtingu virkjanakosta og
telur slíkt mögulegt með reglugerð-
arbreytingum. Ásgeir furðar sig
hins vegar á slíkum vangaveltum.
„Til hvers er þá stuðlað að sam-
keppni í raforkuframleiðslu? Nýju
raforkulögin gera fyrirtækjum
kleift að keppa um virkjanakosti,“
sagði hann en kvaðst eiga erfitt
með að tjá sig um málið fyrr en
hann sæi fullmótaðar hugmyndir
ráðherra.
„Við höfum þær væntingar að
við fáum þetta leyfi,“ segir Ásgeir.
„Að félaginu stendur ekki bara
Orkuveita Reykjavíkur, heldur við-
komandi sveitarfélag og tvö orku-
félög á Norðurlandi og vilja þau
beinlínis fara í verkefnið til ýta
undir þróun á atvinnulífi og byggð í
þessum landshluta.“ ■
STJÓRNMÁL Ríkisstjórnin hefur
svikið loforð um jöfnun á hlut
kynjanna í stjórnmálum með
brottvikningu Sivjar Friðleifs-
dóttur úr ráðherrastóli, að mati
Þorbjargar Ingu Jónsdóttur,
hæstaréttarlögmanns og for-
manns Kvenréttindafélags Ís-
lands. Hún segir að áhugavert
væri að skoða hvort rétt sé að fara
með ákvörðun Framsóknarflokks-
ins fyrir dómstóla. Bryndís
Bjarnason, jafnréttisfulltrúi
Framsóknarflokksins, segir
kvennaframboð koma til greina
haldi flokksforystan áfram að
ganga fram hjá konum.
Þorbjörg er undrandi og
hneyksluð á brottvikningu Sivjar.
Öll viðmið sem fylgt hafi verið við
val á ráðherrum og þær reglur
sem Framsóknarflokkurinn sjálf-
ur hafi skapað sér séu brotin.
Ríkisstjórnin standi ekki undir
væntingum Kvenréttindafélags
og annarra sem vinni að jafnrétti
kynjanna.
„Ég segi þetta tvímælalaust
svikin loforð,“ segir Þorbjörg.
Augljóst sé að allir þingmenn
Framsóknarflokksins séu hæfir
til að gegna ráðherradómi: „En
mér finnst að áfram eigi að nota
þau viðmið sem ég tel að hafi
verið notuð í pólitík, það er að
segja hverjir komi úr stærstu
kjördæmunum, hverjir hafi flestu
atkvæðin á bak við sig og annað
slíkt. Ég get ekki dregið aðra
ályktun en að fólk í Framsóknar-
flokknum leyfi sér að horfa fram
hjá öllu slíku núna vegna þess að
Siv er kona. Mér finnst að um brot
á jafnrétti sé að ræða.“
Þorbjörg segir að brottvikning
Sivjar fái konur sem vinni að jafn-
réttismálum til að huga að því
hvort eina leiðin til jafnréttis sé
sérstakt kvennaframboð til að
jafna hlut kynjanna í pólitík. „Ef
það er ekki hægt að breyta hlutum
með öðrum hætti hljótum við að
knýja á um að það verði settur
kynjakvóti á framboðslistanna,
inn á þing og í ríkisstjórn.“
Bryndís Bjarnason segir ólgu
og hita vera í konum innan flokks-
ins vegna hvarfs Sivjar úr ráð-
herrastóli. Hún segir Framsókn-
arkonur þó ekki á leið út úr
flokknum, en sérframboð hafi
verið rætt: „Það er ekkert laun-
ungarmál. Konur eru búnar að fá
nóg. Við höfum ákveðið að efla
okkur innan flokksins, en kvenna-
framboð kemur til greina ef
ekkert gengur.“
gag@frettabladid.is
Bílsprengja í Írak:
Einn her-
maður lést
ÍRAK Einn pólskur hermaður lést
og sex aðrir slösuðust þegar bíl-
sprengja sprakk í miðhluta Íraks í
gær.
Sprengjan var falin í bíl sem svo
var sprengdur í loft upp í þann
mund sem bílalest vestrænna her-
sveita fór hjá. Hermaðurinn er sá
tíundi úr liði Pólverja sem fellur í
Írak.
Pólverjar leiða hóp alþjóðlegra
hersveita á svæðinu í miðhluta
Íraks. Þar geisar mikil óöld. Í
fyrradag létust tveir pólskir her-
menn þegar þeim var gerð fyrir-
sát í borginni Hillah. Árásar-
mennirnir eru ófundnir. ■
Öryggisráð SÞ um Súdan:
Ekki þungar
refsiaðgerðir
LONDON, AP Meirihluti Öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna vill ekki
beita Súdan þungum refsiaðgerð-
um hafi ekki tekist að binda endi á
átök í Darfur héraði í lok mánað-
arins að sögn talsmanna breska
utanríkisráðuneytisins.
Þann 30. júlí veitti öryggisráð-
ið súdönskum stjórnvöldum mán-
uð til að stöðva átökin. Jack Straw,
utanríkisráðherra Bretlands, er á
leið til Súdan að ræða við stjórn-
völd, en að sögn fulltrúa hans er
enn rætt innan öryggisráðsins
hvað eigi að gera þegar fresturinn
rennur út. ■
Á hið opinbera að fjármagna
stækkun Laugardalsvallar ?
Spurning dagsins í dag:
Tókstu þátt í Menningarnótt í Reykja-
vík?
Niðurstöður gærdagsins
á visir.is
46%
54%
Nei
Já
KJÖRKASSINN
Farðu inn á visir.is og segðu þína skoðun
visir.is
Olíuverð:
Verð hækkar
stöðugt
OLÍA Tunnan af olíu heldur
áfram að hækka og var verðið á
hverri tunnu komið í tæpa 50
dollara þegar það fór hæst á
mörkuðum í fyrradag. Það gerir
3.549 krónur á tunnu og hefur
metverð fyrir olíu nú hækkað
fimmtán daga í röð. Hafa þjóð-
arleiðtogar sívaxandi áhyggjur
af áhrifum vegna þessa á efna-
hag heimsins. Búast má við enn
frekari hækkunum nema takist
að hefta þá uppreisnarmenn í
Írak sem einbeita sér að árásum
á olíuiðnað í landinu. ■
ÁSGEIR MARGEIRSSON
Ásgeir er aðstoðarforstjóri Orkuveitu Reykja-
víkur og stjórnarformaður Hrafnabjarga, und-
irbúningsfélags um virkjun í Skjálfandafljóti.
OLÍULEIÐSLUR SPRENGDAR
Olíuiðnaðurinn í Írak má alls staðar búast
við árásum.
FRÁ FLÓTTAMANNABÚÐUM Í SÚDAN
Talið er að rúmlega milljón manns sé á
vergangi og enn fleiri þarfnist neyðar-
aðstoðar.
Sprengjutilræði á Spáni:
Einn særðist
SPÁNN Tvær sprengjur sprungu
um hádegisbil í gær í tveimur
strandbæjum í norðvesturhluta
Spánar. Einn særðist en mannfall
varð ekki. Talið er víst að rekja
megi sprengjurnar til ETA, að-
skilnaðarsamtaka Baska. Frá
samtökunum barst enda viðvörun
um sprengjurnar áður en þær
sprungu. Er þetta fjórða
sprengju tilræðið í þessum mán-
uði í norðvesturhluta Spánar. ■
Framsóknarkonur
íhuga sérframboð
Formaður Kvenréttindafélags Íslands er undrandi og hneykslaður yfir
brottvikningu Sivjar úr ráðherrastóli. Jafnréttisfulltrúi flokksins segir að
fái konur ekki brautargengi innan flokksins komi sérframboð til greina.
SIV FRIÐLEIFSDÓTTIR
Framsóknarkonum er óljóst hvað vakir fyrir flokksforystunni með brottvikningu Sivjar úr
ráðherradómi. Siv hlaut tæplega 20% prósent allra greiddra atkvæða stuðningsmanna
flokksins í síðustu kosningum, tæplega 7% meira en Halldór Ásgrímsson og Árni Magnús-
son til samans.
Alvara í hótunum herskárra múslima í Írak:
Olíuútflutningur gæti lamast
ÍRAK Bandarísku öryggisfyrirtæki
sem fékk greidda milljarða króna til
að gæta öryggis olíuiðnaðarins í Írak
gengur svo illa að Írakar vilja ekkert
hafa með það að gera lengur. Átti
fyrirtækið, sem er angi af Halli-
burton-veldinu sem varaforseti
Bandaríkjanna starfaði lengi fyrir,
að sjá um að koma olíuútflutningi
Íraka af stað aftur eftir stríðið en
árangurinn hefur látið á sér standa.
Undanfarið hafa herskáir flokkar
sjíamúslima valdið miklum skemmd-
um á olíustöðvum og olíuleiðslum og
hafa þeir hótað frekari aðgerðum
bráðlega. Léleg öryggisgæsla hefur
gert þeim starfið auðvelt og nú hafa
írönsk olíufyrirtæki fengið nóg.
Mörg erlend olíufyrirtæki hafa enn
fremur notað viðvarandi öryggis-
leysi sem yfirskin til að fresta upp-
byggingu sinni í landinu. ■
BRENNT TIL GRUNNA
Herskáir sjíamúslimar brenndu höfuðstöðvar olíufyrirtækis í suðurhluta Írak til grunna.
Kongóskir erindrekar:
Heim frá
Búrúndí
KONGÓ, AP Yfirvöld í Kongó hafa
kallað alla stjórnarerindreka
sína í Búrúndí heim af öryggis-
ástæðum. Harka hefur færst í
leikinn í mótmælum við sendi-
ráð Kongó í Búrúndí, eftir að
vígasveitir frá Kongó réðust á
flóttamannabúðir Sameinuðu
þjóðanna fyrir skemmstu og
vógu 160 manns.
Samskipti ríkjanna hafa í
kjölfarið einkennst af stigvax-
andi spennu. Á miðvikudag
reyndu mótmælendur að rífa
niður kongóska fánann við
sendiráðið í Búrundí og skaut
lögreglan táragasi á mannfjöld-
ann. ■
04-05 fréttir 21.8.2004 21:09 Page 2