Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.08.2004, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 26.08.2004, Qupperneq 24
Haustin eru hentugur tími til helgarferða. Ferð innanlands er tilvalinn kostur. Hægt er að leigja sumarbústaði fyrir sanngjarnt verð eða bregða sér í menningarferð innan- lands, t.d. til Akureyrar, Ísafjarðar eða Reykjavíkur. Árið 1976 kom fjórtán ára spænskur strákur í heimsókn til frænku sinnar sem átti heima á Íslandi. Þessi heimsókn hafði djúpstæð áhrif á líf hans og í dag er hann sannkallaður heims- hornaflakkari sem vinnur við að ferðast um heiminn og kanna skemmtilega ferðamöguleika fyrir ferðaskrifstofur auk þess sem hann skrifar ferðabækur og greinar í ferðatímarit. Vincent Plédel hefur ekki haft mikinn tíma fyrir sumarfrí undanfarin ár þar sem hann hefur nýlokið fjög- urra ára heimsreisu þar sem hann og kona hans Marian Ocana söfn- uðu menningarefni fyrir mennta- málayfirvöld í Ceuta í Marokkó. „Ég vildi endilega koma aftur til Íslands í sumarfríinu, því fyrsta í fjögur ár, bæði vegna þess að ég náði ekki að koma hingað þegar við komum frá Ameríku í fyrra og eins vegna þess að Marian hefur aldrei séð Ísland og mér fannst endilega að hún þyrfti að sjá hvernig þetta byrjaði allt hjá mér,“ segir Vincent brosandi. „Hér fékk ég ferðabakteríuna þegar ég fór með frænku minni í fjögurra vikna ferð um allt landið. Ég hafði aldrei kynnst neinu landi á þennan hátt. Þarna kom ég í fyrsta sinn í fjór- hjóladrifinn jeppa en ég hef mikið dálæti á þeim ferðamáta og fer flestar mínar ferðir á slíku farar- tæki. Eftir þetta fór ég í ferðalag hvenær sem ég gat, fyrst á mínum eigin vegum, á Interrail eða hrein- lega bara á puttanum en svo kom að því að ferðirnar tóku of mikinn tíma frá vinnunni. Þá stofnuðum við Marian fyrirtæki sem sam- einar vinnu okkar og ástríðu og gerir okkur kleift að halda áfram að ferðast.“ Hver skyldi vera eftirminnileg- asti staðurinn sem þau hjónin hafa heimsótt? „Ég væri til í að búa í miðri Ástralíu. Þar búa fáir og er mjög friðsælt, landið er gríðar- stórt og fjölbreytt og óbyggðirnar magnaðar. Svo er hægt að velja sér veðurfar og setjast bara upp í bíl- inn og keyra þangað til maður finnur veður sem manni líkar við.“ „Öfugt við Ísland þar sem veðrið velur mann,“ bætir Marian við en henni fannst dálítið kalt í upphafi heimsóknarinnar til Íslands enda er hún alin upp í Marokkó. En ætla þau að skrifa eitthvað um Ísland? „Við tókum margar myndir og langar til að kynna þetta ævintýraland fyrir Spán- verjum. Nú er orðið mun auðveld- ara fyrir þá að komast til Íslands þar sem hægt er að fljúga beint frá bæði Madríd og Barcelona.“ Vincent og Marian dvelja á Ís- landi í þrjár vikur í þetta sinn og hafa náð að ferðast vítt og breitt svo þau hafa ýmislegt skemmti- legt að segja ferðaþyrstum Spán- verjum. Þeim sem vilja vita meira um ferðir þeirra er bent á heima- síðuna www.ruta-imperios.com þar sem lesa má um heimsreisuna á ensku og spænsku. brynhildurb@frettabladid.is Hér eru þau Vincent og Marian við Dettifoss. Vincent Plédel hefur ferðast um allan heim: Fékk ferðabakteríuna á Íslandi „Þetta er sambland af veisluhöld- um og náttúruskoðun og tekur 3-4 tíma,“ byrjar Ragnheiður Valdi- marsdóttir, markaðsstjóri hjá Sæ- ferðum í Stykkishólmi, lýsingu sína á ferðum sem farnar eru á vit ævintýranna í Breiðafirði. Síðan heldur hún áfram: „Það er siglt af stað frá Stykkishólmi og aðeins litið á eyjarnar í kring en mjög fljótlega er settur út plógur og byrjað að veiða. Síðan er borið inn hlaðborð og matseðillinn er mis- munandi en þar eru meðal annars sjávarréttir og snöggsteiktur svartfugl.“ Tvö skip eru í þessum siglingum með sali fyrir 90-100 farþega hvort og gott útsýnisþilfar. Ragnheiður segir ferðirnar vinsælar fyrir starfsmannafélög og hópa og sé lág- marksfjöldi 25 manns. „Sjóferð sæl- kerans“ segir hún vinsælustu veisluferðina enda snúist hún mikið um matinn. „En bæði í upphafi ferð- ar og á meðan á máltíð stendur er lónað á milli eyjanna á Hvamms- firði,“ bendir hún á. Meðal náttúru- fyrirbæra á leiðinni nefnir Ragn- heiður fjölbreytilegar stuðlabergs- myndanir og segir alltaf talsvert af fugli á sveimi, meðal annars láti örninn oft sjá sig á haustin. Nú er verið að taka haustgjald upp í þessum ferðum sem er tals- vert lægra en það sem í gildi er yfir sumarmánuðina. Verðið á mann er nú 4.950 krónur og afsláttur er fyrir börn. ■ Hausttilboð á siglingum: Veisluhöld og náttúruskoðun Mmmmm... nú er bara að bretta upp ermar og taka til matar síns. Myndin er birt með leyfi Sæferða.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.