Fréttablaðið - 26.08.2004, Síða 24
Haustin eru hentugur tími til helgarferða. Ferð innanlands
er tilvalinn kostur. Hægt er að leigja sumarbústaði fyrir
sanngjarnt verð eða bregða sér í menningarferð innan-
lands, t.d. til Akureyrar, Ísafjarðar eða Reykjavíkur.
Árið 1976 kom fjórtán ára
spænskur strákur í heimsókn til
frænku sinnar sem átti heima á
Íslandi. Þessi heimsókn hafði
djúpstæð áhrif á líf hans og í dag
er hann sannkallaður heims-
hornaflakkari sem vinnur við að
ferðast um heiminn og kanna
skemmtilega ferðamöguleika
fyrir ferðaskrifstofur auk þess
sem hann skrifar ferðabækur og
greinar í ferðatímarit. Vincent
Plédel hefur ekki haft mikinn
tíma fyrir sumarfrí undanfarin ár
þar sem hann hefur nýlokið fjög-
urra ára heimsreisu þar sem hann
og kona hans Marian Ocana söfn-
uðu menningarefni fyrir mennta-
málayfirvöld í Ceuta í Marokkó.
„Ég vildi endilega koma aftur
til Íslands í sumarfríinu, því fyrsta
í fjögur ár, bæði vegna þess að ég
náði ekki að koma hingað þegar við
komum frá Ameríku í fyrra og
eins vegna þess að Marian hefur
aldrei séð Ísland og mér fannst
endilega að hún þyrfti að sjá
hvernig þetta byrjaði allt hjá mér,“
segir Vincent brosandi. „Hér fékk
ég ferðabakteríuna þegar ég fór
með frænku minni í fjögurra vikna
ferð um allt landið. Ég hafði aldrei
kynnst neinu landi á þennan hátt.
Þarna kom ég í fyrsta sinn í fjór-
hjóladrifinn jeppa en ég hef mikið
dálæti á þeim ferðamáta og fer
flestar mínar ferðir á slíku farar-
tæki. Eftir þetta fór ég í ferðalag
hvenær sem ég gat, fyrst á mínum
eigin vegum, á Interrail eða hrein-
lega bara á puttanum en svo kom
að því að ferðirnar tóku of mikinn
tíma frá vinnunni. Þá stofnuðum
við Marian fyrirtæki sem sam-
einar vinnu okkar og ástríðu og
gerir okkur kleift að halda áfram
að ferðast.“
Hver skyldi vera eftirminnileg-
asti staðurinn sem þau hjónin hafa
heimsótt? „Ég væri til í að búa í
miðri Ástralíu. Þar búa fáir og er
mjög friðsælt, landið er gríðar-
stórt og fjölbreytt og óbyggðirnar
magnaðar. Svo er hægt að velja sér
veðurfar og setjast bara upp í bíl-
inn og keyra þangað til maður
finnur veður sem manni líkar við.“
„Öfugt við Ísland þar sem veðrið
velur mann,“ bætir Marian við en
henni fannst dálítið kalt í upphafi
heimsóknarinnar til Íslands enda
er hún alin upp í Marokkó.
En ætla þau að skrifa eitthvað
um Ísland? „Við tókum margar
myndir og langar til að kynna
þetta ævintýraland fyrir Spán-
verjum. Nú er orðið mun auðveld-
ara fyrir þá að komast til Íslands
þar sem hægt er að fljúga beint
frá bæði Madríd og Barcelona.“
Vincent og Marian dvelja á Ís-
landi í þrjár vikur í þetta sinn og
hafa náð að ferðast vítt og breitt
svo þau hafa ýmislegt skemmti-
legt að segja ferðaþyrstum Spán-
verjum. Þeim sem vilja vita meira
um ferðir þeirra er bent á heima-
síðuna www.ruta-imperios.com
þar sem lesa má um heimsreisuna
á ensku og spænsku.
brynhildurb@frettabladid.is
Hér eru þau Vincent og Marian við Dettifoss.
Vincent Plédel hefur ferðast um allan heim:
Fékk ferðabakteríuna á Íslandi
„Þetta er sambland af veisluhöld-
um og náttúruskoðun og tekur 3-4
tíma,“ byrjar Ragnheiður Valdi-
marsdóttir, markaðsstjóri hjá Sæ-
ferðum í Stykkishólmi, lýsingu
sína á ferðum sem farnar eru á vit
ævintýranna í Breiðafirði. Síðan
heldur hún áfram: „Það er siglt af
stað frá Stykkishólmi og aðeins
litið á eyjarnar í kring en mjög
fljótlega er settur út plógur og
byrjað að veiða. Síðan er borið inn
hlaðborð og matseðillinn er mis-
munandi en þar eru meðal annars
sjávarréttir og snöggsteiktur
svartfugl.“
Tvö skip eru í þessum siglingum
með sali fyrir 90-100 farþega hvort
og gott útsýnisþilfar. Ragnheiður
segir ferðirnar vinsælar fyrir
starfsmannafélög og hópa og sé lág-
marksfjöldi 25 manns. „Sjóferð sæl-
kerans“ segir hún vinsælustu
veisluferðina enda snúist hún mikið
um matinn. „En bæði í upphafi ferð-
ar og á meðan á máltíð stendur er
lónað á milli eyjanna á Hvamms-
firði,“ bendir hún á. Meðal náttúru-
fyrirbæra á leiðinni nefnir Ragn-
heiður fjölbreytilegar stuðlabergs-
myndanir og segir alltaf talsvert af
fugli á sveimi, meðal annars láti
örninn oft sjá sig á haustin.
Nú er verið að taka haustgjald
upp í þessum ferðum sem er tals-
vert lægra en það sem í gildi er yfir
sumarmánuðina. Verðið á mann er
nú 4.950 krónur og afsláttur er
fyrir börn. ■
Hausttilboð á siglingum:
Veisluhöld og náttúruskoðun
Mmmmm... nú er bara að bretta upp
ermar og taka til matar síns. Myndin er
birt með leyfi Sæferða.