Fréttablaðið - 26.08.2004, Side 64

Fréttablaðið - 26.08.2004, Side 64
TÓNLEIKAR  17.00 Sumaróperan kemur í geisladiskaverslunina 12 Tónar á Skólavörðustíg 15 og flytur kafla úr Happy End.  21.00 Dúndurfréttir taka Best of Pink Floyd og Led Zeppelin á Gauki á Stöng.  22.00 Gummi Jóns leikur og syngur eigin lög, einn síns liðs með gítar- inn, á Sjávarperlunni, Grindavík. ■ ■ ÚTIVIST  21.00 Helgi M. Sigurðsson sagn- fræðingur gengur um Elliðaárdal- inn til að kanna slóðir drauga, álfa og afbrotarmanna. Lagt verður af stað frá miðasölu Árbæjarsafns. Ókeypis aðgangur. ■ ■ SÖNGLEIKIR  20.00 Sumaróperan sýnir söng- leikinn Happy End í Gamla bíói, að þessu sinni með textum á skjávarpa fyrir heyrnarlausa. 36 26. ágúst 2004 FIMMTUDAGUR „Áður fyrr áttu sex bæir land að Elliðaánum og það voru reimleikar á þeim öllum,“ segir Helgi M. Sig- urðsson safnvörður, sem ætlar að ganga í fararbroddi draugagöngu um Elliðaárdalinn í kvöld. Draugaganga um Elliðaárdalinn er orðinn árviss viðburður hjá Helga. Þar segir Helgi sögur af draugum, álfum, afbrotamönnum og fleiri afbrigðilegum verum í Elliðaárdal. Þessar sögugöngur um myrkar slóðir Elliðaárdals hafa jafnan verið mjög vel sóttar. „Já, fólk hefur gaman af þessu. Þetta er hvort tveggja hugsað til þess að fólk fái sér heilsusamlega göngu og svo tengi ég það við sögur frá svæðinu. Þessar sögur varpa svolítið öðru ljósi á landslagið og svæðið.“ Sögurnar eru býsna mergjaðar og kraftmiklar, segir Helgi. „Þarna var til dæmis framið morð fyrir 300 árum og er til mjög ítarleg lýsing á því og aftöku þeirra tveggja sem stóðu að morðinu. Þetta var á þeim tíma þegar menn voru hálshöggnir og hausinn settur á stöng. Aftakan fór fram á Kópavogsþingstað og fyrir þrjátíu árum fannst dysin. Hauskúpan var til fóta í gröfinni.“ Helgi segir algengara að draugasögur tengist svæðum í Elliðaárdal en annars staðar á höfuðborgarsvæðinu. „Við vitum að þessar huldu vætt- ir eru meira og minna hugarburður en það er líka áhugavert,“ segir Helgi, en tekur þó fram að sjálfur trúi hann öllum þessum sögum. ■ HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 23 24 25 26 27 28 29 Fimmtudagur ÁGÚST 6. sýning: fim. 26. ágúst kl. 20.00 7. sýning: lau. 28. ágúst kl. 20.00 Allra síðasta sýning Örfá sæti laus ■ ■ SKEMMTANIR  20.00 Hljómsveitinn Orchestra Le Grand Tango og Egill Ólafsson koma fram á Grand Milonga- kvöldi á Nasa við Austurvöll, ásamt þeim Chisho og Eugenia og Cecilia og Jean-Sebastien.  Bítlarnir spila á Hverfisbarnum. Þótt tónlistin og söngurinn beri gleðileikinn Happy End að mestu leyti uppi er engu að síður vel hægt að njóta sýningarinnar án þess að heyra mikið, ekki síst ef leik- og söngtexti er birtur á skjá jafnóð- um, eins og Sumaróperan ætlar að gera í Gamla bíói í kvöld. „Hugmyndin er komin frá Guð- mundi Jónssyni söngvara, sem er í aðalhlutverkinu,“ segir Hrólfur Sæ- mundsson, söngvari og forsprakki Sumaróperunnar. „Hugmyndin kviknaði af því að móðir Guðmund- ar er heyrnarlaus. Okkur fannst þetta svo fín hugmynd að við ákváð- um að kýla á það. Mér skilst líka á Guðmundi að þetta hafi áður verið gert, til þess að veita heyrnarlaus- um færi á að njóta þess að fara í leikhús og óperuna án þess að bygg- ja það bara út frá varalestri.“ Hrólfur segir þetta hafa mælst vel fyrir hjá Félagi heyrnarlausra. Hann veit ekki betur en að heyrn- arlausir ætli að fjölmenna í óper- una í kvöld. Sýningin á Happy End í kvöld er sú næstsíðasta en síðasta sýningin verður á laugardagskvöldið. ■ Sungið fyrir heyrnarlausa FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N BILL OG GRÁKLÆDDA KONAN Í kvöld verður gamanóperan Happy End sýnd með texta í Gamla bíói. Segir frá draugunum í Elliðaárdal FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N HELGI M. SIGURÐSSON Stjórnar draugagöngu um Elliðaárdalinn í kvöld. ■ TÓNLIST ■ ÚTIVIST GRAND MILONG A NIGHT í kvöld á NASA kl. 21:00-01:0 0 Tónleikar Le Gran d Tango og Egill Ó lafsson Tangósýni ng frá Arge ntínu Chicho & Eugenia og Cecilia & Jean-S ebastien Tangóball Upplýsingar og miðasala Kramhúsið s. 551 5103 og við innganginn á Nasa H A D A Y A d e s ig n /L jó s m . S ig u rð u r J ö k u ll

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.