Fréttablaðið - 05.09.2004, Page 38
22 5. september 2004 SUNNUDAGUR
BLÓMKÁL (Brassica oleracea)TÓMATUR (Lycopersicon esculentum)SPERGILKÁL (Brassica oleracea)
Trésmiðir
Vegna aukinna verkefna framundan viljum við ráða til starfa trésmiði. Um er að ræða fram-
kvæmdir við stækkun Norðuráls og framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli. Möguleikar á húsnæði
fyrir trésmiði af landsbyggðinni. Upplýsingar um störfin og umsóknareyðublöð eru á skrifstofu
Ístaks, Engjateigi 7 og í síma 530 2700 á skrifstofutíma milli 8:15 og 17.
Sjá einnig heimasíðu Ístaks www.istak.is þar sem hægt er að ná í eyðublöð og senda.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
2 3 4 5 6 7 8
Sunnudagur
SEPTEMBER
■ ■ LEIKIR
14.00 ÍBV og Valur mætast í Eyjum í
Landsbankadeild kvenna.
14.00 FH og Fjölnir mætast í
Landsbankadeild kvenna.
14.00 KR og Þór/KA/KS mætast í
Landsbankadeild kvenna.
14.00 Breiðablik og Stjarnan
mætast í Landsbankad. kvenna.
18.00 Úrslitaleikur kvenna í
Reykjavík Open Leikið í
Austurbergi.
20.00 Úrslitaleikur karla í
Reykjavík Open Leikið í
Austurbergi.
20.00 Úrslitaleikur Valsmótsins í
körfubolta. Leikið á Hlíðarenda.
Landsliðsfyrirliðinn Eiður Smári Guðjohnsen:
Erum sársvekktir
Klaufaskapur hjá
Englendingum
Englendingar misstu niður unninn leik gegn Austurríki. Zlatan
Ibrahimovic skoraði fjögur mörk gegn Möltu.
FÓTBOLTI „Við erum náttúrulega
sársvekktir. Við vorum búnir að
gera okkur miklar vonir eftir síð-
asta leik og það er ekki annað
hægt að segja en að við höfum
klikkað á þessu,” sagði fyrirliðinn
Eiður Smári Guðjohnsen í leiks-
lok.
„Fyrsta markið sló okkur mikið
út af laginu. Mér fannst við spila
ágætlega, sköpuðum okkur eitt og
eitt hálffæri. Svo áttum við mjög
gott færi þegar Heiðar skýtur yfir
markið.
Við ógnuðum ágætlega og þeir
ná svo að skora í sinni fyrstu
sókn. Það dró mikið úr okkur og
það er erfitt að ná sér upp eftir
það. Við fáum svo á okkur mark
strax eftir hálfleik og náum að
svara því ágætlega með marki úr
vítaspyrnu en svo þegar þriðja
markið kemur þá drepur það okk-
ur endanlega.”
Sem fyrr er stöðugleikinn
vandamál hjá landsliðinu og fyrir-
liðinn er meðvitaður um það.
“Það er erfitt að segja hvað
vantar varðandi stöðugleikann
hjá liðinu. Í leiknum gegn Ítalíu
fáum við allt með okkur, fólkið og
stemningin var með ólíkindum
þar sem við náum að komast yfir
og bætum svo við öðru marki.
Hefði verið svipuð saga hérna,
að við værum fyrstir til að skora
þá hefði leikurinn þróast öðruvísi.
En búlgarska liðið er mjög vel
skipulagt og vel spilandi,” sagði
Eiður Smári Guðjohnsen.
FÓTBOLTI Fjölmargir leikir fóru
fram í undankeppni HM í
gærkvöld. Eins og gengur og
gerist var nokkuð um óvænt
úrslit.
Englendingar heimsóttu
Austurríkismenn og voru í mjög
góðri stöðu þegar 20 mínútur voru
eftir. Þá kom slæmur tveggja
mínútna kafli þar sem þeir fengu
á sig tvö mörk og því urðu þeir að
sætta sig við eitt stig í Vín.
David James var kennt um
klúðrið en mörkin sem hann fékk
á sig í leiknum voru af ódýrari
gerðinni.
Í riðli okkar Íslendinga
byrjuðu Króatar vel með því að
leggja Ungverja á heimavelli, 3–0.
Það má því búast við grimmu
ungversku liði sem mætir
Íslendingum í Búdapest á
miðvikudag.
Maður gærkvöldsins var þó
tvímælalaust Svíinn Zlatan
Ibrahimovic en hann skoraði
fjögur mörk í Möltu – þar af þrjú
á fyrstu 14 mínútum leiksins. Við
fáum hann í heimsókn í október.
Meðal óvæntustu úrslita
gærkvöldsins var sigur Albana
gegn nýkrýndum Evrópu-
meisturum Grikkja. Ísrael kom
einnig verulega á óvart með því
að ná markalausu jafntefli gegn
Frökkum á útivelli. Frakkar verða
eflaust einhvern tíma að jafna sig
á því að Zinedine Zidane sé
hættur að leika með landsliðinu.
Ítölum gekk betur í Noregi en á
Íslandi, þeir mörðu 2–1 sigur á
Norðmönnum. Frændur vorir
Danir byrjuðu einnig frekar illa
með því að gera 1-1 jafntefli gegn
Úkraínu á heimavelli.
Mikið var rætt og ritað um
hvort Ronaldo ætti að spila með
Portúgal gegn Lettum. Hann
spilaði, skoraði og var maðurinn á
bak við góðan 0–2 sigur Portúgala
í Riga.
LOK, LOK OG LÆS Eiður Smári Guðjohnsen var í strangri gæslu hjá búlgörsku varnar-
mönnunum í gær. Fréttablaðið/Pjetur
EKKERT GRÍN Í VÍN Englendingar fengu harðar móttökur í Vín í gær þar sem þeir náðu
aðeins jafntefli gegn Austurríki. Michael Owen fær hér væna byltu í leiknum.