Fréttablaðið - 12.09.2004, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 12.09.2004, Blaðsíða 19
Umsóknir ásamt ferilskrá óskast sendar til Ingu Huldar Hermóðsdóttur á netfangið inga.hermodsdottir@iu.is eða í móttöku Íslenska útvarpsfélagsins, Lynghálsi 5, 110 Reykjavík fyrir 20. september 2004. MYNDLYKLADREIFING Helstu verkefni: • Útkeyrsla á nýjum digital myndlyklum í heimahús ásamt uppsetningu búnaðar. • Frágangur samninga. • Ýmis önnur tilfallandi verkefni. Hæfniskröfur: • Mikil hæfni í mannlegum samskiptum. • Afburða þjónustulipurð. • Almenn tölvufærni. • Stundvísi og samviskusemi. • Bílpróf. • Hrein sakaskrá. VERKEFNAFULLTRÚI Helstu verkefni: • Svara fyrirspurnum um Digital Ísland. • Veita leiðbeiningar um uppsetningu búnaðar. • Almenn þjónusta. • Ýmis önnur tilfallandi verkefni. Hæfniskröfur: • Mikil hæfni í mannlegum samskiptum. • Afburða þjónustulipurð. • Almenn tölvufærni. • Söluhæfileikar. • Stundvísi og samviskusemi. Íslenska útvarpsfélagið óskar eftir duglegu og drífandi fólki með afburða þjónustulund til að vinna að stærsta verkefni félagsins í áraraðir. Tvö ólík störf eru í boði fyrir tugi einstaklinga þar sem unnið er á vöktum á kvöldin og um helgar. Athugið að um tímabundna ráðningu er að ræða. SPENNANDI STÖRF Í BOÐI Í VETUR LANGAR ÞIG TIL AÐ VINNA Í FJÖLBREYTTU OG SKEMMTILEGU HLUTASTARFI Í VETUR? Hár og förðunarmódel 18-25 ára óskast á Sebastian sýningu sem verður haldin í Borgarleikhúsinu sunnudaginn 26.september kl.14.00. Á þessari sýningu sýna erlendir fagaðilar haust og vetrarlínurnar 2004 frá Sebastian í hári og förðun Skráning er í síma 563 63 00 (Anna eða Rósa) fyrir mánudaginn 23. september. Vigtarmenn. Námskeið til löggildingar vigtarmanna verður haldið í Sjómannaskólanum í Reykjavík dagana 4., 5., og 6. október. Endurmenntunarnámskeið 7. október. Allar nánari upplýsingar og skráning þátttakenda á Löggildingarstofusími 510-1100 og á heimasíðunni www.ls.is Skráningu lýkur 10 dögum fyrir námskeið. LÖGGILDINGARSTOFA S Lóðir fyrir leiguíbúðir og/eða félagslegt húsnæði í Norðlingaholti Reykjavíkurborg auglýsir eftir umsóknum um byggingarrétt á fjórum lóðum í Norðlingaholti. Lóðunum verður úthlutað til þess að á þeim verði reist fjölbýlishús með leiguíbúðum eða félagslegu húsnæði. Um er að ræða þessar lóðir: • Bjallavað 7 – 11 (3 x 6 íbúða hús) • Ferjuvað 7 – 11 (3 x 6 íbúða hús) • Hólmvað 10 – 22 (17 – 20 íbúðir) • Hólmvað 24 – 36 (13 – 18 íbúðir). Lóðunum verður úthlutað hverri fyrir sig til jafn margra umsækjenda. Þó kemur til álita að út- hluta lóðunum við Bjallavað og Ferjuvað til sama umsækjanda ef hagkvæmnisástæður þykja mæla með því. Vakin er athygli á því, að litið verður á lögaðila, sem eru í meirihlutaeigu sömu manna eða félaga, sem einn umsækj- anda í þessu sambandi. Umsækjendur skulu tilgreina í umsóknum sínum þær lóðir, sem sótt er um, og leggja jafnframt fram stutta greinargerð og önnur gögn, sem veita greinargóðar upplýsingar um starfsemi umsækjanda á sviði húsbygginga eða húsnæðismála, um fjármögnun fyrir- hugaðra framkvæmda, fyrirhugað rekstrar- fyrirkomulag húsnæðisins, áætlað leiguverð íbúða eða viðmiðunargrundvöll leigu og annað, sem máli kann að skipta. Umsækj- endur skulu vera reiðubúnir til að gefa nánari upplýsingar um fjárhagsstöðu. Athygli er vakin á því, að endurnýja þarf eldri umsóknir. Um lóðirnar gilda sérskilmálar, samþykktir í borgarráði 2. september 2004, auk þeirra skil- mála sem að öðru leyti gilda um lóðir í Norðlingaholti. Skilmálarnir eru á vefslóðinni www.rvk.is/bv undir málaflokknum lóðir, en fást einnig afhentir á skrifstofu borgarverk- fræðings, Skúlatúni 2, 3. hæð. Brýnt er fyrir umsækjendum að kynna sér rækilega alla skil- mála, sem um lóðirnar gilda. Gert er ráð fyrir að lóðirnar verði byggingar- hæfar fyrir árslok 2004, að undanskilinni lóð nr. 7 – 11 við Bjallavað, sem verður afhent í síðasta lagi í ágúst 2005. Umsóknum skal skila til Skrifstofu borgarverk- fræðings, Skúlatúni 2, fyrir kl. 16:00 föstu- daginn 24. september 2004. Nánari upplýsingar eru veittar í síma 563 2310. Borgarverkfræðingurinn í Reykjavík Reykjavíkurborg • Umhverfis- og tæknisvið Skrifstofa borgarverkfræðings ATVINNA TILKYNNINGAR ATVINNA 3

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.