Fréttablaðið - 14.09.2004, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 14.09.2004, Blaðsíða 4
KÖNNUN Fréttablaðið er sá fjölmiðill sem flestir landsmenn nota, það er mest lesna dagblað landsins og nýtur yfirburða í öllum aldursflokkum, alla daga vikunnar. Samkvæmt nýrri könnun Gallups lesa 69 prósent landsmanna Frétta- blaðið á hverjum degi. 51 prósent les Morgunblaðið og 17 prósent DV. Er þá miðað við meðallestur en lestur- inn er mismunandi eftir dögum. Lestur Fréttablaðsins og Morgun- blaðsins er sá sami og var í síðustu könnun Gallups, sem gerð var í maí, en færri lesa DV nú en í vor. Mestur mældist lestur Frétta- blaðsins á miðvikudegi, 76 prósent, en minnstur á sunnudegi, 62 prósent. Lestur Morgunblaðsins mældist mestur á föstudegi, 51 prósent, en minnstur á mánudegi, 48 prósent. Lestur DV var 16 prósent fjóra daga vikunnar en 21 prósent á laugardegi. Lestur Fréttablaðsins á höfuð- borgarsvæðinu mældist nú tæp 74 prósent og á landsbyggðinni rúm 62 prósent. Morgunblaðið var lesið af tæpum 59 prósentum íbúa höfuð- borgarsvæðisins og 37 prósentum íbúa landsbyggðarinnar. Lestur DV er svipaður á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni. Samkvæmt þessu hefur Frétta- blaðið fest sig enn í sessi sem vin- sælasti fjölmiðill landsins. Það er sama hvar borið er niður, alls staðar nýtur blaðið yfirburða og sumstaðar mikilla. Þegar öllum helstu fjölmiðlum landsins er stillt upp hlið við hlið og notkun þeirra borin saman er Sjón- varpið í öðru sæti, líkt og í könnun- inni í maí. Morgunblaðið er í þriðja sæti, hefur sætaskipti við Stöð 2 og helgast breytingin af talsvert minna áhorfi á Stöð 2. Rás 2, Bylgjan og Skjár einn koma í næstu sætum og þar á eftir Rás 1 og DV. Lestur Fréttablaðsins er mestur meðal fimmtugs fólks og eldra, 76 prósent. 65 prósent fólks á þeim aldri lesa Morgunblaðið og 19 pró- sent DV. 72 prósent landsmanna á aldrinum 25 til 49 ára lesa Frétta- blaðið, 50 prósent Morgunblaðið og 19 prósent DV. Sé yngsti hópurinn, 12 til 24 ára, skoðaður má sjá að lest- ur Fréttablaðsins er 53 prósent, 33 prósent lesa Morgunblaðið og 11 pró- sent DV. Könnun Gallups var dagbókar- könnun og var gerð dagana 11. til 17. ágúst. Í úrtaki voru 1.200 manns á aldrinum 12 til 80 ára, valdir með til- viljunaraðferð úr þjóðskrá. Eftir að látnir, veikir og fjarverandi höfðu verið dregnir frá var endanlegt úr- tak 1.129 manns. Svarendur voru 664 eða tæp 60 prósent endanlegs úrtaks. 51 % M or gu nb la ði ð 4 14. september 2004 ÞRIÐJUDAGUR Allsherjarþing SÞ: Geir leysir Davíð af STJÓRNMÁL Geir H. Haarde fjármálaráðherra flytur ræðu Davíðs Oddssonar, verðandi utanríkisráðherra, á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í næstu viku. Davíð Oddsson sagði í viðtali við Fréttablaðið að hann og Halldór Ásgrímsson myndu leysa hvorn annan af hér eftir sem hingað til, þrátt fyrir stólaskipti þeirra í ríkisstjórn á morgun. Hins vegar yrði Halldór önnum kafinn við að semja stefnu- ræðu sína og kæmist ekki frá í heila viku. Geir myndi í leiðinni eiga tvíhliða fundi við utanríkisráðherra ým- issa annara ríkja sem hefðu verið undirbúnir fyrir fram, m.a. vegna framboðs Íslands til öryggisráðsins. Fjármálaráðherra sækir jafnframt fund Alþjóða- bankans í sömu ferð. Geir H. Haarde sagði í viðtali við blaðið að ekki bæri að lesa neitt annað út úr þessu en að hann leysti Davíð af hólmi að þessu sinni. „Hann ákveð- ur hvort einhver fari fyrir hann hverju sinni,“ sagði Geir. ■ Fréttablaðið styrkir sig í sessi Sjö af hverjum tíu landsmönnum lesa Fréttablaðið. Það er sá fjölmiðill sem flestir nota. Lestur Fréttablaðsins á landsbyggðinni hefur aukist. Sjónvarpsáhorf: Minna horft á Stöð 2 KÖNNUN Áhorf á Stöð 2 og Sýn var nokkru minna í nýliðnum ágúst en í maí þegar það var síðast kannað. Sjónvarpið, Skjár einn og Popp Tíví halda sínu. 93 prósent landsmanna horfðu eitthvað á Sjónvarpið, 74 prósent horfðu eitthvað á Stöð 2 og tæp 72 prósent á Skjá einn. Uppsafnað áhorf á Popp Tíví mældist 24 pró- sent en tæp 14 á Sýn. Fréttir Sjónvarpsins eru sem fyrr það sjónvarpsefni sem mest er horft á og jókst áhorfið ögn milli kannana. Að sama skapi eru fréttir vinsælasta sjónvarpsefni Stöðvar 2 en áhorfið á þeim bæn- um minnkaði áhorfið um tæp þrjú prósent frá í vor. ■ ■ MIÐ-AUSTURLÖND ■ VIÐSKIPTI Óttastu kennaraverkfall? Spurning dagsins í dag: Tekst FH-ingum að tryggja sér Íslands- meistaratitilinn í fótbolta? Niðurstöður gærdagsins á visir.is 37,05% 62,95% Nei Já KJÖRKASSINN Farðu inn á visir.is og segðu þína skoðun visir.is MEGA EKKI KJÓSA Ísraelska lög- reglan lokaði sex skrifstofum palestínsku yfirkjörstjórnarinnar í Jerúsalem og handtók nokkra starfsmenn. Ísraelar lögðu hald á kjörskrár og sögðu starfsemina brjóta gegn lögum sem banni Palestínumönnum að efna til kosninga í Austur-Jerúsalem. FLÝÐI OG SNERI AFTUR Meintur hryðjuverkamaður flýði úr haldi lögreglu á leið úr dómsal í Barein eftir að dómari framlengdi gæsluvarðhaldsúrskurð yfir hon- um um mánuð. Hann gaf sig fram við lögreglu um klukku- stund síðar eftir að hafa heilsað upp á konu sína og börn. VALDABARÁTTA HAMLAR KENNSLU Nemendur við arabísk- bandaríska háskólann í Jenín þurftu frá að hverfa í gær þegar þeir mættu í skólann. Vígamenn úr Píslarvættum al Aqsa hreyf- ingarinnar höfðu búið um sig í skólanum og neyddu skólayfir- völd til að loka honum. Atvikið er hluti af valdabaráttu hreyfingar- innar við heimastjórn Jassers Arafat. ÞRÍR RÁÐNIR AF DÖGUM Þrír Palestínumenn létu lífið þegar ísraelsk herþyrla skaut flug- skeyti á bíl í borginni Jenín á Vesturbakkanum. Einn þeirra sem létust var Mahmoud Abu Halifa, einn af leiðtogum Píslar- vætta al Aqsa. mar 2001 okt 2001 mar 2002 okt 2002 feb 2003 mar 2003 jún 2003 sep 2003 nóv 2003 des 2003 feb 2004 mar 2004 maí 2004 ágú 2004 35 22 29 15 17 60 50 38 58 68 69 69 56 51 Fréttablaðið Morgunblaðið DV MEÐALLESTUR DAGBLAÐA Á ÍSLANDI Fréttablaðið kom fyrst út í apríl 2001 og hefur styrkt sig sem mest lesna blað landsins. FRÉTTABLAÐIÐ ER SÁ FJÖLMIÐILL SEM FLESTIR NOTA Byggt er á meðallestri blaða, uppsöfnuðu áhorfi sjónvarpsstöðva og hlustun útvarpsstöðva. 69 % 17 % 66 % 44 % 38 % 35 % 33 % 29 % Fr ét ta bl að ið Sj ón va rp ið St öð 2 Rá s 2 B yl gj an Sk já r ei nn Rá s 1 D V VINSÆLASTA SJÓNVARPSEFNIÐ 1 Fréttir Sjónvarpsins (RÚV) 43,4% 2 Setningarathöfn Ól. (RÚV) 42,6% 3 Fréttir Stöðvar 2 (St. 2) 27,4% 4 Kastljósið (RÚV) 26,1% 5 Ísland-Króatía á Ól. (RÚV) 25,9% 6 Chelsea-Man.Utd. (Skj. 1) 19,6% 7 The Practice (Skj. 1) 16,3% 8 Brúðkaupsþ. Já (Skj. 1) 15,6% 9 Law and Order (Skj. 1) 14,5% 10 Footballers’ Wives (Skj. 1) 10,7% Dagblöð: Mogginn gefinn KÖNNUN Morgunblaðinu var dreift frítt til fjölda fólks, dagana sem könnun Gallups á fjölmiðlanotkun fór fram. Samkvæmt henni fengu 7,5 prósent íbúa höfuðborgar- svæðisins blaðið sent til sín án þess að greiða fyrir það. Til hlið- sjónar má nefna að frídreifing Morgunblaðsins var 3,5 prósent í mars. DV var líka dreift frítt til fólks á könnunartímanum og fengu 3,9 prósent íbúa höfuðborgarsvæðis- ins það án endurgjalds. ■ STJÓRNMÁL Stefán Jón Haf- stein, formaður fram- kvæmdastjórnar Samfylk- ingarinnar, segir sjálfsagt að ræða það í flokknum hvort flýta eigi landsfundi sem á að fara fram næsta haust. Gunnar Svavarsson, formaður sveitarstjórna- ráðs Samfylkingarinnar, hefur sagst verða var við áhuga á því innan flokksins að landsfundinum verði flýtt svo að hugsanlegt upp- gjör Össurar Skarphéðins- sonar og Ingibjargar S. Gísladóttur skarist ekki við undirbúning sveitarstjórna- kosninga. Stefán Jón segist ekki hafa ákveðna skoðun á þessu og hann segir málið ekki hafa verið borið upp við framkvæmdastjórnina. Það sé því ekki á formlegu um- ræðustigi innan flokksins. ■ Landsfundur Samfylkingar: Breytingar ekki ræddar formlega STEFÁN JÓN HAFSTEIN Ekki komið til formlegrar umræðu innan flokksins að flýta landsfundi. Helguvík: Lóðin tvöfölduð IÐNAÐUR Reykjanesbær og banda- ríski stálpípuframleiðandinn IPT hafa samið um stækkun lóðar í Helguvík þar sem til stendur að reisa stálpípuverksmiðju. IPT hefur þá nýtt sér ákvæði í lóðar- samningi þar sem kveðið er á um möguleika félagsins á að stækka lóðina. Við þetta tvöfaldast lóðin að flatarmáli. Frestur IPT til að afla fjár til að reisa verksmiðjuna rennur út í lok nóvember. Áætlað er að bygging stálpípuverk- smiðjuverksmiðjunnar í Helguvík kosti um fimm milljarða króna og gert er ráð fyrir að nær 200 manns muni starfa við hana. ■ GEIR H. HAARDE Fer fyrir Davíð Oddsson til New York í Bandaríkjunum. OG VODAFONE HÆKKAR Hluta- bréf í Og Vodafone hækkuðu um tólf prósent í líflegum viðskipt- um í Kauphöll Íslands í gær. Þetta gerist í kjölfar kaupa Norð- urljósa á 35 prósenta hlut í félag- inu um helgina. Norðurljós keyp- tu hlut sinn á genginu 4,20 en lokagengi bréfa í Og Vodafone í gær var 4. Verðið sem Norðurljós greiddi var um sautján prósent- um yfir markaðsverði á föstudag- inn en þá stóð gengi þeirra í 3,57.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.