Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.09.2004, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 14.09.2004, Qupperneq 26
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma Laufey Ólafsdóttir Skriðustekk 1 verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 16. septem- ber kl. 13:30. Ólafur Rúnar Árnason, Ása Ásgrímsdóttir, Guðmundur Árnason, Guðrún Ólafía Samúelsdóttir, Sigurður Árnason, Guðbjörg Skjald- ardóttir, Þráinn Árnason, Unnur Vilhjálmsdóttir, Már Árnason, Valdís Axfjörð, ömmubörn og fjölskyldur þeirra. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Margrét Guðmunda Guðmundsdóttir Akralandi 3, Reykjavík andaðist á líknardeild Landspítala, Landakoti, laugardaginn 11. september. Útför hennar fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík kl. 13:30 mánudaginn 20. september nk. Sigríður Sigurðardóttir, Erla Jónsdóttir Stensby, Hilmar Jónsson og Helga Guðjónsdóttir, Margrét Jónsdóttir og Sigurjón Einarsson, Guðmundur Jónsson. Barnabörn og barnabarnabörn. Útför okkar ástkæru Ólafar Jónu Björnsdóttur Ásvallagötu 65 Stjúpbörn og systkinabörn. sem andaðist laugardaginn 4. september, fer fram frá Neskirkju föstudaginn 17. september kl. 15.00. „Þetta er leikrit sem ég skrifaði sjálfur og heitir Hinn út- valdi,“ segir Gunn- ar Helgason um nýj- an spennufarsa sem hann frumsýnir í Loftkastalanum á f i m m t u d a g i n n . „Þetta er ákveðin tilraun í þá átt að færa barnaleiksýn- inguna aðeins nær þeirri afþreyingu sem börn eru að horfa á dags dag- lega og það er því meiri hasar og læti en venjan er í barnaleikhúsi.“ „Verkið fjallar um Einar, 11 ára dreng í Vesturbæn- um, sem veit ekki alveg hvað hann er ógeðslega klár og sérstakur en kemst að því þegar hann þarf að bjarga heiminum frá verstu geimveru í geimi. Hann nýtur svo aðstoðar sjálfs Grettis sterka frá Bjargi í Miðfirði í þessari baráttu þó verkið gerist í nú- tímanum. Mamma hans er líka hæfi- leikum búin og er ekki öll þar sem Einar sá hana.“ Gunnar segist að- spurður telja löngu tímabært að illar geimverur skjóti upp kollinum annars staðar en í Banda- ríkjunum en dregur þó enga dul á að hann sæki fyrirmyndir sín- ar stíft í amerískt afþreyingar- efni. „Þetta er mjög meðvitað og það eru margar klisjur teknar fyrir og notaðar.“ Gunnar hefur mest unnið að gerð barnaefnis fyrir sjónvarp en telur mál til komið að flytja meiri spennu inn í barnaleikrit- in. „Okkur tókst til dæmis mjög skemmtilega að hræða börnin í leikgerðinni af Síðasta bænum í dalnum í Hafnar- fjarðarleikhúsinu og nú reyni ég að ganga aðeins lengra. Annars er þetta ekki eins hræðilegt og ég hélt en ég var með prufusýningu um helgina fyrir full- an sal af krökkum sem var ekkert s é r s t a k l e g a brugðið. Ég ætla því að reyna að búa til nýtt atriði í dag og reyna að hræða meira.“ Gunnar fékk hugmyndina að verkinu fyrir tveimur árum og byrjaði að skrifa fyrir ári og verður greinilega að vinna í verkinu al- veg fram að frum- sýningu. Fimm leikarar taka þátt í sýning- unni og leika alls tólf hlutverk en Valur Freyr Ein- arsson leikur Ein- ar. „Það þekkja öll börn röddina hans en hann er dugleg- ur að tala inn á teiknimyndir og þá oftast fyrir unga drengi sem eru í forgrunni þessar amynda. Hann leikur svo krakka með stæl í þessari sýningu.“ Gunnar fékk styrk frá menntamálaráðuneytinu til þess að setja upp Hinn útvalda sem verður, eins og fyrr segir, frum- sýndur í Loftkastalanum á fimmtudaginn. ■ 18 14. september 2004 ÞRIÐJUDAGUR SAM NEILL Þessi eðalleikari er 57 ára í dag. Ein glæsilegasta þokkagyðja hvíta tjaldsins á síðustu öld og síð- ar Mónakóprinsessa, Grace Kelly, lést á þessum degi árið 1982 eftir að hafa lent í bílveltu daginn áður. Grace var 52 ára þegar hún lést og öllum harmdauði, ekki síst eig- inmanninum Rainier fursta sem var gersamlega óhuggandi. Grace byrjaði að leika strax á barnsaldri og hóf síðan nám í American Academy for Dramatic Arts í New York að loknu skyldu- námi. Stóra tækifærið fékk hún 1952 þegar hún lék eiginkonu Cary Cooper í vestranum sígilda High Noon. Árið 1954 lék Grace á móti Bing Crosby í The Country Girl en fyrir það hlutverk fékk hún Ósk- arsverðlaunin. Þegar hún lék í Hitchcock-myndinni To Catch a Thief á frönsku Rivierunni kynnt- ist hún eiginmanninum tilvon- andi, Rainier fursta af Mónakó. Hún kolféll þó ekki strax fyrir töfrum furstans, sem gafst ekki upp og hætti ekki fyrr en þau höfðu verið gefin saman í glæsi- legri athöfn. Grace hætti kvik- myndaleik eftir að hún varð prins- essa en afrek hennar á hvíta tjald- inu munu samt duga til að halda minningu hennar á lofti um ókom- in ár. ■ ÞETTA GERÐIST GRACE MÓNAKÓPRINSESSA LÆTUR LÍFIÐ EFTIR BÍLVELTU 14. september 1982 Bíóprinsessa deyr Barist við verstu geimveru í geimi NÝTT BARNALEIRKIT: GUNNAR HELGASON MAGNAR SPENNUNA „Helvíti er aðeins orð. Raunveruleikinn er miklu, miklu verri.“ – Hann var ekki beint bjartsýnn hann dr. Weir, sem Sam Neill lék í geimhryllinum Event Horizon, enda engin ástæða til. ANDLÁT Guðni Frímann Ingimundarson, Hólm- garði 64, lést 10. september. Jón Aðalsteinn Stefánsson, Miðtúni 4, Seyðisfirði, lést 10. september. JARÐARFARIR 13.30 Haraldur Kr. Jóhannsson, áður til heimilis í Hólmgarði 66, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju. 13.30 Hjördís Oddgeirsdóttir verður jarðsungin frá Fossvogskapellu. 13.30 Dóra Guðbjartsdóttir verður jarð- sungin frá Dómkirkjunni. 13.30 Wilhelm Magnús Alexandersson Olbrich, Háaleitisbraut 54, verður jarðsunginn frá Grensáskirkju. 14.00 Hallgrímur Gísli Færseth, Vallar- braut 6, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju. 15.00 Sveinn Víðir Friðgeirsson skipstjóri verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju. EINAR Einar og mamma hans í kröppum dansi í Hinum útvalda en lætin byrja fyrst fyrir alvöru þegar Grettir sterki dettur bókstaflega inn á sviðið í gegnum tím- ann og ísskápinn og nærri eyðileggur Playstation 3 tölvu Einars. Grettir er auð- vitað eins og hann er en það munar um minni liðsstyrk þegar barist er við verstu geimveru í geimi. GRACE KELLY Þessi glæsilega leikkona sem varð síðar prinsessa Mónakó lést eftir alvarlegt bílslys. SMÁAUGLÝSINGAR ALLA DAGA Smáauglýsingasíminn er 550 5000 auglysingar@frettabladid.is - mest lesna blað landsins AFMÆLI Guðjón Þórðarson knatt- spyrnufrömuður er 49 ára.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.