Fréttablaðið - 14.09.2004, Blaðsíða 38
Fyrsta plata dúettsins Brak kom út
á dögunum og kallast hún Silfur-
koss. Lögin, sem eru tólf talsins, eru
eftir þá félaga Harald Gunnlaugs-
son og Hafþór Ragnarsson. Allir
textar eru á íslensku.
Að sögn Haraldar hafa þeir
verið lengi að þó að sveitin sjálf
hafi aðeins verið til í nokkur ár.
Hafþór var áður í hljómsveitinni
Sonum Raspútins en Haraldur
hefur meira einbeitt sér að sveita-
ballabransanum.
„Þetta er draumur sem er að
verða að veruleika hjá okkur,“ segir
Haraldur. „Við höfum spilað tónlist í
10 til 15 ár og það var kominn tími á
þetta.“ Haraldur bætir við að
vinnsla plötunnar hafi verið
strembin, enda tók hún tvö ár.
„Maður vill vanda sig við fyrstu
plötuna. Við gerðum allt sjálfir en
fengum þó hljóðfæraleikara til að
aðstoða okkur,“ segir hann. Á meðal
þeirra eru bassaleikari Jagúar, Ingi
S. Skúlason, og sveiflukóngurinn
sjálfur Geirmundur Valtýsson sem
grípur í nikkuna í einu lagi. „Það var
algjör snilld að vinna með Geir-
mundi. Hann er frábær í samstarfi
og frábær harmonikkuleikari.“
Tónlist Braks hefur verið lýst
sem vönduðu popprokki með bresk-
um áhrifum. Nú þegar hefur titillag
plötunnar, Silfurkoss, ómað nokkuð
títt á Rás tvö og svo er á næstunni
væntanlegt myndband við lagið Álf-
ar. Útgáfutónleikar eru fyrirhugað-
ir síðar í vetur en þeim sem vilja
kynnast sveitinni nánar er bent á
heimasíðuna, brak.tv. ■
Rödd yðar á plötu
Draumur að veruleika
30 14. september 2004 ÞRIÐJUDAGUR
Kvæðamannafélagið Iðunn fagn-
ar 75 ára afmæli á morgun, mið-
vikudaginn 15. september. Af því
tilefni verður efnt til hátíðar í
Borgarleikhúsinu annað kvöld
klukkan 20.00. Hátíðin er um leið
útgáfutónleikar á silfurplötum
sem teknar voru upp í Banka-
stræti 7 á árunum 1935-36.
„Við höfum lengi verið að
vinna að útgáfu á þessum silfur-
plötum sem Atli Ólafsson, sonur
Ólafs Friðrikssonar í Hljóðfæra-
húsinu, sá um upptökur á,“ segir
Steindór Andersen, forsvarsmað-
ur Iðunnar. „Á þessum tíma gat
hver sem er hljóðritað hvað sem
er. Um það birtust meðal annars
auglýsingar í Alþýðublaðinu með
slagorðum eins og „Rödd yðar á
plötu“ og „Allir á plötu“. Meðal
annars kom fram í einhverjum af
þessum auglýsingum að nú gæti
fólk hljóðritað hljóðin í ungbarn-
inu sínu og spilað seinna þegar
það færi að skoða myndir af barn-
inu. Þarna var strax komin hug-
myndin að margmiðlun. Menn
máttu líka sjá þetta sem sendi-
bréf, vegna þess að þetta var
ódýrt. Platan kostaði fjórar krón-
ur en miði á tónleika kostaði kr.
3,50 í stúku í Gamla bíói.
Núna sá Kvæðamannafélagið
Iðunn sér leik á borði að gefa út
það sem við höfðum safnað af
þessum hljóðritunum. Við létum
vinna fimmtíu plötur inn á fjóra
geisladiska. Á hverri plötu eru
fjögur lög, þannig að alls eru
þetta 200 lög sem flutt eru af
þrettán kvæðamönnum. Flestir
þeirra eru úr Húnaþingi. Það
þýðir þó ekki að það hafi ekki
verið kvæðamenn annars staðar
á landinu, heldur var þetta hóp-
urinn sem var starfandi í Kvæða-
mannafélaginu Iðunni á sínum
tíma og tengdist sterkustu bönd-
unum.“
Með geisladiskunum fjórum
fylgir bók með textum, nótna-
skrifum og öllum nauðsynlegum
upplýsingum um efni þeirra. Út-
gefandi er Smekkleysa en Gunn-
steinn Ólafsson er ritstjóri verks-
ins.
Efnisskrá útgáfu- og afmælis-
hátíðarinnar í Borgarleikhúsinu
verður fjölbreytt. Kvæðamenn
kveða ýmis dæmi af þeim stemm-
um sem er að finna á diskunum,
kórinn Sunnan heiða flytur út-
setningu Gunnsteins Ólafssonar á
rímnalögum, Chris Foster og Bára
Grímsdóttir flytja þjóðlög og
hljómsveitin Sigur Rós spilar
rímnalög með Steindóri. Hilmar
Örn Hilmarsson flytur Breiðfirð-
ingavísur með Kristínu Heiðu
Kristinsdóttur, auk þess sem hag-
yrðingar mæta á svæðið. Kynnir
kvöldsins verður Eva María Jóns-
dóttir. En verður dagskráin ekki
tekin upp í tilefni af þessum
merku tímamótum?
„Jú,“ segir Steindór. „Ástr-
alska sjónvarpið ætlar að taka
hátíðina upp.“ ■
ÚTGÁFUHÁTÍÐ
KVÆÐAMANNAFÉLAGIÐ IÐUNN
■ Á 4. áratugnum gat hver sem er hljóð-
ritað hvað sem er. Um það birtust meðal
annars auglýsingar í Alþýðublaðinu.
TÓNLIST
SILFURKROSS
■ Fyrsta plata Braks komin út.
í dag
Endaþarms-
boxarinn játaði
í jakkafötum
Sparisjóðsstjóri
hættir og fær
162 milljónir
Smámunir segir
stjórnarformaður
Sjóvá sakar
Ástþór um svindl
Fáðu flott
munnstykki
En þeir sem hafa krafist þess að viðgöngum í Evrópusambandið hafa
talað um að við þurfum að opna
sendiráð í öllum
löndum Evrópu-
sambandsins. Eitt-
hvað myndi nú
slíkt kosta ofan á
annað,“ sagði
0Davíð Oddsson,
verðandi utanríkis-
ráðherra, í viðtali
við Morgunblaðið
á laugardaginn, aðspurður hvort um-
svif utanríkisráðuneytisins væru
óþarflega mikil. Það kom sumum á
óvart að Davíð skyldi nota þetta
tækifæri til að hnýta í Halldór Ás-
grímsson, verðandi forsætisráð-
herra, en hugmyndin um sendiráð í
öllum löndum Evrópusambandsins
kom fyrst fram í skýrslu utanríkis-
ráðuneytisins undir forsæti Halldórs.
Að leggja línurnar fyrir veturinn ermál málanna þessa dagana og
bókaforlögin eru þar ekkert undan-
skilin. Þó svo að jólabækurnar séu
ekki komnar út og
komi jafnvel ekki í
búðir í nokkrar vik-
ur enn er hægt að
fara að spá fyrir um
metsölubækurnar
þessi jólin. Það
þarf ekki mikla
spádómsgáfu til að
segja að bók Arn-
aldar Indriðasonar verði ofarlega á
lista. Bókum hans er það vel tekið að
hann gæti næstum endurskrifað
hluta símaskrárinnar þannig að úr
yrði metsölubók. Aðrir höfundar sem
taldir eru líklegir til stórra verka eru
Ólafur Jóhann og Einar Már, en sá
síðarnefndi verður fimmtugur á laug-
ardaginn kemur.
Lárétt: 2 sérstakur, 6 byrði, 8 fiskur, 9
fugl, 11 yfirlið, 12 mýrarsunda, 14 kind,
16 peningar, 17 í uppnámi, 18 snæða, 20
tveir eins, 21 dreifa.
Lóðrétt: 1 land, 3 viðurnefni, 4 verða
eldri, 5 rá, 7 hárrétt, 10 formaður, 13 sjó,
15 sigaði, 16 smetti, 19 rykkorn.
Lausn.
■ VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á bls. 6
1
3
2
Tæpir 5.000 ferkílómetrar
Hreinn Óskarsson
Klór, iðnaðarhreinsir og sápur
BRAK Hljómsveitin Brak hefur gefið út sína fyrstu plötu og er afrakstrinum lýst sem
vönduðu popp/rokki með breskum áhrifum.
STEINDÓR ANDERSEN 175 ára afmæli Kvæðamannafélagsins Iðunnar verður haldið í
Borgarleikhúsinu á miðvikudag.
Lárétt: 2spes,6ok,8áll,9lóm,11dá,
12draga,14rolla,16fé,17æst,18éta,
20tt,21strá.
Lóðrétt: 1fold,3pá,4eldast,5slá,
7kórrétt,10mao,13glæ,15atti,16fés,
19ar.
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Einu sinni var draumarullan mín að
leika Berger í Hárinu. Það var þegar ég
var sextán ára og sá Hilmi Snæ leika
Berger. Ég man hvað mér fannst þetta
magnað hlutverk og mögnuð sýning,“
segir Björn Thors leikari, sem um
þessar mundir fer einmitt með hlut-
verk Bergers í Hárinu á sviði Austur-
bæjar.
„Tækifærið kom í sumar. En í sjálfu sér
á ég mér samt ekki neitt draumahlut-
verk. Ég dett einhvern veginn inn í
verkefnin og er heltekinn af því verk-
efni sem ég er að vinna að hverju
sinni.“
Þessa stundina er það samt Berger
sem greinilega á hug Björns allan,
jafnvel þótt hann hafi þurft að glíma
við nokkur mjög ólík hlutverk undan-
farið.
„Draumarullur eiga það reyndar sam-
eiginlegt að vera ekki bara hlutverkið
sem slíkt heldur sýningin í heild sinni.
Það er upplifunin á heildinni sem
skiptir máli, og Hárið er í eðli sínu of-
boðslega áhrifamikið verk að öllu
leyti. Tónlistin er frábær og hefur
þannig áhrif á mann að það verður
auðvelt að hrífast með. Berger er per-
sóna sem stendur fyrir frelsi og kær-
leika og baráttuvilja fyrir mannsand-
anum. Hann er líka píslarvottur í sög-
unni og verður fyrir vikið ofboðslega
heillandi karakter.“
| SÉRFRÆÐINGURINN |
Uppáhaldshlutverkið: Berger í Hárinu
ÚR HÁRINU
Björn Thors dreymdi um það sextán ára
að fá að leika Berger í Hárinu.