Fréttablaðið - 14.09.2004, Side 17
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 8
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 88 stk.
Keypt & selt 23 stk.
Þjónusta 35 stk.
Heilsa 9 stk.
Skólar & námskeið 2 stk.
Heimilið 12 stk.
Tómstundir & ferðir 5 stk.
Húsnæði 15 stk.
Atvinna 26 stk.
Tilkynningar 2 stk.
Ávaxtabíllinn í fyrirtæki
BLS. 3
Góðan dag!
Í dag er þriðjudagurinn
14. september,
258. dagur ársins 2004.
Reykjavík 6.48 13.23 19.56
Akureyri 6.30 13.08 19.43
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
„Það er nú ákveðin líkamsrækt að spila á
orgel, bæði fingraleikfimi og þó einkum
fóta því maður reynir að láta rjúka úr
pedalanum,“ segir Steingrímur Þórhalls-
son, organisti í Neskirkju, hlæjandi þegar
hann er inntur eftir því hvernig hann haldi
sér í formi dags daglega. „Svo brenna menn
líka vel þegar menn eru að stjórna söng,“
bætir hann við og telur sig greinilega vera
í góðum málum.
Þegar nánar er grennslast kemur í ljós
að Steingrímur gerir meira en sprikla í
kirkjunni. Hann fer líka reglulega út að
hlaupa og reynir að fara af og til í sund. En
fótboltinn er í mestu uppáhaldi. „Sundið er
voða gott fyrir líkamann, það hitar mann
vel upp og liðkar. Það er bara svo leiðinlegt
að synda og eiginlega má segja það sama
um hlaupið. Mér finnst hvorugt skemmti-
legt. Það er langfjörugast að spila fótbolta
og ég geri það stundum en gallinn við þá
íþrótt er sá að maður á það til að missa fæt-
urna í einhvern tíma og það er slæmt fyrir
mann í mínu starfi.“ ■
Fólk sem tekur
lífinu létt
sýnir færri öldrun-
areinkenni en
svartsýnismenn-
irnir, samkvæmt
nýrri könnun vísindamanna í
Texas. Niðurstöðurnar, sem voru
birtar í tímaritinu Psychology
and Aging, gefa ótvírætt til
kynna að jákvætt hugarfar tefji
fyrir öldrun. 1.558 eldri borgarar
tóku þátt í rannsókninni, sem
tók sjö ár. Fylgst var með þyngd
þátttakenda, úthaldi, göngu-
hraða og handstyrk og niður-
stöðurnar voru þær að þeir sem
horfðu jákvæðum augum á lífið
og tilveruna hrörnuðu mun
hægar.
Nýtt lyf gegn þvagleka
hefur nú verið leyft í Bretlandi,
hið fyrsta sinnar tegundar. Lyfið,
sem heitir Yentreve, styrkir vöð-
vana sem stjórna þvagi frá
blöðrunni, en um það bil fjórar
milljónir kvenna í Bretlandi eru
taldar eiga við þvagleka að
stríða. Orsakirnar geta meðal
annars verið barnsburður, offita
og harðlífi. Fjórðungur kvenn-
anna er undir 30 ára aldri. Lyfið
hentar konum sem hafa væg
einkenni af þvagleka og missa
helst þvag við áreynslu, hnerra
og hósta. Linda Cardozo, pró-
fessor við King’s College-sjúkra-
húsið í London, segir lyfið geta
gjörbreytt lífi fjölda kvenna. Hún
segir jafnframt að þó umræða
um þvagleka hafi verið opnari á
undanförnum árum séu konur
enn feimnar við að ræða vanda-
málið. „Lyfið mun gjörbreyta og
bæta líf þessara kvenna,“ segir
Cardozo.
“Það er ekk-
ert sem heitir
öruggt magn
af alkólhóli
fyrir þungaðar konur. Jafnvel
mjög lítið magn áfengis getur
skaðað ófætt barn.“ Þetta kom
fram á ráðstefnu um meðgöngu
og alkóhól sem haldin var í
Bretlandi í vikunni. Dr. Raja
Mukherjee, prófessor við St. Ge-
orge’s-læknaskólann, segir að
mun fleiri börn en talið hefur
verið, allt að eitt af hverjum
hundrað, skaðist vega áfengis-
neyslu móður. „Vandamál barna
síðar á lífsleiðinni, eins og
hegðunarvandamál ýmiss konar,
má líka oftar en talið hefur ver-
ið rekja til áfengisneyslu móður
á meðgöngu,“ segir Mukherjee.
heilsa@frettabladid.is
Steingrímur fer reglulega út að hlaupa heilsunnar vegna
þó að honum þyki það lítið skemmtilegt.
Smáauglýsingar
á 995 kr.
visir.is
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Liggur í loftinu
Í HEILSU
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TÍSKA NEYTENDUR o.fl.
Þú getur pantað
smáauglýsingar á
www.visir.is
KRÍLIN
Pabbi er svo
duglegur að
brenna brauð.
Steingrímur Þórhallsson:
Ákveðin líkamsrækt
að spila á orgel
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Niður með sykurstuðul-
inn er heiti nýrrar bókar
frá PP-forlagi. Í henni er
gerð grein
fyrir áhrif-
um mismun-
andi fæðu-
tegunda á
blóðsykur-
inn og boðið
upp á fjórar
uppskriftir
að mataræði
sem eiga að
gera það auðveldara að
léttast og lifa hollu lífi án
þess að grípa til mein-
læta.
Mikið hefur verið
talað um kolvetni í
megrunarfæði. Eitt sinn
var lausnin að borða sem
mest af kolvetnaríku
fæði en hin síðari ár
hefur kolvetnalaust fæði
verið mikið í tísku.
Eftirlit með sykurstuðli
er hins vegar nýjasta
aðferðin í megrunarfæði.
Sú fæða sem við erum
vön að borða hefur mis-
munandi hröð áhrif á syk-
urinn í blóðinu og veldur
of örum og óþægilegum
sveiflum í blóðsykrinum.
Sykurstuðullinn (sem á
ensku kallast glycemic
i n d e x ,
skammstaf-
að GI) er
notaður til
að fylgjast
með því
h v e r n i g
áhrif fæða
hefur á syk-
urmagn í
blóði og því
minni áhrif eða sveiflur
sem skapast, því hollari
er fæðan.
Sérstaka athygli vekur
að í bókinni er boðið upp á
sérstaka megrunaráætl-
un fyrir grænmetisætur,
sem oftast verða útundan
í kúrum sem miða að því
að minnka kolvetnin.
Í bókinni eru ýmis
sjálfspróf og næringar-
efnatöflur en jafnframt
fróðleikur og ráðlegging-
ar til að gera megrunina
skemmtilegri. Bókin er
aðgengileg og prýdd fal-
legum myndum og stór-
skemmtilegum og hollum
uppskriftum.
Nýr hollustufróðleikur frá PP-Forlagi:
Niður með sykurstuðulinn!