Fréttablaðið - 28.09.2004, Blaðsíða 39
■ VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á bls. 6
1
3
2
Rubens Barrichello.
Frakklandi.
Dan Rather.
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
31ÞRIÐJUDAGUR 15. júlí 2004
Lárétt: 2 truflun, 6 tónn, 8 fæða, 9 eins
um k, 11 rykkorn, 12 liðinn, 14 bragð, 16
dýramál, 17 ummerki, 18 káma, 20 ein-
kennisstafir, 21 sáldra.
Lóðrétt: 1 innafbrot, 3 félagsskapur, 4 fé-
litlar, 5 krá, 7 .. augu, 10 líkamshluta, 13
trjóna, 15 smyrsl, 16 blaður, 19 rykkorn.
Lausn:
Lárétt: 2babb,6as,8ala,9lkl,11ar,
12dáinn,14smekk,16me,17far, 18
ata,20re,21strá.
Lóðrétt: 1fald,3aa,4blankar, 5bar, 7
skásett,10lim,13nef, 15krem,16mas,
19ar.
Laserprentarar...
Laser-
prenta
rar
...á góðu verði
Skeifan
Smáralind
Akureyri
Egilsstaði
r
Nánari
upplýsingar
í síma
550 4100
Q1334A
HP LaserJet 1300
• 19 bls. á mínútu, fyrsta síða eftir 8 sek
• 1200 x 1200 dpi upplausn
• Stilling fyrir 50% prentduftsparnað.
• 10.000 bls. mánaðarnotkun
• Pappírsbakki: 500 bls. 30 umslög
• Útbakki: 125 bls. 30 umslög
Verð 39.900,-
PE16VI
Xerox WorkCentre PE16 MFP
• 16 bls á mínútu • 16 MB minni • 600 x 600 dpi upplausn
• 10.000 bls. mánaðarnotkun • Fax hraði: 33.6 Kbps
• Pappírbakkar: 250 inn, 150 út.
Verð 59.900,-
Prentar
Litaskannar
Ljósritar
Faxar
Q2460A
HP LaserJet 1010
• 12 bls. á mínútu, fyrsta síða út eftir 10 sek.
• 600 dpi upplausn • 5000 bls. mánaðarnotkun
• Pappírsbakki: 150 bls.
Verð 19.900,-
Aukablaðabakki fylgir með
að verðmæti 24.900,-
Miklar vangaveltureru nú uppi um
hvort Guðjón Þórð-
arson, fyrrverandi
landsliðsþjálfari í
knattspyrnu, taki við
íslensku liði fyrir
næsta tímabil. Guð-
jón hefur ítrekað verið orðaður við
Vesturbæjarstórveldið og segir sagan
að hann sé þegar búinn að semja við
KR fari svo að hann komist ekki að
hjá erlendu stórliði.
Guðjón á einnig aðhafa átt í viðræðum
við Grindavík og í út-
varpsþættinum Mín
skoðun, með Valtý
Birni á Skonrokki í
gær, staðfesti Jónas
Þórhallsson, fram-
kvæmdastjóri knatt-
spyrnudeildar Grinda-
víkur, það. Nú bíða
menn spenntir eftir því að málin
skýrist því þótt Guðjón sé umdeildur
efast enginn um hæfileika hans sem
knattspyrnustjóra. Ekki veitir heldur
af því bæði stuðningsmenn KR og
Grindavíkur voru ósáttir við árangur
liðanna á nýafstöðnu tímabili.
Nýr íslenskur gamanþáttur, Hafn-arfjarðarlöggan, var frumsýndur
á Stöð 2 á föstudaginn var. Þátturinn
fór misvel í fólk þótt hann hafi skart-
að eðalhúmoristum á borð við Stein
Ármann Magnússon og Björk
Jakobsdóttur í aðalhlutverkum. Hall-
ur Helgason, framleiðandi og leik-
stjóri þáttarins, hafði lýst því yfir að
um prufuþátt væri að ræða og ef
hann legðist vel í áhorfendur yrði
kannski framhald á. Á málefn-
um.com er hins vegar farið misfögr-
um orðum um þáttinn og miðað við
þær viðtökur sem hann fær þar hlýt-
ur að teljast alls óvíst að fleiri slíkir
þættir verði framleiddir.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Fyrsta plata stúlknahljómsveit-
arinnar Nylon kemur út 28.
október og kallast hún 100%
Nylon. Að sögn Ölmu Guð-
mundsdóttur, meðlims sveitar-
innar, er verið að leggja loka-
hönd á plötuna um þessar mund-
ir. Upptökur hófust í byrjun apr-
íl og hafa staðið yfir í allt sumar.
„Þetta hefur gengið rosalega
vel. Það er mikil vinna sem ligg-
ur þarna að baki og það þarf að
eyða miklum tíma í þetta. En
þetta hefur gengið vel eins og
við vonuðum,“ segir Alma, sem
hefur nokkra reynslu af því að
vinna í hljóðveri. „Ég var í söng-
leikjum í skólanum og við tók-
um upp disk fyrir það, þannig að
þetta er ekki alveg í fyrsta
skiptið. En þetta er í fyrsta sinn
sem ég er í svona rosalega
miklu í einu; að gera heilan disk,
setja inn raddir og allt það.“
Söngleikirnir voru Hárið og
Litla hryllingsbúðin en þeir
voru settir upp í Fjölbrautaskól-
anum í Garðabæ.
Alma játar að það hafi verið
gaman að vinna plötuna. „Þetta
er búið að vera algjört ævintýri,
mikil vinna en algjörlega þess
virði og maður hlakkar til að sjá
útkomuna,“ segir hún.
Ellefu lög eru á plötunni, þar
af níu frumsamin, og eru þau
eftir Friðrik Karlsson og Einar
Bárðarson. Sjálf samdi Alma
texta við tvö laganna, annars
vegar Segðu hvað þú vilt og hins
vegar Get ekki meira. Annar
textinn er ástartexti en hinn er
meira á léttu nótunum og fjallar
um þær raunir sem stelpur
lenda í. Alma segist hafa fiktað
við textagerð lengi og haft gam-
an af, en hún vonast til að semja
enn fleiri texta í framtíðinni
ásamt fleiri lögum. ■
Stúlknasveitin Nylon leggur lokahönd á sína fyrstu plötu:
Búið að vera algjört ævintýri
NYLON Alma Guðmundsdóttir syngur
á tónleikum með Nylon.