Fréttablaðið - 04.10.2004, Page 16
Miðstöð símenntunar í Hafnar-
friði hefur stofnað sviðslistadeild í
leiklist, sönglist og dansi. Þetta er
nýtt nám og eykur möguleika þeir-
ra sem vilja mennta sig í sviðslist-
um til muna en eins og flestir vita
komast til dæmis alltaf mun færri
að en vilja í leiklistardeild LHÍ.
„Það eru þrjár listgreinar sem
eiga allt sitt undir því að þær séu
hafðar til sýnis og fari fram á
sviði,“ segir Margrét Ákadóttir,
deildarstjóri Sviðslistadeildar.
„Þetta eru danslist, leiklist og
sönglist og við munum flétta þess-
ar greinar saman í náminu enda
eru þær farnar að renna mikið
saman á leiksviðinu eins og sést til
dæmis vel í söngleiknum Chicago.
Það hefur oft verið talað um að
söngvara skorti leikræna tján-
ingu, dansarar séu ekki nógu
þjálfaðir í söng og leikarar séu
ekki nógu góðir dansarar.“ Mar-
grét segir að nýja deildin muni að
vissu leyti bregðast við þessu þar
sem sviðslistunum þremur verði
öllum sinnt.
„Hugmyndin er að fólk fái
þarna fornámsmenntun til þess að
geta svo tekið skrefið áfram í
framhaldsnám til þess að stunda
listirnar síðan í atvinnuskyni. Við
erum ekki með inntökupróf í for-
námið en getum þó sennilega ekki
tekið við fleiri en 20 nemendum
fyrst um sinn. Markmiðið er að
koma náminu á háskólastig og við
erum að reyna að fá það metið til
15 eininga til BA-prófs. Við hljót-
um svo að íhuga það í framtíðinni
hvort við getum ekki búið til fullt
BA-nám.“
Til að byrja með verður kennt
þrisvar í viku, tvö kvöld og síðan á
laugardögum. Kennt verður í 10
vikur og kennslustundirnar verða
120 auk æfingavinnu og verkleg-
um þáttum sem hver kennari
skipuleggur fyrir sína nemendur.
„Við förum hægt af stað en vekj-
um athygli á að hagnýtur þáttur
þessa náms getur nýst öðrum en
þeim sem hyggja á listsköpun í at-
vinnuskyni og þannig gæti þetta
orðið valmöguleiki fyrir þá sem
stunda BA-nám í öðrum grein-
um,“ segir Margrét og nefnir sem
dæmi að raddbeiting og þekking
til þess að nýta sér blæbrigði túlk-
unar í leikrænni tjáningu gagnist
víða.“
Það má þó ætla að sviðslista-
námið muni höfða sterkast til
þeirra sem ekki fá inn í leiklistar-
deild LHÍ en eins og Margrét
bendir á þá hljóti að vera grund-
völlur fyrir fleiri úrræði af þess-
um toga í 300.000 manna samfé-
lagi.“ ■
16 4. október 2004 MÁNUDAGUR
CHARLTON HESTON
Leikarinn sem hefur túlkað ekki minni
menn en Móses, Ben-Húr og Jóhannes
skírara er 80 ára í dag.
Sviðið örvar skapandi hugsun
MIÐSTÖÐ SÍMENNTUNAR: BÝÐUR UPP Á NÝJAR LEIÐIR Í SVIÐSLISTANÁM Í HAFNARFIRÐI
„Ég hef aðeins fimm orð að segja ykkur: Úr
köldum, dauðum höndum mínum.“
-Byssuglatt afmælisbarn dagsins skoraði ekki mörg prik þegar hann
lét þessi orð falla um hvað þyrfti að gera til þess að fá hann til að
sleppa takinu á riflinum sínum.
timamot@frettabladid.is
4. október 1984ÞETTA GERÐIST
VERKFALL BSRB HÓFST OG HAFÐI LAMANDI ÁHRIF Á ÞJÓÐLÍFIÐ
MERKISATBURÐIR
1931 Myndasagan um lögreglu-
manninn Dick Tracy hefur
göngu sína í Detroit Daily
Mirror.
1940 Adolf Hitler og Benito Mus-
solini funda í Ölpunum þar
sem Hitler fer fram á
stuðning Ítala í baráttunni
við Breta.
1957 Sovétmenn koma Sputnik I
á sporbaug umhverfis
jörðu en Sputnik var fyrsta
manngerða farið sem fór
út í geiminn.
1990 Þýska þingið kemur saman
í fyrsta sinn eftir samein-
ingu Austur- og Vestur-
Þýskalands.
1994 Nelson Mandela, forseti
Suður-Afríku, heimsækir
Bill Clinton í Hvíta húsið.
2001 Shannen Doherty, sem er
þekktust sem Brenda í
Beverly Hills 90210, er
dæmd til samfélagsþjón-
ustu fyrir ölvunarakstur.
BSRB-verkfallið hefst
AFMÆLI
Jóhanna Sigurðar-
dóttir, alþingismað-
ur, er 62 ára.
Halldór Björn Run-
ólfsson, listfræðing-
ur, er 54 ára.
Ólöf Rún Skúladótt-
ir er 39 ára.
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir, al-
þingismaður, er 68
ára.
Kjartan Gunnars-
son, framkvæmda-
stjóri Sjálfstæðis-
flokksins, er 53 ára.
ANDLÁT
Ólafía S. Sigurbjörnsdóttir Waara,
Portland, Michigan, lést í Bandaríkjunum
24. september.
Ellen Klausen, Túngötu 3, Eskifirði, lést
30. september.
JARÐARFARIR
13.30 Kristín Stefánsdóttir, Kvisti, Reyk-
holtsdal, verður jarðsungin frá Ás-
kirkju.
13.30 Gaukur Jörundsson, Kaldaðar-
nesi, verður jarðsunginn frá Hall-
grímskirkju.
14.00 Þóra Guðmundsdóttir, dvalar-
heimilinu Höfða, Akranesi, verður
jarðsungin frá Akraneskirkju.
Salome er blaðberi vikunnar hjá Frétta-
blaðinu. Hún hefur borið blaðið út í tæp 2
ár og finnst skemmtilegast að vera með
vinum sínum.
Hvað heitir blaðberinn?
Salome Ýr Svavarsdóttir.
Hvað ertu búin að bera
út lengi?
Ég er búin að bera út í tæp 2 ár.
Hvað ertu með í vasan-
um?
Síma og kort.
Hvað finnst þér skemmti-
legast að gera?
Vera með vinum.
Hvert er þitt mottó?
Að lifa lífinu ;)
[ BLAÐBERI VIKUNNAR ]
SALOME ÝR SVAVARSDÓTTIR
Það fjölgaði í Fjölskyldu- og hús-
dýragarðinum í Laugardalnum á
fimmtudaginn þegar 38 kílóa,
rauðsokkóttur nautkálfur leit
dagsins ljós um klukkan 15. Móðir
kálfsins er kýrin Búkolla, rauð-
skjöldótt og fædd árið 2001 að
bænum Selalæk á Rangárvöllum.
Faðirinn er nautið Hvítingur,
fæddur árið 1996.
Kálfurinn fær eingöngu mjólk
úr móður sinni fyrstu sólarhring-
ana og kallast þessi fyrsta mjólk
sem kemur í júgrið eftir burð,
broddur. Broddinn verður kálfur-
inn að fá helst innan tveggja tíma
eftir að hann kemur í heiminn,
annars á hann á hættu að veikjast
illa. Allt hefur þó gengið eins og í
sögu fyrstu sólarhringana í lífi
kálfsins sem hefur ekki enn verið
gefið nafn. Starfsfólk Húsdýra-
garðsins biður hugmyndaríka
dýravini að beina til þess góðum
hugmyndum af nafni á kálfinn
með því að senda póst á unn-
ur@husdyragardur.is eða í
gestabók á heimasíðu garðsins,
www.mu.is.
Nautið Guttormur og kýrin
Slaufa fylgdust vel með burðinum
en Búkolla bar inni í fjósi og
þurfti smá aðstoð undir lokin.
Gestum garðsins gefst kostur á að
kíkja á kálfinn en garðurinn er
opinn alla daga frá 10-17. ■
Á þessum degi árið 1984 lögðu launþegar
innan Bandalags starfsmanna ríkis og bæja
niður störf en verkfall þeirra hafði víðtæk
áhrif á daglegt líf landsmanna en þannig
lagðist skólahald niður, útsendingar Ríkis-
sjónvarpsins, sem þá var eini ljósvakamiðill-
inn, stöðvuðust og strætisvagnar hættu að
ganga. Verkfallið dróst á langinn og samn-
ingar náðust ekki fyrr en 30. október en þá
var farið að bera á vöruskorti í verslunum og
þannig þvældust reykingamenn um á milli
verslana, eða sendu börnin sín sem þá
máttu kaupa tóbak, til þess að hamstra sí-
garettur. Fyrst eltust menn við sína tegund
en eftir því sem örvæntingin jókst snerist
söfnunin bara um það að fá eitthvað að
reykja. Þá sættu hvatamenn að afnámi ein-
okunar Ríkisútvarpsins lagi og stofnuðu frjál-
sa útvarpsstöð sem var að lokum lokað með
lögregluvaldi þannig að það má segja að
fyrstu skrefin til aukins frelsis á íslenskum
fjölmiðlamarkaði hafi verið stigin í BSRB-
verkfallinu.
VERKFALL Kennarar eru í verkfalli þessa dagana og
óttast er að það kunni að dragast á langinn. Fyrir 20
árum hófst verkfall BSRB og þá lá skólahald niðri í
tæpan mánuð.
Fjölgun í Húsdýragarðinum
NÝJASTI MEÐLIMURINN í stóru Hús-
dýragarðsfjölskyldunni hefur enn ekki
fengið nafn og að sögn starfsfólks Hús-
dýragarðsins eru allar tillögur vel þegnar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
AÐSTANDENDUR SVIÐSLISTADEILDARINNAR Skráning stendur yfir þessa dagana í síma 585 5860. Kennarar á fyrstu önninni eru
allt valinkunnir listamenn hver á sínu sviði en þeirra á meðal eru Aino Freyja Jónsdóttir leikari, Edda Björgvinsdóttir leikari, Ingibjörg
Björnsdóttir listdanskennari, dr. Jón Viðar Jónsson leikhúsfræðingur, Matthildur Matthíasdóttir söngvari og söngkennari, Þórhildur Þorleifs-
dóttir leikstjóri og Margrét Ákadóttir leikari og leiklistarmeðferðarfræðingur.