Fréttablaðið - 04.10.2004, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 04.10.2004, Blaðsíða 50
18 4. október 2004 MÁNUDAGUR Við hrósum... ...Heimi Guðjónssyni, hinum aldna en þó samt síunga miðjumanni FH-inga. Hann var valinn besti leikmaður Landsbankadeildar karla af andstæðingum sínum á laugar- daginn og sannaði að knattspyrnuferillinn er ekki búinn þótt menn séu orðnir 35 ára gamlir. Heimir átti frábært sumar og það verður erfitt fyrir hann að toppa það ef hann ákveður að halda áfram að spila. „Ég hef ekki hugmynd um hvað verður um mig. Ég trúi ekki öðru en að þeir vilji hafa mig áfram.“ Markahrókurinn Þórarinn Kristjánsson er með lausan samning hjá Keflavík og veit ekki hvort hann verður áfram.sport@frettabladid.is HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 1 2 3 4 5 6 7 Mánudagur OKTÓBER ■ ■ SJÓNVARP  15.45 Helgarsportið á RÚV.  16.10 Ensku mörkin á RÚV.  18.00 Þrumuskot - ensku mörkin á Skjá einum.  18.20 Ameríski fótboltinn á Sýn. Útsending frá leik Miami Dolphins og New York Jets í NFL-deildinni.  20.30 Boltinn með Guðna Bergs á Sýn.  22.00 Olíssport á Sýn.  22.30 Enski boltinn á Skjá einum. Útsending frá leik Crystal Palace og Fulham í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.  23.15 Ensku mörkin á RÚV. Er Lárus Orri lykillinn að varnarleik Íslands? Mikill munur er á varnarleik íslenska landsliðsins í tíð Ásgeirs Sigurvinssonar og Loga Ólafssonar eftir því hvort Lárus Orri Sigurðsson er með eða ekki. FÓTBOLTI Íslenska landsliðið í knatt- spyrnu hefur ekki riðið feitum hesti frá síðustu þremur alvöru- leikjum sínum, í undankeppnum EM eða HM. Niðurstaðan er þrjú töp og markatalan er 2-9 í þessum þremur leikjum. Mótherjarnir hafa svo sem ekki verið af verri endanum, Þýskaland, Búlgaría og Ungverjaland, en það sem hefur öðru fremur verið íslenska liðinu fjötur um fót í þessum leikjum er slakur varnarleikur. Liðið hefur, eins og áður sagði, fengið á sig níu mörk í þessum þremur leikjum, þrjú mörk að meðaltali í leik, og það hefur ver- ið íslenska landsliðinu ofviða að vinna leiki þegar það fær á sig þrjú mörk allt frá því að Ísland vann Bermúda, 4-3, í vináttu- landsleik á Laugardalsvellinum árið 1964. Ásgeir og Logi tóku við stjórn íslenska landsliðsins í maí á síð- asta ári og stilltu strax upp þrigg- ja manna vörn. Það gekk vel í fyrstu fjórum leikjum liðsins, tveimur leikjum gegn Færeying- um, einum gegn Litháen og einum gegn Þýskalandi. Liðið fékk að- eins á sig tvö mörk í þessum fjór- um leikjum en síðan þá hafa flóð- gáttirnir opnast. Hver skyldi vera ástæðan? Ein þeirra gæti verið sú að Lárus Orri Sigurðsson, leikmaður West Bromwich Albion í ensku úr- valsdeildinni, hefur ekki verið með í þessum þremur síðustu leikjum. Hann lék stórt hlutverk í þremur af fjórum fyrstu lands- leikjum Ásgeirs og Loga en hann missti af leiknum gegn Færeying- um í Þórshöfn í ágúst á síðasta ári. Hann spilaði eins og herfor- ingi í þessum umræddu leikjum og var nær undantekningarlaust með bestu mönnum liðsins. Hraði hans, reynsla og styrkur nýttust frábærlega og hefur verið sárt saknað að undanförnu. Það er þó ljóst að íslenska landsliðið verður án Lárusar Orra í næstu leikjum þar sem hann á enn við hnémeiðsli að stríða en hann gæti þó hugsanlega verið orðinn klár fyrir leikinn gegn Króatíu í Zagreb 26. mars á næsta ári. Lárus Orri sagði í samtali við Fréttablaðið að hann hefði ekki minnstu hugmynd um það hvenær hann yrði klár á nýjan leik. „Ég ætla að taka mér góðan tíma til að fá mig góðan af meiðsl- unum og ætla ekki að flýta mér – það hefur aldrei gefið góða raun,“ sagði Lárus Orri Hér eru ekki teknir með vin- áttulandsleikir heldur eingöngu leikir sem hafa raunverulega þýð- ingu. oskar@frettabladid.is LÁRUS ORRI SIGURÐSSON Sést hér í leik gegn Þjóðverjum á Laugardalsvelli í september í fyrra en hann er án nokkurs vafa mikilvægur hlekkur í þriggja manna varnarlínu Ásgeirs og Loga hjá íslenska landsliðinu. Fréttablaðið/ÞÖK ÍSLENSKA VÖRNIN UNDIR STJÓRN ÁSGEIRS OG LOGA Færeyjar (H) 2-1 Lárus Orri Sigurðsson, Guðni Bergsson, Hermann Hreiðarsson Litháen (Ú) 3-0 Lárus Orri, Guðni, Hermann Færeyjar (Ú) 2-1 Pétur Marteinsson, Ólafur Örn Bjarnason, Hermann Þýskaland (H) 0-0 Lárus Orri, Ólafur Örn, Hermann Þýskaland (Ú) 0-3 Ívar Ingimarsson, Ólafur Örn, Hermann Búlgaría (H) 1-3 Kristján Sigurðsson, Ólafur Örn, Hermann Ungverjaland (Ú) 2-3 Kristján, Ólafur Örn, Hermann Nafn (leikir, mörk á sig) Meðaltal Lárus Orri (3 leikir, 1 mark) 0,3 mörk Guðni (2 leikir, 1 mark) 0,5 mörk Pétur (1 leikur, 1 mark) 1 mark Hermann (7 leikir, 11 mörk) 1,6 mörk Ólafur Örn (5 leikir, 10 mörk) 2 mörk Kristján (2 leikir, 6 mörk) 3 mörk Ívar (1 leikur, 3 mörk) 3 mörk Hjörtur Már og Ragnheiður: Syntu í gám á laugardag SUND Hjörtur Már Reynisson úr KR og Ragnheiður Ragnarsdóttir úr SH undirbúa sig nú af kappi fyrir heimsmeistaramótið í 25 metra laug sem fram fer í Indianapólís í Bandaríkjunum á næstunni. Hjörtur Már og Ragn- heiður brugðu á leik á laugar- daginn og syntu í gám frá Gámaþjónustunni á Lækjartorgi en Gámaþjónustan er aðalstyrk- taraðili sundmannanna tveggja í þessari dýru ferð til Banda- ríkjanna. ■ HJÖRTUR MÁR Henti sér í gáminn og synti af mik- lum móð. Fréttablaðið/Palli BROSANDI RAGNHEIÐUR Ragnheiður Ragnarsdóttir hafði gaman af gámasund- inu eins og þessi mynd ber með sér. 1. deild karla í fótbolta: Lið ársins valið FÓTBOLTI Vefsíðan fotbolti.net fékk á dögunum þjálfara liðanna tíu í 1. deild karla til að velja lið ársins á nýafstöðnu tímabili auk þjálfara ársins. Gunnar Guðmundsson, þjálfari HK, var valinn þjálfari ársins en HK hafnaði nokkuð óvænt í þriðja sæti deildarinnar auk þess sem liðið komst í undan- úrslit VISA-bikars karla. Gunnleifur Gunnleifsson, markvörður HK, var valinn í liðið annað árið í röð en annars áttu HK-menn og Valsarar flesta í lið- inu, þrjá leikmenn hvort lið. ■ LIÐ ÁRSINS Í 1. DEILD Markvörður Gunnleifur Gunnleifsson HK Varnarmenn Hlynur Birgisson Þór Bjarni Ólafur Eiríksson Val Eysteinn Lárusson Þrótti Árni Thor Guðmundsson HK Miðjumenn Baldur Aðalsteinsson Val Sigurbjörn Hreiðarsson Val Páll Einarsson Þrótti Hörður Már Magnússon HK Sóknarmenn Hermann Aðalgeirsson Völsungi Ibre Jagne Þór GUNNLEIFUR GUNNLEIFSSON Án nokkurs vafa besti markvörðurinn í 1. deild karla á nýafstöðnu tímabili.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.