Fréttablaðið - 04.10.2004, Síða 58
26 4. október 2004 MÁNUDAGUR
FRÁBÆR SKEMMTUN
PRINCESS DIARIES 2 kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.15
THE TERMINAL SÝND kl. 8 og 10.30 SÝND Í LÚXUS VIP KL. 5.30, 8 og 10.30
THUNDERBIRDS kl. 4 og 6
HAROLD AND KUMAR kl. 8 B.I. 14
GAURAGANGUR kl. 3.45 M/ÍSL.TALI
COLLATERAL kl. 5.40, 8 og 10.20 B.I. 16
SÝND kl. 5.30, 8 og 10.20 B.I. 16SÝND kl. 6, 8 og 10
GRETTIR SÝND KL. 4 og 6 M/ÍSLENSKU TALI
KEN PARK SÝND KL. 10.40 B.I. 16 BEFORE SUNSET KL. 6
SÝND KL. 4 kr. 450 M/ÍSLENSKU TALI
SÝND kl. 4 og 6SÝND kl. 4, 6, 8 og 10.15 B.I. 16
SÝND kl. 5.40, 8 og 10.15
WICKER PARK kl. 10.15 B.I. 12
TOM CRUISE JAMIE FOXX
Þetta hófst sem hvert
annað kvöld
Hörku spennumynd frá
Michael Mann, leikstjóra Heat
FRÁ LEIKSTJÓRA
SCARY MOVIE
HHH
kvikmyndir.is
SÝND kl. 8 og 11 B.I. 16
THE BOURNE SUPREMACY kl. 5.50, 8 og 10.15 B.I. 14
SÝND kl. 8 B.I. 16SÝND kl. 5.30, 8 og 10.30 B.I. 16
MYND EFTIR
FRIÐRIK ÞÓR
FRIÐRIKSSON
SÝND kl. 5.30, 8 og 10.15
SÝND kl. 5.30, 8 og 10.15
SÝND Í LÚXUS kl. 5.30, 8 og 10.15
Milla Jovovich
er mætt aftur
í toppformi
sem hasargel-
lan Alice í
svölustu
hasarmynd
ársins.
,,Ég á fullt af myndum og hlutum sem
ég gerði! Mér fannst mjög gaman“.
Sumarnámskeið fyrir skapandi börn,
eldri og yngri, keramik, teikning,
málun - allt innifalið - litlir hópar.
Aðeins 8500 kr. vikan!
Skráning í Keramik fyrir alla,
sími 552 2882, Laugavegi 48b.
Sjá lýsingu: www.keramik.is
Hvað segja börnin
um námskeið í
Keramik fyrir alla?
Hefur þú
fengið þér
sextíu
sjö í dag&
Færeyjar
Í MINNINGU MILES DAVIS Cheryl Dav-
is, dóttir djassmeistarans Miles Davis, tekur
við viðurkenningu um inngöngu föður síns
í Ertegen Jazz Hall of Fame í Lincoln Cent-
er í New York á fimmtudaginn í liðinni
viku. Var gömlu djassmeisturunum gert
hátt undir höfði og mikið var um geðs-
hræringu.
Norður-Írinn George Ivan Morrison
er eins og gott franskt vín, þroskast
með aldrinum. Þetta er að vísu
hræðileg klisja en engu að síður Van
Morrison í hnotskurn. Eins og gott
franskt vín ruglar hann neytand-
ann. Hann er ekkert að auðvelda
manni lífið með því að gefa upp
nafnið á vínþrúgunni heldur verður
maður að hafa fyrir því að henda
reiður á honum, vita frá hvað bú-
garði afurðirnar koma hverju sinni.
Van Morrison hefur aldrei viljað
láta setja sig í „lítinn kassa“. Nú um
stundir gefur hann út djassplötur á
Blue Note merkinu og ég þyrfti að
vera með lygaramerki á tánum, eyr-
unum og hnjánum til að segja að ég
hefði kosið að heyra hann spila
djass-prógram frekar en gamla
góða rokk-prógrammið með lögum
á borð við Caravan sem hryggjar-
súlu og Here Comes the Night í
slúttið. Eins og í gamladaga.
Listamaðurinn sem heillaði
áhorfendur upp úr skónum í Laug-
ardalshöllinni á laugardagskvöld er
maður sem stendur undir gömlu
vígorði sínu: „Too late to stop now“.
Hann bara getur ekki hætt og lítur
aldrei um öxl.
Stærstur hluti laganna sem
hann flutti með frábærri hljóm-
sveit sinni í Laugardalshöll í gær-
kvöld var af nýjasta disknum:
What’s Wrong With This Picture?
Tónleikarnir tóku rúmlega hálfan
annan tíma þannig að um tíu leytið
á laugardagskvöld var helsta um-
ræðuefnið sem skeggrætt var á
börum og veitingahúsum Reykja-
vik City, hvaða Van Morrison-lag
fólk hefði helst viljað heyra Van
the Man flytja. Landsþekkt tál-
kvendi hugsaði upphátt um Into
the Mystic á ölvunarstofu Kor-
máks og Skjaldar, 101 Reykjavík
og hinum megin við barborðið
reyndi strákur að norðan við
stelpu úr Vesturbænum með því að
kalla hana Brown Eyed Girl. Dugn-
aðarforkur frá Eskifirði rifjaði
upp ást sína á flestum lögum Hard
Nose the Highway og furðaði sig á
slæmum dómum sem hún fékk
1973. „Hauskúpa í Rolling Stone!
Plata með Warm love á!?“ og fleiri
þrjátíu ára gamlar spælingar fylg-
du. Áberandi ölvaður maður í höf-
uðborginni talaði loks fyrir mál-
stað dúettsins með Cliff Richard,
When God Shines His Lights, en
var púaður niður.
Ég sagði hins vegar engum frá
því að ég hefði viljað heyra
gospelslagarann Full Force Gale:
„Like a full force gale, I was lifted
up again by the Lord!“
Altént kann Van Morrison bara
ekki að stoppa; heldur áfram og
áfram og er í þokkabót ævarandi
áminning um að það er engin
ástæða til að skríða ofan í litlan
kassa eftir þeim merkimiða, sem
á tilteknu augnabliki er á okkur
settur.
Vissulega sótti George Ivan ým-
islegt gamalt í sarpinn en allt fékk
það nýjan búning og nýtt líf. Hann
lék til dæmis frábæra útgáfu af
Jackie Wilson Says og furðulega út-
gáfu af einu frægasta lagi sínu
Have I Told You Lately.
Þegar hann loksins tók Gloriu
sína í lokin, táraðist ég, um leið og
ég rokkaði feitt með grátt í vöngum
(maður sem gæti verið sonur Vans-
ins mannsins standandi við hlið
stúlku sem gæti verið barnabarn
hans). Bara ef hann hefði tekið
Moondance í bláslúttið hefði ég get-
að dáið hamingjusamur maður, haf-
andi náð öðrum markmiðum lífsins:
ferðast um heiminn, byggja hús,
eiga börn og sjá Van Morrisson
stíga tungldansinn: „Yes it was a
wonderful night for a moondance.“
a.snaevarr@frettabladid.is
Dásamlegt kvöld fyrir tungldans
Rokkarinn Van the Man sem segir alltof seint að stoppa tróð upp með djass í Reykjavík.
STELPUR ÚR LISTDANSSKÓLANUM Dönsuðu niður Laugaveginn í gær og vildu
þannig vekja athygli á nýju nemendafélagi skólans.
Ítalski leikarinn og leikstjórinn Ro-
berto Benigni hefur ákveðið að gera
mynd um stríðið í Írak. Myndin
mun heita La Tigre e la neve eða
Tígurinn og snjórinn. Þrátt fyrir að
myndin gerist í Írak í byrjun stríðs-
ins hefur Benigni sagt að hún verði
gamanmynd. Benigni leikur ljóð-
skáld sem flækist inn í málin í Írak:
„Stríðið er aðeins bakgrunnur
myndarinnar og ljóðskáldið sem ég
leik endar í Írak fyrir algjöra tilvilj-
un,“ segir Benigni.
Í viðtali gagnrýnir Benigni hlut-
verk Vesturlandanna í ofbeldinu í
Írak. „Vesturlandabúar stjórna öllu,
allir þeir sem stjórna þessum hlut-
um og framkvæma þá hafa lært í
Vesturlöndunum. Það eru ekki Aust-
urlandabúarnir sem stjórna þessu,“
segir Benigni sem vann sér inn al-
þjóðlega aðdáun og umtal með leik
sínum og leikstjórn sinni í myndinni
La Vita e bella. Sú mynd var einmitt
gamanmynd um helförina og fékk
þrjú óskarsverðlaun þar sem Ro-
berto Benigni vann meðal annars
verðlaun fyrir besta leik. ■
Benigni gerir gaman-
mynd um stríðið í Írak
■ KVIKMYNDIR
ROBERTO BENIGNI Vonandi verður þessi mynd jafn stórkostleg og gamanmynd hans
um helförina, La Vita e bella.
■ TÓNLEIKAR
VAN THE MAN Van Morrison
einbeitti sér að nýrri lögum en
nokkur eldri gullkorn flutu
með í nýjum búningi.