Fréttablaðið - 04.10.2004, Side 63
31MÁNUDAGUR 4. október 2004
FRÉTTIR AF FÓLKI
Ínýju eintaki Euroman má finna við-tal við Ólaf Elíasson, sem gerði
garðinn frægan með innsetningu
sinni í Tate
Modern-safninu í
London sem kall-
aðist Weather
Project. Sú sýning
laðaði að sér fjöl-
da áhorfenda og
þótti heppnast
mjög vel. Ólafur
gagnrýnir hins
vegar skandinav-
íska og íslenska
blaðamenn harðlega í þessu viðtali
fyrir umfjöllunina um sýninguna,
sem hann segir hafa verið „smör-
rebröds“-blaðamennsku og alls ekki
nógu faglega unna. Ólafur segir aug-
ljóst að norrænir blaðamenn kunni
ekki að skrifa um menningu líkt og
hann er vanur frá Þýskalandi. Gagn-
rýnendur frá Svíþjóð, Danmörk og Ís-
landi séu yfirleitt ekki myndlistar-
gagnrýnendur, heldur einnig tónlist-
ar- eða leikhúsgagnrýnendur, og þeir
hafi því horft mjög ógagnrýnið á verk
hans og án þess að velta fyrir sér
merkingu þess sögðu þeir bara: „Vá,
hvað þetta er flott sól.“
Áléttari nótunum kemur einnigfram í viðtalinu að Ólafur og eig-
inkona hans, Marianne Krogh Jen-
sen, hafi nýlega ættleitt soninn Zak-
arias frá Addis Ababa í Eþíópíu.
Konur flykkjast nú á 101 bar eftirað fregnir bárust um að
Hollywood kyntröll og rokkstjörnur
eigi þar leið um. Harri-
son Ford hefur látið
sjá sig þar nokkrum
sinnum og sögusagnir
komust á kreik um að
George Clooney hefði
gert hið sama, en það
reyndist ósatt. Stórir
kvennahópar sitja þar
nú við hvert borð og skima konurnar
eftirvæntingarfullar í átt að inngang-
inum um leið og einhver kemur inn
á barinn.
Heyrst hefur að ísjakinn mikli semhefur vakið hvað mesta athygli á
vísinda- og menningarsýningunni í
París hafi átt í nokkrum erfiðleikum
með að komast
alla leið. Hann
kom inn um toll-
inn í Rotterdam
og segir sagan að
fólk hafi lent í
mesta basli með
að koma honum
þar í gegn, því
enginn tollflokkur var fyrir hendi. Þá
hafði jakinn lést um sex tonn á leið
sinni yfir hafið og þurfti því að út-
skýra afhverju ekki væri sama magn
sem lagði af stað úr höfn og kom á
leiðarenda. Eftir mikið japl á þó að
hafa verið komist að þeirri niður-
stöðu að óhætt væri að hleypa ísjak-
anum inn á svæði Evrópusambands-
ins, en með þeim formerkjum þó að
hann fengi einungis dvalarleyfi í þrjá
daga. Var því vonast til að jakinn
myndi bara bráðna á þessum þrem-
ur dögum svo ekki þyrfti að flytja
restina aftur til Íslands.
Dagný Jónsdóttir, þingkona Fram-sóknarflokksins, mætti aftur í
upphlut við þingsetningu á föstudag.
Heyrst hefur að hún hafi sérstaklega
klætt sig upp á í þennan
búning til að ögra blaða-
mönnum DV sem gerðu
nokkurt grín af henni við
síðustu þingsetningu
fyrir að klæðast þess-
um þjóðhátíðarbún-
ingi íslenskra kvenna.
ÚR RÆÐUSTÓLI Halldór að halda ræðu sem forseti Alþingis, við setningu þings, áður en
hann hélt sína fyrstu stefnuræðu sem forsætisráðherra landsins.
Kaldaljós framlag Íslands til óskarsverðlauna
Kvikmyndin Kaldaljós eftir Hilmar
Oddsson, byggð á samnefndri skáld-
sögu Vigdísar Grímsdóttur, var á
miðvikudag valin framlag Íslands
til forvals óskarsverðlaunanna í
kosningu sem haldin var af Íslensku
kvikmynda- og sjónvarpsakademí-
unni á miðvikudag. Valið stóð á milli
Kaldaljóss og kvikmyndarinnar
Dísar eftir Silju Hauksdóttur. Und-
anfarin ár hefur kosningin farið
fram samhliða Eddu-verðlaunun-
um, en að þessu sinni var ekki hægt
að hafa þann háttinn á vegna krafna
bandarísku kvikmyndaakademíunn-
ar um að val viðkomandi lands væri
tilkynnt við lok skilafrest sem var 1.
október.
Að sögn Ásgríms Sverrissonar
hjá Íslensku kvikmynda- og sjón-
varpsakademíunni eru rúmlega 800
manns á kjörskrá; allt fólk úr ís-
lenska kvikmynda- og sjónvarps-
geiranum. Nákvæm niðurstaða kosn-
ingarinnar er ekki gefin upp né kjör-
sókn eða ástæður þess að Kaldaljós
var valin fram yfir Dís. Atkvæða-
munurinn einn sker úr um valið.
Báðar kvikmyndirnar voru þær einu
íslensku sem komu til greina sam-
kvæmt skilyrðum bandarísku kvik-
myndaakademíunnar sem að sögn
Ásgríms setur mjög ákveðin skilyrði
um erlendar myndir. ■
OG ÓSKARINN FÆR... ...jah, kannski
Kaldaljós sem besta erlenda myndin, en
hún verður næsta framlag Íslendinga til
óskarsverðlauna bandarísku kvikmynda-
akademíunnar í mars næstkomandi.