Fréttablaðið - 15.10.2004, Qupperneq 23
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 6
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 90 stk.
Keypt & selt 25 stk.
Þjónusta 31 stk.
Heilsa 10 stk.
Skólar & námskeið 1 stk.
Heimilið 18 stk.
Tómstundir & ferðir 8 stk.
Húsnæði 12 stk.
Atvinna 29 stk.
Tilkynningar 8 stk.
299*
399
*Algengt verð í matvöruverslunum
*
ar
gu
s
–
0
4-
05
60
Sláturtíðin er hafin
BLS. 2
Góðan dag!
Í dag er föstudagurinn
15. október,
289. dagur ársins 2004.
Reykjavík 8.19 13.13 18.07
Akureyri 8.08 12.58 17.47
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Dæmigerð nútímakona í krefjandi vinnu og
með börn sem eru komin nokkuð á legg ver
æ minni tíma við matargerð. Guðrún Ebba
Ólafsdóttir borgarfulltrúi er dæmi um svona
konu því hún vinnur oft langan vinnudag og
er ekki komin heim fyrr en langt er liðið
fram yfir hefðbundinn kvöldverðartíma.
„Ég er með tvær hálffullorðnar stelpur
heima sem eru í menntaskóla og háskóla og
þær eru auðvitað ekki í bráðri lífshættu
þótt mamma komi ekki heim og eldi. Þær
vilja samt gjarnan að eitthvað sé til svo ég
er dugleg að fylgjast með tilboðum á frosn-
um og tilbúnum réttum sem eru margir
hverjir alveg prýðilegir og úrvalið hefur
aukist gríðarlega. Ég er alltaf tilbúin að
prófa eitthvað nýtt, en svo kaupi ég líka oft
tilbúna kjúklingabita.“
Guðrún Ebba hefur þó ekki alveg snúið
baki við matseldinni því um helgar finnst
henni skemmtilegt að hafa meira við. „Það
eru reyndar langmest kjúklingabringur,
sem eru bæði fljótlegar og hollar. Ég læt
bringurnar liggja í olíu, ediki, hunangi,
sinnepi og sojasósu, og þetta þarf ekki að
liggja nema í korter, hálftíma áður en það
er steikt. Svo fer þetta á rifflaða pönnu sem
ég keypti ódýrt í IKEA. Með þessu kaupi ég
oftast salat í pokum og bæti svo einhverju
í það eins og til dæmis berjum,“ segir
Guðrún Ebba hlæjandi. „Ef við erum ekki
með kjúklingabringur er Nóatúnskryddað
lambakjöt alveg eðal.“
Hún segist í ljósi breyttra tíma vera
hætt að skammast sín fyrir að vera ekki of-
urkona í eldhúsinu. „Ég reyni að sameina
þetta tvennt, fljótlegt og ódýrt. Börn og
fullorðnir fá líka flestir mat í hádeginu í
skólum og vinnustöðum þannig að kvöld-
maturinn er ekki orðinn eins mikilvægur
og hann var.“
edda@frettabaldid.is
Nútímakonan:
Vill eitthvað fljót-
legt í kvöldmatinn
Tæki á tækifærisverði er að
finna í Raftækjaverslun Íslands
við Skútuvog í Reykjavík. Sjón-
vörp, amerískir tvöfaldir
kæli/frystiskápar, örbylgjuofnar
og uppþvottavélar. Allt er það á
lækkuðu verði þessa dagana.
Einnig kæliskápur með 45 l
frystihólfi sem hefur lækkað um
20.000 krónur og kostar nú
39.900 og þvottavél sem áður
seldist á 68.900 býðst nú á
44.900 kr.
Kastaradagar kallast sérstakt
tilboð sem nú er í gildi hjá Raf-
kaupum í Ármúla sem reyndar
teygir anga sína víða um land.
Það merkir að 10-70% afsláttur
er á ljóskösturum af hinum
ýmsu gerðum. Sumir eru
stakir og ætlaðir á vegg,
aðrir á plötum nokkrir
saman til að hafa uppi í
lofti og lýsa í allar áttir.
Bætiefni og nátt-
úrulyf af nokkrum
gerðum eru á 30%
afslætti hjá Lyfi og heilsu út
þennan mánuð. Þau eru amerísk
og merkið er Futurebiotics. Með-
al þess er Glucosamine Complex
sem er sterk blanda sem byggir
upp brjósk og styrkir liði. Annað
er sólhattur með propilis og c-
vítamíni er byggir upp ónæmis-
kerfið og hið þriðja er Acido-
philus+ sem eru mjólkursýru-
gerlar sem byggja upp eðlilega
flóru í maga og meltingarvegi.
20% afsláttur er á öllum
kvenbolum og peysum í versl-
uninni Stasiu í Kringlunni fram
á sunnudag. Þetta eru danskar
vörur og þær eru til í stærðum
frá 36 upp í 56. Úrvalið er
mikið hvort tveggja hvað
varðar gerðir og liti og
verðið er eftir því fjöl-
breytilegt. Algengt verð
á bolum meðan á til-
boðinu stendur er
1.590 og 2.990 og á
langermabolum
3.400 kr.
tilbod@frettabladid.is
Guðrún Ebba Ólafsdóttir grípur oft til tilbúinna rétta í kvöldmatinn.
Smáauglýsingar
á 995 kr.
visir.is
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Liggur í loftinu
Í TILBOÐUM
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TÍSKA NEYTENDUR o.fl.
Þú getur pantað
smáauglýsingar á
www.visir.is
KRÍLIN
Afi, af hverju
vex höfuðið á
þér í gegnum
hárið?
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA