Fréttablaðið - 15.10.2004, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 15.10.2004, Blaðsíða 24
Til að fá ljúffengan keim er gott að skella smá rauðvínsdreitil á pönnuna þegar verið er að steikja hamborgara. Ljúffengt! Hnífaparapokar Verð kr 1500 DUKA vandaðar heimilis og gjafavörur sími 568 6440 Allt í eldhúsið Nú stendur sláturtíð sem hæst. Þótt það sé fátíðara en fyrr að heilu fjölskyldurnar sameinist í þvottahúsinu við saumaskap á vömbum, blóðhræru í bölum og mör út um allt er þó enn til fólk sem tekur slátur á hverju ári. Slátur er enda með afbrigðum hollur og góður matur og afskap- lega ódýr. Regína Þorvaldsdóttir er ein þeirra sem alltaf taka slátur og hefur gert í 28 ár. „Ég byrjaði á þessu átján ára,“ segir Regína og finnst tilhugsunin eiginlega alveg ótrúleg. „Þá var ég komin með tvö börn og mann í námi þannig að þetta snerist um að eiga ódýran mat fyrir veturinn. Ég tók yfir- leitt tíu slátur og svo var boðið upp á grjónagraut eða hafragraut með slátri í öll mál.“ Regína er alin upp við slátur- gerð, en fyrst eftir að hún byrjaði að búa tók hún slátur ein og naut leiðsagnar móður sinnar gegnum símann. „Þetta hefur svo þróast í gegnum árin, stundum var mamma með mér eða móðursystir mín og nú gerum við systurnar þetta saman.“ Sláturgerðin hefur breyst í áranna rás og nú eru vambirnar seldar hreinsaðar og mörinn skorinn. „Það er óskaplegur munur,“ segir Regína. „Ég verka vambirnar alltaf aðeins meira og kaupi að sjálfsögðu mörinn skor- inn. Aðalvinnan var alltaf í mörn- um. Ég tek slátrið í eldhúsinu og það er langt í frá að allt fari á annan endann. Hrályktin hverfur svo alveg þegar slátrið er soðið og matarilminn leggur yfir.“ Regína segist hætt að kaupa slátur í kössum þar sem hún nýtir ekki innmatinn og kaupir yfirleitt 12-13 vambir, 12-13 lifrar, mör og einn lítra af blóði. Hún reyndi einu sinni að minnka verulega mörinn í slátrinu en fannst það alveg misheppnað. „Ég varð að henda því öllu, mörinn er alveg nauðsynlegur með. Þeir sem vilja ekki mörinn verða bara að tína hann úr.“ Slátur er enn vinsælt á heimili Regínu. Hún er með fjögur börn heima og tvö eru flogin úr hreiðr- inu, en þau elstu kunna best að meta slátrið. „Hinum finnst það ágætt, nema þeirri yngstu, hún persónulega borðar ekki svona ógeð,“ segir Regína og skellihlær. Regína gefur okkur uppskrift að lifrarpylsu og blóðmör. edda@frettabladid.is Sláturgerð: Mör og blóð í bala Sláturgerð getur verið mikið stuð, ekki síst ef margir hjálpast að. Hér eru systurnar Anna, Regína og Brynja. Lifrarpylsa 10 lifrar, best ef þær eru 400-500 g stk. 800-1000 g haframjöl 10 bollar mjólk og 10 bollar vatn 10 msk. salt Um 6-8 súputeningar leystir upp í volgu vatni rúgmjöl eftir smekk hvers og eins 3 kg mör eða eftir smekk hvers og eins. Aðferð: Lifrarnar hreinsaðar af sinum og himnu og hakkaðar (best hefur mér reynst að tvíhakka lifrarnar þar sem pylsan verður ekki eins gróf). Þá er mjólk, vatni, uppleystum súputen- ingum og salti blandað saman við lifrar- hakkið og hrært vel saman við. Þá er haframjölið sett út í hræruna og síðan rúgmölið. Regína hefur aldrei verið með ákveðið magn af rúgmjölinu en hefur það fyrir sið að rita kross í hræruna og ef hann rennur ekki létt saman þá er hræran tilbúin. Síðan er mörnum bætt út í eftir smekk hvers og eins. Sett í keppina rúmlega til hálfs. Blóðmör 1 lítri af blóði 4 dl vatn 0,5-1 msk. salt 400 g rúgmjöl 600 g haframjöl 1-1,5 kg mör. Aðferð: Blóðið er sigtað í gegnum fínt sigti eða gróft léreft. Síðan er vatninu hellt í gegnum sigtið og saltinu blandað saman við blóðið og hrært þangað til það hefur leyst upp. Helmingur af mörn- um settur út í, mjölið hrært saman við og hrært í þar til það er jafnt. Best er að gera það með hendinni. Síðan er mörn- um bætt út í eftir smekk hvers og eins. Gott er að láta rúsínur út í blóðmör. Sett í keppina til hálfs og saumað fyrir. SLÁTURUPPSKRIFTIR Saumaskapur er stór hluti af sláturgerðinni ef fólk notar ekki gervivambir. Regína ásamt Margréti dóttur sinni og Bríeti vinkonu hennar. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P JE TU R FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P JE TU R Regína tekur slátur á hverju ári. Hér er hún að snyrta vambir. - mest lesna blað landsins Á ÞRIÐJUDÖGUM Allt fyrir líkama og sál Auglýsingasíminn er 550 5000 auglysingar@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.