Fréttablaðið - 15.10.2004, Síða 24
Til að fá ljúffengan keim er gott að
skella smá rauðvínsdreitil á pönnuna
þegar verið er að steikja hamborgara.
Ljúffengt!
Hnífaparapokar
Verð kr 1500
DUKA vandaðar
heimilis og gjafavörur
sími 568 6440
Allt í
eldhúsið
Nú stendur sláturtíð sem hæst.
Þótt það sé fátíðara en fyrr að
heilu fjölskyldurnar sameinist í
þvottahúsinu við saumaskap á
vömbum, blóðhræru í bölum og
mör út um allt er þó enn til fólk
sem tekur slátur á hverju ári.
Slátur er enda með afbrigðum
hollur og góður matur og afskap-
lega ódýr.
Regína Þorvaldsdóttir er ein
þeirra sem alltaf taka slátur og
hefur gert í 28 ár. „Ég byrjaði á
þessu átján ára,“ segir Regína og
finnst tilhugsunin eiginlega alveg
ótrúleg. „Þá var ég komin með tvö
börn og mann í námi þannig að
þetta snerist um að eiga ódýran
mat fyrir veturinn. Ég tók yfir-
leitt tíu slátur og svo var boðið
upp á grjónagraut eða hafragraut
með slátri í öll mál.“
Regína er alin upp við slátur-
gerð, en fyrst eftir að hún byrjaði
að búa tók hún slátur ein og naut
leiðsagnar móður sinnar gegnum
símann. „Þetta hefur svo þróast í
gegnum árin, stundum var
mamma með mér eða móðursystir
mín og nú gerum við systurnar
þetta saman.“
Sláturgerðin hefur breyst í
áranna rás og nú eru vambirnar
seldar hreinsaðar og mörinn
skorinn. „Það er óskaplegur
munur,“ segir Regína. „Ég verka
vambirnar alltaf aðeins meira og
kaupi að sjálfsögðu mörinn skor-
inn. Aðalvinnan var alltaf í mörn-
um. Ég tek slátrið í eldhúsinu og
það er langt í frá að allt fari á
annan endann. Hrályktin hverfur
svo alveg þegar slátrið er soðið og
matarilminn leggur yfir.“
Regína segist hætt að kaupa
slátur í kössum þar sem hún nýtir
ekki innmatinn og kaupir yfirleitt
12-13 vambir, 12-13 lifrar, mör og
einn lítra af blóði. Hún reyndi
einu sinni að minnka verulega
mörinn í slátrinu en fannst það
alveg misheppnað. „Ég varð að
henda því öllu, mörinn er alveg
nauðsynlegur með. Þeir sem vilja
ekki mörinn verða bara að tína
hann úr.“
Slátur er enn vinsælt á heimili
Regínu. Hún er með fjögur börn
heima og tvö eru flogin úr hreiðr-
inu, en þau elstu kunna best að
meta slátrið. „Hinum finnst það
ágætt, nema þeirri yngstu, hún
persónulega borðar ekki svona
ógeð,“ segir Regína og skellihlær.
Regína gefur okkur uppskrift
að lifrarpylsu og blóðmör.
edda@frettabladid.is
Sláturgerð:
Mör og blóð í bala
Sláturgerð getur verið mikið stuð, ekki síst ef margir
hjálpast að. Hér eru systurnar Anna, Regína og
Brynja.
Lifrarpylsa
10 lifrar, best ef þær eru 400-500 g stk.
800-1000 g haframjöl
10 bollar mjólk og 10 bollar vatn
10 msk. salt
Um 6-8 súputeningar leystir upp í volgu
vatni
rúgmjöl eftir smekk hvers og eins
3 kg mör eða eftir smekk hvers og eins.
Aðferð: Lifrarnar hreinsaðar af sinum og
himnu og hakkaðar (best hefur mér
reynst að tvíhakka lifrarnar þar sem
pylsan verður ekki eins gróf).
Þá er mjólk, vatni, uppleystum súputen-
ingum og salti blandað saman við lifrar-
hakkið og hrært vel saman við. Þá er
haframjölið sett út í hræruna og síðan
rúgmölið. Regína hefur aldrei verið með
ákveðið magn af rúgmjölinu en hefur
það fyrir sið að rita kross í hræruna og
ef hann rennur ekki létt saman þá er
hræran tilbúin. Síðan er mörnum bætt
út í eftir smekk hvers og eins. Sett í
keppina rúmlega til hálfs.
Blóðmör
1 lítri af blóði
4 dl vatn
0,5-1 msk. salt
400 g rúgmjöl
600 g haframjöl
1-1,5 kg mör.
Aðferð: Blóðið er sigtað í gegnum fínt
sigti eða gróft léreft. Síðan er vatninu
hellt í gegnum sigtið og saltinu blandað
saman við blóðið og hrært þangað til
það hefur leyst upp. Helmingur af mörn-
um settur út í, mjölið hrært saman við
og hrært í þar til það er jafnt. Best er að
gera það með hendinni. Síðan er mörn-
um bætt út í eftir smekk hvers og eins.
Gott er að láta rúsínur út í blóðmör.
Sett í keppina til hálfs og saumað fyrir.
SLÁTURUPPSKRIFTIR
Saumaskapur er stór hluti af sláturgerðinni ef fólk notar ekki gervivambir.
Regína ásamt Margréti dóttur sinni og Bríeti vinkonu hennar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
Regína tekur slátur á hverju ári.
Hér er hún að snyrta vambir.
- mest lesna blað landsins
Á ÞRIÐJUDÖGUM
Allt fyrir líkama og sál
Auglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is