Fréttablaðið - 19.10.2004, Blaðsíða 41
ÞRIÐJUDAGUR 19. október 2004
Ein efnilegasta poppsveit Breta í
dag, Keane, mun spila í Hafnar-
húsinu næstkomandi laugardags-
kvöld á Iceland Airwaves-tónlist-
arhátíðinni.
Hljómsveitin var stofnuð árið
1997 af fjórum skólafélögum í
bænum Battle í East Sussex á
Englandi. Þrem árum síðar yfir-
gaf gítarleikarinn bandið og í kjöl-
farið ákváðu þeir Tom Chaplin
(söngvari), Richard Hughes
(trommuleikari) og Tim Rice-
Oxley (píanó- og bassaleikari) að
halda áfram sem tríó og þróa hinn
melódíska hljóm sveitarinnar án
gítars.
Fyrsta smáskífa Keane, Call
Me What You Like, kom út 2000 og
Wolf at the Door kom út ári síðar.
Vöktu þær athygli hljómplöturis-
ans Island Records sem gerði við
hana útgáfusamning. Í maí á
þessu ári kom síðan út frumburð-
ur sveitarinnar, Hopes and Fears
sem hefur slegið í gegn víðs vegar
um Evrópu, þar á meðal hér á
landi, með lögum á borð við
Everybody’s Changing og
Somewhere Only We Know. ■
Með efnilegri sveitum Breta
KEANE Keane er með efnilegri sveitum Breta í dag. Tónleikar hennar verða á laugardagskvöld í Hafnarhúsinu.
■ Tónlist